Dagur án dauðsfalls af völdum COVID-19

Samkvæmt opin­berum tölum hafa ríf­lega 83.600 manns greinst með veiruna í Kína og að minnsta kosti 3.330 hafa lát­ist úr sjúk­dómnum sem hún veldur.

Yfirvöld í Kína greindu frá því í gær að eng­inn hefði lát­ist af völdum COVID-19 sjúk­dóms­ins þar í landi í dag, í fyrsta sinn frá því í jan­úar. Stefnt er að því að aflétta enn frekar tak­mörk­unum á sam­neyti fólks í Wuhan-borg en þar á veiran upp­runa sinn.

Lífið í Wuhan hefur smám saman verið að fær­ast nær eðli­legu horfi síð­ustu vikur. Neð­an­jarð­ar­lest­irnar hófu að ganga á ný í lok mars og stefnt er að því að aflétta banni á ferða­lögum inn og út úr borg­inni á morgun, mið­viku­dag.

[adspot]

Samkvæmt opin­berum tölum hafa ríf­lega 83.600 manns greinst með veiruna í Kína og að minnsta kosti 3.330 hafa lát­ist úr sjúk­dómnum sem hún veldur.

Í frétt New York Times segir að margir haldið því fram að dán­ar­talan sé mun hærri. Banda­ríska leyni­þjón­ustan telur sig hafa heim­ildir fyrir því að stjórn­völd hafi logið til um fjölda veikra og lát­inna. Því sé í raun ekki vitað hversu margir hafi sýkst og týnt lífi í far­aldr­inum.

[links]Kínversk stjórn­völd hafa lagt sig fram við að þagga niður í umræðu á net­inu um ástandið í Wuhan og Hubei-hér­aði, segir í frétt New York Times. Einnig hafi áhersla verið lögð á það að hinir látnu væru grafnir í kyrr­þey.

Yfirvöld í Kína hafa opin­ber­lega sagt að nær öll ný smit í land­inu hafi greinst í fólki sem var að koma frá útlöndum.

Ítrekað hefur komið fram í máli margra sér­fræð­inga í far­alds­fræðum að ekki sé hægt að bera saman fjölda greindra milli landa. Í Kína eru til­felli þar sem sýkt fólk er ein­kenna­laust t.d. ekki talin með í fjölda sýk­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár