Langvarandi erfiðleikar gætu leitt af sér lýðskrumspólitík

For­sæt­is­ráð­herra seg­ist ekk­ert hafa hugsað um það und­an­farið hvenær næstu kosn­ingar ættu að fara fram. Hún seg­ist aldrei kvíða kosn­ingum en við­ur­kennir að yfir­stand­andi aðstæður hafi reynt á sam­starf flokk­anna í rík­is­stjórn.

Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna og forsætisráðherra.
Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að ef það gangi vel að kom­ast í gegnum þá erf­ið­leika sem nú standa yfir þá gæti það leitt til þess að traust á stjórn­mál, sem hefur verið lítið árum saman, vaxi. „Ef erf­ið­leik­arnir verða lang­vinnir þá eru meiri líkur á því að upp spretti öfl sem kalla eftir meiri lýð­skrum­spóli­tík. Þannig að ég held að það geti farið á hvort veg­inn sem er.“

[links]Þetta er meðal þess sem fram kemur í ítar­­legu við­tali Kjarn­ans við Katrínu sem birt var um liðna helgi. Við­talið er hluti af umfjöll­un­­ar­röð Kjarn­ans þar sem sjónum er beint að þeirri fram­­tíð sem gæti sprottið upp úr stöð­unni sem nú blasir við Íslandi efna­hags­­lega. Fyrsti hluti þeirrar umfjöll­unar voru við­­töl við alla þrjá for­­menn stjórn­­­ar­­flokk­anna.

Katrín við­ur­kennir í við­tal­inu að hafa ekk­ert hugsað um það und­an­farið hvenær næstu kosn­ingar eigi að fara fram, en kjör­tíma­bil­inu lýkur í síð­asta lagi í októ­ber á næsta ári. For­sæt­is­ráð­herra var búin að gefa það út að sam­tal myndi eiga sér stað um það á vett­vangi Alþingis í sumar hvort þær verði aftur að hausti, sem er óvenju­legt í Íslands­sög­unni, eða hvort þær verði til að mynda haldnar að vori líkt og hefð er fyrir. Við það ætlar hún að standa þannig að allir stjórn­mála­flokkar verði með skýra hug­mynd um hvenær næst verði kosið þegar næsti þing­vetur hefst.

[adspot]Katrín seg­ist aldrei kvíða kosn­ingum. Sú gjör­breyt­ing á aðstæðum íslensks efna­hags, og að ein­hverjum leyti sam­fé­lags, á örfáum vikum breyti þar engu um. „Hins vegar held ég að þegar ég horfi á und­an­farnar vikur – þær hafa verið þannig að þráð­ur­inn hefur oft verið stuttur í okkur öllum og þar af leið­andi hefur reynt sam­starf flokka í rík­is­stjórn – að það sam­starf hefur gengið mjög vel. Það hefur gengið vel að taka ákvarð­anir og ná saman á tímum þar sem það er mjög erfitt að taka ákvarð­anir.“

Loftlags- og jafnréttismál líka hörð efnahagsmál

Katrín telur að Íslend­ingar eigi að nýta sér aðstæður nú til að hraða breyt­ingum í umhverfis- og loft­lags­málum.

Rík­is­stjórnin hefur þegar fundað um aðgerð­ar­á­ætlun sína í loft­lags­málum og rætt hvort hún sé reiðu­búin að halda áfram með þau mark­mið sem hún var búin að setja sér. „Það er fullur vilji til þess. En hins vegar hef ég áhyggjur af þessum málum á heims­vísu. Þau voru auð­vitað í ákveð­inni kreppu fyrir, þar sem til að mynda Banda­ríkin voru búin að segja sig frá Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Það sem maður skynjar eru miklar áhyggjur hjá þeim sem hafa verið að berj­ast fyrir þessum málum, aðal­lega gras­rót­ar­sam­tökum, að COVID verði til þess að þessi mál lendi neðar á for­gangs­lista rík­is­stjórna. Þetta er dálítið eins og jafn­rétt­is­málin. Fólk ótt­ast að þessi mál fari aftar í röð­ina af því að nú sé verið að fást við hin hörðu efna­hags­mál. Á meðan ég segi að loft­lags- og jafn­rétt­is­málin eigi líka að vera hörð efna­hags­mál.“ 

Hægt er að lesa við­talið við Katrínu í heild sinni hér og hlusta á það hér að neðan.

Hlaðvarp Kjarnans · Kvikan – Við­var­andi atvinnu­leysi getur skapað mik­inn ójöfnuð

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár