Fjórir eru látnir – hundruð brutust inn í þinghúsið

Óeirð­irnar í Washington hafa vakið margar spurn­ingar. Hvernig gátu hund­ruð manna kom­ist inn í þing­húsið? Og hvers vegna virt­ust við­brögð lög­regl­unnar svona sein? Fjórir liggja í valnum.

Atburðir gærdagsins í myndum. Þeir hófust með glaðbeittum Bandaríkjaforseta á fundi við Hvíta húsið og þróuðust út í uppþot.
Atburðir gær­dags­ins í myndum. Þeir hófust með glað­beittum Banda­ríkja­for­seta á fundi við Hvíta húsið og þró­uð­ust út í upp­þot. Mynd: EPA

Eftir að Donald Trump sagði stuðn­ings­mönnum sínum, sem safn­ast höfðu saman við Hvíta húsið í gær að þeir ættu aldrei að við­ur­kenna ósigur gengu hund­ruð þeirra fylktu liði að þing­hús­inu, sumir vopn­aðir, og brut­ust þar inn. Margir eru þegar farnir að tala um valda­ránstil­raun því til­gang­ur­inn var sá að koma í veg fyrir að þing­deild­irnar, sem voru á fundi í þing­hús­inu, myndu stað­festa úrslit for­seta­kosn­ing­anna frá því í nóv­em­ber sem Joe Biden sigr­aði í.

Lög­reglu­menn og örygg­is­verðir, sem stóðu framan við þing­húsið, hörf­uðu er múg­ur­inn lét til skarar skríða, veif­andi fánum sem margir tengj­ast hvítum öfga­hópum.

Í um klukku­stund barði fólk á glugga húss­ins og dyr og hróp­aði: Hleypið okkur inn! Lög­reglu­menn sem voru inni í hús­inu beittu piparúða og reyk­sprengjum en tókst hins vegar ekki að brjóta upp­reisn­ina á bak aftur.

[adspot]

Og múgnum tókst að kom­ast inn. Alla leið inn í þing­sali og á skrif­stofur þing­manna sem höfðu leitað skjóls ann­ars staðar í hús­inu. Nú er ljóst að atburðir næt­ur­innar hafa kostað fjóra lífið. Á sjötta tug hafa verið hand­teknir, meiri­hlut­inn fyrir að brjóta útgöngu­bann sem borg­ar­stjóri Wahsington setti á í gær.

Sífellt fjölg­aði svo í hópi stuðn­ings­manna við þing­húsið og fyrir þá sem á horfðu í beinum útsend­ingum sjón­varps­stöðva virt­ist biðin eftir auknum lög­reglu­stuðn­ingi við húsið engan enda ætla að taka.

Lög­reglan reyndi að verj­ast múgnum við aust­ur­hlið húss­ins framan af en gafst svo upp og hörf­aði. Æstur hópur stuðn­ings­manna Trump stóð öskr­andi fyrir framan og þegar hann komst inn fyrir varnir lög­regl­unnar hóf hann að syngja banda­ríska þjóð­söng­inn.

Ein kona var skotin innan veggja þing­húss­ins. Skotið kom úr byssu þinglög­reglu­manns. Hún var flutt á sjúkra­hús þar sem hún lést. Táragasi var beitt á múg­inn og fyllti það marm­ara­lagða ganga og sali þing­húss­ins.

[links]Þetta var áhlaup. Þetta voru óeirðir. Joe Biden, verð­andi for­seti, ávarp­aði þjóð­ina og sagði slíkt aldrei áður hafa gerst í nútíma­sögu lands­ins. Donald Trump ávarp­aði hana einnig, á Twitter, og bað fólk að halda frið­inn en hann sagði stuðn­ings­mönnum sínum einnig að muna þennan dag að eilífu. Og hélt áfram að segja að kosn­ing­unum hefði „verið stolið“.

Bæði Twitter og Facebook læstu aðgangi Trumps að miðl­unum í nótt. Hann gat því ekki lengur skrifað nýjar færslur.

Umræðum um úrslit for­seta­kosn­ing­anna var skilj­an­lega hætt á meðan öllu þesu stóð. „Haldið ykkur frá gluggum og dyrum. Ef þið eruð úti, leitið skjóls,“ voru skila­boðin sem þing­menn fengu er áhlaupið á þing­húsið hófst.

Þjóð­varð­liðið í Washington-borg var virkjað í gær­kvöldi. Borg­ar­stjór­inn Muriel E. Boswer sagði að vegna útgöngu­banns­ins mætti engir aðrir en fram­línu­starfs­menn vera á ferli utandyra.

Sá fyrsti sem fór inn í þing­húsið er tal­inn hafa brotið sér leið inn um glugga. Einnig rudd­ist múg­ur­inn í gegnum örygg­is­hliðin. Hundruð áttu eftir að fara inn áður en yfir lauk, segir í frétt Washington Post og grunar lög­reglu að þeir sem fyrstir komu inn hafi opnað dyr fyrir félögum sínum fyrir utan.

Þegar inn var komið var farið inn í sali og á skrif­stofur og margt brotið og bramlað.

„Myrðið fjöl­miðla“ stóð á miða sem hengdur var á hurð einnar skrif­stof­unnar. „Við munum ekki hætta“ sagði á öðrum sem skil­inn var eftir á skrif­stofu Nancy Pelosi, for­seta full­trúa­deildar þings­ins.

Fjórir eru látnir að sögn lög­regl­unnar eftir atburð­ina. Einn féll fyrir byssu­skoti en þrír lét­ust af öðrum sökum sem enn hefur ekki verið greint ítar­lega frá.

Um átta í gær­kvöldi að banda­rískum tíma, þegar lög­reglu­mönnum hafði loks tek­ist að fjar­lægja alla upp­reisn­ar­segg­ina úr þing­hús­inu, fylgdu þeir þing­mönnum aftur í þingsal­ina svo þeir gætu haldið vinnu sinni áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár