Boris Johnson greindur með COVID-19

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, hefur greinst með nýju kór­ónu­veiruna sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum.

Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands.
Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands. Mynd: EPA

Boris Johnson, for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, segir frá því á Twitter í morgun að hann hafi greinst með nýju kór­ónu­veiruna sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Hann seg­ist hafa fundið fyrir vægum ein­kennum fyrir um sól­ar­hring og í kjöl­farið var tekið sýni sem reynd­ist jákvætt.

Í mynd­bandi sem hann birtir á Twitter seg­ist hann hafa fengið hita og stöðugan hósta. Honum hafi því verið ráð­lagt að fara í sýna­töku.

[adspot]

Johnson seg­ist vera kom­inn í sótt­kví og vinni nú heima. Hann segir að vegna „galdra nútíma tækni“ muni hann halda áfram að leiða bresku þjóð­ina í bar­átt­unni gegn far­aldr­inum.

Á mynd­band­inu þakkar hann heil­brigð­is­starfs­fólki og öðrum sem vinna að því hörðum höndum að hefta útbreiðslu veirunnar. Þá minnir hann á að það að halda sig heima sé und­ir­staðan fyrir það að stöðva far­ald­ur­inn.

Í Bret­landi hafa 11.800 smit verið stað­fest og 578 manns hafa lát­ist úr COVID-19.

Boris Johnson er 55 ára.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár