Mun „háskalegri röskun“ á veðurfari en talið var kallar á hraðari aðgerðir

Lofts­lags­ráð skorar á íslensk stjórn­völd að fram­fylgja af mun meiri festu þeim ákvörð­unum sem teknar hafa verið í lofts­lags­málum. Markmið með sam­drætti um losun séu óljós og ófull­nægj­andi.

Bráðnun jökla á Íslandi er ein skýrasta birtingarmynd loftslagsbreytinga sem fyrirfinnst.
Bráðnun jökla á Íslandi er ein skýrasta birt­ing­ar­mynd lofts­lags­breyt­inga sem fyr­ir­finnst. Mynd: Pexels

Lofts­lags­að­gerðir íslenskra stjórn­valda eru ekki í sam­ræmi við nýj­ustu vís­inda­gögn. Í til­efni af við­vörun IPCC, milli­ríkja­nefndar Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál, ítrekar Lofts­lags­ráð áskorun til íslenskra stjórn­valda um að fram­fylgja af mun meiri festu þeim ákvörð­unum sem þegar hafa verið teknar og hraða frek­ari stefnu­breyt­ingum og aðgerðum í lofts­lags­málum. „Markmið um sam­drátt í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda fyrir 2030 eru óljós og ófull­nægj­andi. Nauð­syn­legt er að stjórn­völd skýri og útfæri þessi mark­mið nánar.“

Þetta kemur fram í áliti Lofts­lags­ráðs sem sam­þykkt var á fundi þess 9. júní.

[links]Að mati Loft­lags­ráðs er fram­kvæmd aðgerða­á­ætl­unar íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum ómark­viss. Auka þurfi sam­drátt hratt með „sam­stilltu og vel skipu­lögðu átaki allra“. Til að ná því mark­miði þurfi að fara af und­ir­bún­ings- á fram­kvæmda­stig og meta árangur með mun öfl­ugri grein­ingum en nú er beitt. „Lofts­lagsvæn fram­tíð­ar­sýn kallar á nýjar áherslur í fjár­fest­ingum og nýsköpun sem leggja mun grunn að verð­mæta­sköpun í kolefn­is­hlut­lausu hag­kerfi,“ segir í álit­inu.

Lofts­lags­ráð er sjálf­stætt starf­andi ráð sem hefur það meg­in­hlut­verk að veita stjórn­völdum aðhald með fag­legri ráð­gjöf um lofts­lags­mál. Þá er hlut­verk ráðs­ins einnig að hafa yfir­sýn yfir fræðslu og miðlun upp­lýs­inga um lofts­lags­mál til almenn­ings. Ráðið sinnir hlut­verki sínu með því að rýna áætl­anir stjórn­valda sem snerta lofts­lags­mál, stuðla að upp­lýstri umræðu um aðgerðir til að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda og auka kolefn­is­bind­ingu sem og ráð­gjöf um aðlögun að lofts­lags­breyt­ingum.

Alls­herj­ar­mat á hnatt­rænni stöðu og horfum í lofts­lags­málum liggur nú að mestu fyrir, en það er unnið af IPCC sem er alþjóð­leg stofnun sem Ísland er full­gildur aðili að. „Samkvæmt því mati stefnir í mun háska­legri röskun en þegar hefur orðið á þeim stöð­ug­leika í veð­ur­fari sem ein­kennt hefur síð­ustu árþús­undir,“ minnir Lofts­lags­ráð á í áliti sínu. Losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á heims­vísu fer enn vax­andi og hefur aldrei verið meiri.

„Slík röskun er ekki óum­flýj­an­leg,“ bendur Lofts­lags­ráð þó á. „Ráðast þarf í kerf­is­lægar breyt­ingar svo sem með umbylt­ingu orku­kerfa, sam­göngu­kerfa, skipu­lags borga, fjár­mála­kerfa sem og í opin­berri hag­stjórn. Stjórn­völd verða án tafar að skapa umgjörð sem stuðlar að jákvæðum breyt­ingum með mark­vissri stefnu­mótun. Mik­il­vægt er að stjórn­völd nýti þá víð­tæku reynslu og þekk­ingu sem til staðar er hér á landi sem og erlendis til að hraða aðgerðum.“

Skýrslum IPCC er ætlað að upp­lýsa þá sem taka ákvarð­anir og móta stefnu í lofts­lags­málum um vís­inda­lega þekk­ingu á sviði lofts­lags­breyt­inga. Lofts­lags­ráð segir að líta megi á mat 3. vinnu­hóps IPCC sem efni­við sem nýta eigi hér á landi til að auka árangur í bar­átt­unni við lofts­lags­vána.

Helstu skila­boð skýrslu vinnu­hóps­ins, sem kom út í apríl eru:

  • Losun hefur auk­ist á heims­vísu og hefur hún aldrei verið meiri, en hægt hefur á aukn­ing­unni að með­al­tali síð­asta ára­tug að hluta til vegna stjórn­valds­að­gerða.
  • Fyr­ir­liggj­andi aðgerðir á heims­vísu sem og lands­fram­lög til lofts­lags­mála (NDC) duga ekki til að halda hita­stigs­hækkun innan við 2°C og eru fjarri því að ná að halda hækkun við 1,5°C þar sem hámarki í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda þarf að ná árið 2025. Metnaður þarf því að aukast mikið og árangur aðgerða að marg­fald­ast.
  • Hægt er að ná umtals­verðum sam­drætti með mót­væg­is­að­gerðum sem byggja á tækni sem er þegar til. Áfram­hald­andi tækni­þróun er þó afar mik­il­væg.
  • Margar mót­væg­is­að­gerðir eru nú þegar sam­keppn­is­hæfar svo sem notkun end­ur­nýj­an­legrar orku í raf­orku­fram­leiðslu í stað jarð­efna­elds­neytis og hefur kostn­aður dreg­ist mjög mikið saman síð­ustu ár.
  • Víð­feðmar kerf­is­breyt­ingar þurfa að eiga sér stað til að styðja við mót­væg­is­að­gerðir innan geira. Hegðunar- og lífs­stíls­breyt­ingar geta einnig skilað miklum sam­drætti í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda (GHL).
  • Mik­il­vægt er að beita bæði reglu­gerðum og hag­rænum stjórn­tækjum til að hvetja til inn­leið­ingar mót­væg­is­að­gerða og til að draga úr hindr­unum þeirra. Samhæfa þarf fjár­mál hins opin­bera við aðgerðir í lofts­lags­málum.
  • Mik­il­vægt er að ráð­ast í heild­stæða stefnu­mótun í mála­flokknum.
  • Aðgerðir sem miða að því að draga úr losun GHL og auka bind­ingu til að halda hita­stigs­hækkun innan 2 °C munu draga lítið úr hag­vexti. En þegar fjöl­breyttur ávinn­ingur mót­væg­is­að­gerða er tek­inn til greina verður efna­hags­legur ávinn­ingur af aðgerðum og lífs­gæði batna.
  • Sam­legð­ar­á­hrif eru á milli mót­væg­is­að­gerða sem draga úr losun eða auka bind­ingu og sjálf­bærrar þró­unar en mik­il­vægt er að meta áhrif mót­væg­is­að­gerða á nátt­úru og umhverfi (svo sem á líf­fræði­legan fjöl­breyti­leika) og sam­fé­lag (svo sem jöfnuð).
  • Skilvirk stefnu­mörkun, inn­leið­ing sem og til að tryggja sam­fé­lags­lega sátt um aðgerðir byggir á þátt­töku og sam­vinnu stjórn­valda og fjöl­breyttra aðila svo sem almenn­ings og atvinnu­lífs.
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár