Hitabylgjan í Evrópu aðeins „forsmekkurinn að framtíðinni“

Skóg­ar­eldar, vatns­skömmtun og óvenju mikið magn ósons í loft­inu. Allt frá Norð­ur­sjó til Mið­jarð­ar­hafs­ins hefur hvert hita­metið á fætur öðru fallið síð­ustu daga. Og sum­arið er rétt að byrja.

Veðurfréttamaður BBC fer yfir hitamet helgarinnar.
Veð­ur­frétta­maður BBC fer yfir hita­met helg­ar­innar. Mynd: Skjáskot/BBC

Á sumum svæðum í Frakk­landi og á Spáni hefur á síð­ustu dögum verið tíu gráðum heit­ara en með­al­hiti á þessum árs­tíma. Það er ekk­ert smá­ræði, segja sér­fræð­ingar, og að miklir þurrkar að auki á mörgum svæðum í Evrópu, hafi gert illt verra.

Hita­bylgjan for­dæma­lausa miðað við árs­tíma er ekki aðeins bundin við Evrópu heldur hefur um þriðj­ungur Banda­ríkj­anna þurft að fylgj­ast vand­lega með veð­ur­við­vör­unum vegna mik­ils hita síð­ustu daga. Þá hefur skæður hiti hangið yfir Indlandi og Pakistan og fleiri land­svæðum jarðar.

„Við höfum sagt það áður og við segjum það aftur: Vegna lofts­lags­breyt­inga munu hita­bylgjur byrja fyrr, þær eru að verða algeng­ari og ákaf­ari vegna þess að magn gróð­ur­húsa­loft­teg­unda í and­rúms­loft­inu hefur aldrei verið meira. Það sem við erum að sjá núna er hinn óheppi­legi for­smekkur að fram­tíð­inni.“

Þetta sagði Claire Nullis, tals­maður Alþjóða veð­ur­fræði­stof­unnar, um helg­ina. Orð hennar eru ekki sér­stak­lega upp­lífg­andi. Hlut­irnir virð­ast vera að ger­ast hraðar en almenn­ingur átti von á, þrátt fyrir var­úð­ar­orð sér­fræð­inga síð­ustu ár - um að einmitt svona muni áhrif lofts­lags­ham­far­anna birt­ast okkur.

Hita­stigið í Evrópu mun lækka í dag og næstu daga en veð­ur­fræð­ingar vara við því að sam­tímis sé von á mikil úrkomu sem gæti valdið óskunda.

[adspot]

Hún er sögð hafa verið sér­lega skæð og for­dæma­laus, hita­bylgjan sem „bak­aði“ vest­ur­hluta Evrópu um helg­ina. Í Biarritz í Frakk­landi, þar sem sól­dýrk­endur koma saman í júní til að njóta veð­ur­blíð­unnar, fót hita­stigið upp í 42,9 gráður á laug­ar­dag. Svo hár var hit­inn um stærsta hluta lands­ins að franska veð­ur­stofan sendi út við­vörun og bað fólk að sýna aðgát. Langar biðraðir mynd­uð­ust við vatns­renni­brauta­garða. Ljónin í dýra­görð­unum fengju ísköggla með frosnu blóði til að kæla sig. Þótt ljón séu vissu­lega von hitum í sínu nátt­úru­lega umhverfi geta þau ekki leitað sama skjóls­ins fyrir þeim í dýra­görð­unum.

Ýmsum við­burðum, svo sem tón­leikum, var frestað um helg­ina í Frakk­landi, á Spáni og í Portúgal.

Yfir fjör­tíu gráður mæld­ust víða í land­inu og þótt hvass­viðri af Atl­ants­haf­inu sé yfir­leitt ekki fagnað á þessum árs­tíma var mörgum létt að heyra að slíkt væri á leið­inni.

„Þessi hita­bylgja er fyrr á ferð­inni en þekkst hefur frá upp­hafi mæl­inga,“ sagði Matthieu Sorel, veð­ur­fræð­ingur hjá frönsku veð­ur­stof­unni. Hann sagði ljóst að hita­bylgjan mark­aði áhrif lofts­lags­breyt­inga.

Hitinn var ekki aðeins óbæri­legur að margra mati, sér­stak­lega þeirra sem búa ekki við þann lúxus að kom­ast inn í loft­kæld hús, heldur mynd­að­ist mikið magn hinnar skað­legu loft­teg­undar ósóns er svifryk dans­aði í brenn­heitum sól­ar­geisl­unum. Þetta varð til þess að dæmi eru um að fólk hafi fundið fyrir önd­un­ar­erf­ið­leikum, hóstað og fundið brjóst­verk.

Vatnsskortur og kýr í vanda

Frétta­miðlar í Evrópu hafa einnig greint frá því að vatn hafi verið skammtað, m.a. á Norður-Ítalíu. Að afloknu þurru vori var snemm­bú­inni hita­bylgju ekki bæt­andi á vatns­bú­skap­inn.

Ítalskar kýr eru líkt og mann­fólkið ekki upp á sitt besta við þessar of heitu aðstæður. Kúa­bændur segja nytin kúnna hafa minnkað um 10 pró­sent í hita­bylgj­unni. Kýr þurfa að drekka tugi lítra af vatni á dag til að mjólka vel sam­kvæmt nútíma mæli­kvörðum. En vatnið er af skornum skammti.

Hið óvenju­lega veður varð til þess að skóg­ar­eldar kvikn­uðu á nokkrum stöðum á Spáni í lok síð­ustu viku og eyddu slökkvi­liðs­menn helg­inni í bar­áttu við þá. Á landa­mær­unum við Portúgal voru þeir sér­lega miklir og rýma þurfti fjórtán bæi er eld­tungur nálg­uð­ust óðfluga. Um 20 þús­und hekt­arar lands urðu eld­unum að bráð.

Í Frakk­landi kvikn­aðu einnig gróð­ur­eldar, m.a. vegna eld­fimra her­æf­inga á her­stöð í suð­ur­hluta lands­ins. Um 200 hekt­arar lands brunnu áður en það tókst að slökkva í síð­ustu glæð­unum.

Franskir bændur fóru ekki var­hluta af hita­bylgj­unni. Þeir sem vanir eru að vinna úti allan dag­inn í júní sögð­ust aðeins hafa getað aðhafst utandyra snemma á morgn­anna og á kvöldin. Miður dag­ur­inn var ein­fald­lega of heitur. Í gróð­ur­húsum þar sem tómatar og annað græn­meti er ræktað, hækk­aði hit­inn skarpt, fór í 55 gráður á laug­ar­dag. Í slíkum hita er alls ekki óhætt að vinna.

Þótt Bret­landseyjar hafi ekki „bak­ast“ í hit­anum síð­ustu daga voru þar engu að síður met slegin. Föstu­dag­ur­inn var sá heit­asti frá upp­hafi mæl­inga, fór yfir 30 stig.

Sér­fræð­ingar frönsku veð­ur­stof­unnar segja að vegna lofts­lags­breyt­inga séu hita­bylgjur eins og þessar fimm til tíu sinnum lík­legri en fyrir einni öld síðan. Þá er hit­inn í slíkum bylgjum að með­al­tali 1,8-4 gráðum meiri en áður.

Og hátt hita­stig er ekki eina hættan sem fylgir breyt­ingum á lofts­lagi af manna­völdum. Flóð eru orðin tíð­ari og verða enn tíð­ari. Það sama má segja um öfga­fulla þurrka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

loftslagsbreytingar

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár