Hægt að sjá nákvæmlega hvernig verð á íbúðum þróast

Ný þjón­usta gerir not­endum hennar kleift að fylgj­ast nákvæm­lega með verði fast­eigna. Unnið er jafn­óðum úr þing­lýstum samn­ingum.

Keldan og Gangverð hófu nýverið sam­starf. Sam­starfið felst í því að áskrif­endur Keld­unnar geta nálg­ast nýja þjón­ustu sem kall­ast „Verð­vísir Fast­eigna”. Verð­vísir er nýtt fast­eigna­mat sem byggir á töl­fræði­grein­ingu á raun­sölu­verðum eigna úr þing­lýstum kaup­samn­ingum, þar sem eig­in­leikar eigna á borð við stærð, gerð og stað­setn­ingu ráða mestu og vægi ein­stakra áhrifa­þátta ræðst af reikni­reglu sem lág­markar spá­skekku.

Þetta er í fyrsta skipti sem svo nákvæm gögn eru tekin saman með þessum hætti, en not­endur geta séð hvert verð var á eignum í nýjustum við­skiptum.

Keldan rekur m.a. fjöl­miðla­vakt á Vakt­ar­inn.is og vef­inn Keldan.is sem er upp­lýs­inga­veita sér­sniðin að íslensku fjár­mála- og við­skipta­lífi og veitir ein­stak­lingum og fyr­ir­tækjum aðgang að opin­berum upp­lýs­inga­söfnum eins og hluta­fé­laga­skrá og árs­reikn­inga­skrá RSK.

Gangverð er tækni­fyr­ir­tæki á sviði töl­fræði­legrar grein­ingar, stofnað 2011. Auk Verð­vísis fast­eigna bein­ist vöru­þróun Gang­verðs að mörk­uðum fyrir not­aða bíla og skráð verð­bréf. Eigendur Gang­verðs eru stofn­endur og Nýsköp­un­ar­sjóður atvinnu­lífs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár