Guðrún Johnsen ráðin efnahagsráðgjafi VR

Stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins hefur ráðið Guðrúnu Johnsen sem efna­hags­ráð­gjafa. Hún mun einnig sinna rann­sókn­ar­störfum á sviði rekstr­ar­hag­fræði og fjár­mála- og stjórn­ar­hátta fyr­ir­tækja.

Guðrún Johnsen.
Guðrún Johnsen. Mynd: Arion banki

Guðrún Johnsen hag­fræð­ingur hefur verið ráðin í hluta­starf sem efna­hags­ráð­gjafi VR. Þar mun hún vera for­manni, fram­kvæmda­stjóra og stjórn þessa stærsta stétt­ar­fé­lags lands­ins „til ráð­gjafar í rann­sóknum og stefnu­mótun tengdum kjara­málum.“

Guðrún hefur setið í stjórn Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna fyrir hönd VR frá því í ágúst í fyrra og í til­kynn­ingu segir Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, það mik­inn feng fyrir starf og bar­áttu VR að hafa fengið Guðrúnu til liðs við félagið.

Guðrún á að baki um 20 ára feril sem háskóla­kenn­ari við Háskóla Íslands, Háskól­ann í Reykjaví, og Osló­ar­há­skóla og sem rann­sak­andi á sviði fjár­mála og efna­hags­mála hjá alþjóð­legum stofn­unum. Hún hefur lokið dokt­ors­prófi í hag­fræði frá ENS í Frakk­landi og meistara­gráðum í bæði töl­fræði og hag­nýtri hag­fræði frá Uni­versity of Michigan. Í til­kynn­ing­unni segir að hún sé „ein fárra hag­fræð­inga sem frá árinu 2005 var­aði við skulda­krepp­unni miklu sem raun­gerð­ist árið 2008 og frá 2009-2010 starf­aði Guðrún hjá Rann­sókn­ar­nefnd Alþingis, en eftir hana liggja margar greinar, bók­arkaflar og bók um fjár­málakrepp­una miklu.“

[adspot]Guðrún sat í stjórn Arion banka í tæp­lega átta ár en var látin hætta þar síðla árs 2017.Hún greiddi meðal ann­ars atkvæði í stjórn­inni gegn umdeildri sölu á hlut bank­ans í Bakka­vör í nóv­em­ber 2015 og lagði það síðan til á fundi stjórnar Arion banka 14. nóv­em­ber 2018 að ­gerð yrði könnun á sölu­­ferli eign­­ar­hlut­­ar­ins. Sú til­­laga var felld.

[links]Í minni­blaði sem Banka­sýsla rík­is­ins skrif­aði Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, vegna þeirrar sölu, sem stofn­unin mat að rík­is­sjóður hafi tapað 2,6 millj­örðum króna á, kom fram að degi eftir að Guð­rún lagði fram til­lög­una hafi henni verið tjáð að „breyt­ingar væru fyr­ir­hug­að­ar á stjórn bank­ans og [henn­­ar] að­komu væri ekki óskað“.

Ragnar Þór, for­maður VR, hefur einnig verið mik­ill áhuga­maður um að fram fari rann­sókn á söl­unni á Bakkavör, en Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna var á meðal þeirra sem seldu. Ragnar Þór hefur opin­ber­lega sagt að sú sala gæti verið eitt stærsta fjársvika­mál Íslands­sög­unnar og farið sam­hliða fram á opin­bera rann­sókn á hvort líf­eyr­is­sjóðir hafi verið blekktir.

Guðrún skrifar reglu­lega í Vís­bend­ingu, viku­legt rit um efna­hags­mál, við­skipti og nýsköpun sem Kjarninn miðlar gefa út.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár