Segja Hvalárvirkjun munu rýra víðerni Ófeigsfjarðarheiðar um nær helming

Nátt­úru­vernd­ar­sam­tökin ÓFEIG fengu vís­inda­menn frá háskól­anum í Leeds til að meta áhrif virkj­unar.

Segja Hvalárvirkjun munu rýra víðerni Ófeigsfjarðarheiðar um nær helming
Fram­kvæmdir Vinna hófst við und­ir­bún­ing Hval­ár­virkj­unar í sumar. Mynd: Elías Svavar Kristinsson

Mann­virki Hval­ár­virkj­unar myndu rýra víð­erni Ófeigs­fjarð­ar­heiðar um 45 til 48,5 pró­sent, að mati vís­inda­manna við háskól­ann í Leeds. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Nátt­úru­vernd­ar­sam­tök­unum ÓFEIG, sem barist hafa gegn virkj­un­inni.

Samtökin fengu rann­sókn­ar­setrið Wildland Research Institute (WRi) við háskól­ann í Leeds til að kort­leggja víð­ernin síð­ast­liðið sumar. Að sögn þeirra notar setrið nákvæmar staf­rænar aðferðir til að kort­leggja og skil­greina víð­erndi.

„Nið­ur­staða grein­ing­ar­innar tekur af öll tví­mæli um að áform um Hval­ár­virkjun hafa veru­lega nei­kvæð áhrif á heild­stæða víð­er­na­upp­lifun Ófeigs­fjarð­ar­heiðar og næsta nágrennis,“ segir í til­kynn­ingu frá sam­tök­unum.

Fram kemur að skerð­ingin fælist í aðkomu­vegum fyrir þunga­vinnu­vélar, öðrum nýjum vegum, stíflum, yfir­föllum, lón­stæðum, skurðum, raf­línum og stöðv­ar­húsi. Þá kæmi einnig til minnk­andi rennsli í Rjúkandi, Hvalá og Eyvind­ar­fjarð­ará ásamt sam­svar­andi áhrifum á fossa á svæð­inu. Áhrifin á foss­ana eru hins vegar ekki tekin með í mæl­ingum WRi. 

„Þeir dr. Stephen Carver og Oliver Kenyon hjá WRi kynntu nið­ur­stöðu rann­sókn­ar­innar á fundi ÓFEIGAR nátt­úru­verndar í dag,“ segir í til­kynn­ing­unni. „Í máli þeirra kom fram að kort­lagn­ing víð­ern­anna bygg­ist á grein­ingu á staf­rænum þrí­víðum landupp­lýs­inga­gögnum, land­notkun, fjar­lægð frá mann­virkjum og aðgangs­stöðum vél­knú­inna far­ar­tækja. Gögnin eru notuð til að greina með mik­illi nákvæmni sýni­leika mann­virkja sem geta haft áhrif á víð­er­na­upp­lifun. WRi hefur þróað for­rit til þess­arar grein­ingar sem byggir á svip­uðum aðferðum og for­rit tölvu­leikja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Hvalárvirkjun

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
2
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár