Fyrrverandi fjármálastjóri Samherja vissi ekki um mútugreiðslurnar í Namibíu

„Ég var búinn að vinna svo lengi með þessu fólki og ég á bara svo erfitt með að trúa þessu,“ segir Sig­ur­steinn Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Samherja. Hann seg­ist ekki hafa vitað af mútu­greiðslum fyrr en málið var til umfjöll­unar í fjöl­miðlum.

Fyrrverandi fjármálastjóri Samherja vissi ekki um mútugreiðslurnar í Namibíu
Vissi ekki um mút­urnar Sig­ur­steinn Ingv­ars­son seg­ist ekki hafa vitað að mútu­greiðsl­urnar ættu sér stað hjá Samherja. Mynd: samherji.is

Fyrr­ver­andi fjár­mála­stjóri Samherja, Sig­ur­steinn Ingv­ars­son, vissi ekki að fyr­ir­tækið hefði greitt mörg hund­ruð millj­ónir króna í mútur í Namibíu til að kom­ast yfir hesta­makríl­skvóta. „Nei,“ segir Sig­ur­steinn þegar hann er spurður að því hvort hann hafi vitað um mútu­greiðsl­urnar. Hann seg­ist fyrst hafa séð upp­lýs­ingar um mútu­greiðsl­urnar í fjöl­miðlum.

Sig­ur­steinn hætti sem fjár­mála­stjóri árið 2016 eftir að hafa starfað hjá Samherja  í 14 ár. Sig­ur­steinn var meðal ann­ars not­andi (norska: disponent), hafði  form­leg rétt­indi til að milli­færa og stýra banka­reikn­ingi Kýp­ur­fé­lags­ins Esju Seafood í norska DNB bank­anum, sam­kvæmt upp­lýs­ingum úr Sam­herj­a­skjöl­unum sem Stundin hefur unnið fréttir upp úr í sam­starfi við Wikileaks, Kveik og Al Jazeera.

Sig­ur­steinn segir aðspurður að hann hafi ekki vitað að hann hefði haft leyfi til að milli­færa fé af reikn­ingum Esju Seafood. „Nei. Ok, ég vissi það ekki. Þetta kemur mér veru­lega á óvart. Ég þekki þetta ekki.“

Þetta félag Samherja á Kýpur greiddi hálfan millj­arð í mútur til félags­ins Tunda­vala Invest­ments í Dubaí. Sig­ur­steinn vissi þetta ekki segir hann en greiðsl­urnar til Tunda­vala hófust áður en hann hætti hjá Samherja. 

Treysti samstarfsfólki

Sig­ur­steinn vill að svo komnu máli ekki svara því hvernig honum varð um að sjá þessar upp­lýs­ingar í fjöl­miðlum. „Ég ætla nú bara að bíða og sjá hvað rann­sóknir leiða í ljós. Ég held að ég ætli ekk­ert að tjá mig um þetta fyrr.“

Blaða­maður: „En þú varst fjár­mála­stjóri félags­ins?“

„Ég fylgd­ist ekki með ein­staka greiðslum úti í heimi“

Sig­ur­steinn: „Já, en það eru 130 félög í sam­stæð­unni og ég treysti bara þeim upp­gjörum sem komu frá end­ur­skoð­endum í hverju landi, og að þeir fjár­mála­stjórar sem væru að vinna í þessum löndum úti, og allan heim, væru að vinna vinn­una sína.“

Blaða­maður: „Þú sást aldrei neinar heim­ildir sem bentu til þess að þessar greiðslur hefðu átt sér stað?“

Sig­ur­steinn: „Nei, ég fylgd­ist ekki með ein­staka greiðslum úti í heimi. Ég fylgd­ist bara með því upp­gjörin væru end­ur­skoðuð. Ég var ekki að velta því fyrir mér hvert greiðsl­urnar fóru í hverju landi fyrir sig. Einungis end­ur­skoðuð upp­gjör fengu að fara inn í sam­stæðu Samherja. Þetta er nátt­úru­lega gríð­ar­lega stór sam­stæða. Ég fylgd­ist með rekstr­inum en ekki ein­staka pen­inga­færslum.“

Tekið skal fram að ekk­ert í Sam­herj­a­skjöl­unum sýnir fram á eða bendir til að Sig­ur­steinn hafi komið að því að skipu­leggja þessar mútu­greiðslur. Engir tölvu­póstar, skjöl eða önnur gögn sýna fram á aðkomu hans að mút­unum. Hann var hins vegar fjár­mála­stjóri sam­stæðu Samherja og einn hæst­setti stjórn­andi félags­ins.

Veit ekki hversu margir vissu um múturnar

Þegar Sig­ur­steinn er spurður að því hversu margir innan Samherja hafi vitað um mútu­greiðsl­urnar að hans mati, fyrst hann sem fjár­mála­stjóri vissi ekki  um þær svarar hann: „Ég bara þekki það ekki.“

Blaða­maður: „Þetta var aldrei rætt á neinum vett­vangi?“

Sig­ur­steinn: „Auðvitað var rætt um þessi félög og farið yfir rekst­ur­inn almennt, en dag­legur rekstur er bara í við­kom­andi landi […] En eins og ég segi þá finnst mér bara eðli­legt á þess­ari stundu að málið verði rann­sakað. Ég tjái mig kannski meira um þetta eftir það.“

Að lokum seg­ist hann eiga erfitt með að trúa því að þetta hafi gerst: „Ég var búinn að vinna svo lengi með þessu fólki og ég á bara svo erfitt með að trúa þessu.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár