Trump gefur Tyrkjum skotleyfi á Norður-Sýrland

Banda­rísk stjórn­völd kúventu í gær afstöðu sinni til inn­reiðar tyrk­neska hers­ins í Norður-Sýrland. Haukur Hilm­ars­son er tal­inn hafa fallið í árásum Tyrkja á svæð­inu. Donald Trump hefur dregið stuðn­ing Banda­ríkj­anna við her­sveitir Kúrda til baka.

Trump gefur Tyrkjum skotleyfi á Norður-Sýrland
Donald Trump og Haukur Hilm­ars­son Haukur er tal­inn hafa látið lífið í árásum Tyrkja.

Tyrk­neski her­inn mun að lík­indum auka ítök sín í Norður-Sýrlandi og ráð­ast gegn her­sveitum Kúrda eftir kúvend­ingu frá Donald Trump Banda­ríkja­for­seta í gær. Haukur Hilm­ars­son er sagður hafa lát­ist í slíkum hern­aði í fyrra þar sem hann studdi sýr­lenska Kúrda í bar­áttu við hryðju­verka­sam­tökin ISIS.

Banda­rísk stjórn­völd til­kynntu í gær­kvöldi um meiri­háttar stefnu­breyt­ingu gagn­vart hern­að­ar­að­gerðum Tyrkja í Norður-Sýrlandi. Eftir sím­tal við Recep Erdogan, for­seta Tyrk­lands, hefur Trump ákveðið að draga her­lið sín frá svæð­inu, þar sem þau hafa í sam­vinnu við her­sveitir sýr­lenskra Kúrda hrakið ISIS frá svæð­inu. Tyrkir líta á sveitir Kúrda sem hryðju­verka­hópa og hafa lengi beitt sér fyrir því að Banda­ríkin hætti stuðn­ingi sínum við þær.

Hinn 6. mars 2018 bár­ust fréttir þess efnis að Haukur Hilm­ars­son hefði fallið í árás Tyrk­lands­hers á Afrin-hérað í Norð­vestur-Sýrlandi, en þangað var Haukur kom­inn til að leggja Rojava-bylt­ingu sýr­lenskra Kúrda lið. Mikil óvissa ríkir um afdrif hans og hafa vinir og fjöl­skylda ekki fengið svör um hvað raun­veru­lega átti sér stað.

Í norð­ur­hluta Sýrlands hafa íbúar stofnað til sjálf­stjórn­ar­ríkis innan Sýrlands, sem kallað er Rojava. Stjórn­ar­skrá rík­is­ins var sam­þykkt 2014 og vakti hún athygli fyrir áherslur á trú­frelsi, jafn­rétti kynj­anna, rétt­indi minni­hluta­hópa og beint lýð­ræði.

Her­sveitir Kúrda á svæð­inu kall­ast SDF og inni­halda meðal ann­ars her­sveit­ina sem Haukur gekk til liðs við. Með stuðn­ingi Banda­ríkja­hers hefur SDF tek­ist að sigra ISIS-hópa í Rojava, auk ann­arra hópa ísla­mista tengda Al-Qaeda og sýr­lenska hópa sem studdir eru af Tyrkjum. Tyrknesk stjórn­völd telja her­sveit­irnar vera tengdar kúrdíska verka­manna­flokknum PKK sem barist hefur fyrir sjálf­stæði Kúr­distan og er skil­greindur sem hryðju­verka­hópur af NATO.

Í til­kynn­ingu frá Hvíta hús­inu kemur einnig fram að stjórn­völd hafi þrýst á Frakk­land, Þýska­land og önnur Evr­ópu­ríki að taka aftur við ISIS her­mönnum sem komu þaðan upp­haf­lega, en að slíku hafi verið neitað. Banda­ríkin muni ekki halda þeim fang­elsuðum á kostnað skatt­borg­ara og því verði þeir afhentir tyrk­neskum yfir­völdum, sem verði ábyrg fyrir öllum þeim sem hand­sam­aðir voru síð­ustu tvö ár í átök­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
2
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár