Baráttumaður fyrir landamæralausum heimi

Aktí­vist­inn Haukur Hilm­ars­son er sagður hafa fallið í inn­rás tyrk­neska hers­ins í norð­ur­hluta Sýrlands, 31 árs að aldri. Haukur á að baki merki­legan feril sem bar­áttu­maður fyrir flótta­mönnum, sem sumir þakka honum líf sitt. Vinir hans og fjöl­skylda minn­ast hans sem hug­sjóna­manns sem fórn­aði öllu fyrir þá sem minna mega sín.

Mótmælendur reyndu frelsun
Mót­mæl­endur reyndu frelsun Stór hópur mót­mæl­enda gerði aðsúg að lög­reglu­stöð­inni við Hverf­is­götu þegar Haukur var hand­tek­inn. Mynd: Pressphotos

Hug­sjóna­maður með ljóns­hjarta, bar­áttu­maður fyrir þeim sem minnst mega sín, til­bú­inn til að fórna öllu fyrir vel­ferð ann­arra. Svona lýsa vinir og fjöl­skylda Hauki Hilm­ars­syni aktí­vista, sem sagður er hafa fallið í átökum í norð­ur­hluta Sýrlands, 31 árs að aldri. Þrátt fyrir ungan aldur hefur Haukur komið tölu­vert við sögu íslenskra stjórn­mála í rúman ára­tug, meðal ann­ars fyrir þátt sinn í bús­á­halda­bylt­ing­unni og bar­áttu fyrir rétt­indum flótta­manna, sem margir þakka honum líf sitt. Barátta hans leiddi hann í fremstu víg­línu vand­ans, þar sem hann varði hug­sjón­ina í bar­dögum við ISIS.

Myndin af HaukiHersveit YPG sendi út þessa mynd af Hauki þegar til­kynnt var um að hann hefði fallið í árás tyrk­neska hers­ins í Afrin.

Lítið er vitað um atburði dags­ins 24. febr­úar, þegar Haukur er sagður hafa fallið í sprengjuregni tyrk­neskra her­sveita ásamt tveimur öðrum úr hans her­sveit. Heim­ildum ber saman um …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár