Innstæður Íslendinga rúmlega tvöfölduðust árið sem ríkið ábyrgðist innstæður

Þrátt fyrir að langt sam­fellt góð­æri hafi staðið yfir á Íslandi árin áður en COVID-19 far­ald­ur­inn skall á þá hefur umfang inn­stæðna sem geymdar eru á íslenskum banka­reikn­ingum en ekki náð sömu krónu­tölu og í árs­lok 2008.

Geir H. Haarde, þáverandi forsætisráðherra, ávarpaði þjóðina sama dag og neyðarlög voru sett og ákveðið var að tryggja allar innstæður í innlendum bönkum.
Geir H. Haarde, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, ávarp­aði þjóð­ina sama dag og neyð­ar­lög voru sett og ákveðið var að tryggja allar inn­stæður í inn­lendum bönkum. Mynd: Skjáskot

Þegar neyð­­ar­lögin voru sett 6. októ­ber 2008 voru inn­­­stæður í bönkum gerðar að for­­gangs­­kröfum í slitabú þeirra banka sem féllu í kjöl­far­ið, og lögin náðu til. Sam­hliða gaf rík­­is­­stjórn Íslands út yfir­­lýs­ingu um að allar inn­­­stæður á Íslandi væru tryggðar og á grund­velli þeirrar yfir­­lýs­ingar voru inn­­­lendar inn­­­stæður færðar með handafli inn í nýja banka sem stofn­aðir voru á grunni hinna fölln­u.

[adspot]Yfir­­lýs­ingin hafði þó aldrei haft neitt laga­­legt gildi, heldur byggði á því að stjórn­­völd höfðu sýnt það í verki að þau myndu tryggja inn­­­stæður ef á það myndi reyna.

Í sept­em­ber 2016 ákvað rík­is­stjórn Íslands að fella yfir­lýs­ing­una um ábyrgð rík­is­sjóðs á inn­stæðum úr gildi, en þá átti ríkið allt hlutafé í tveimur af þremur stærstu bönkum lands­ins og 13 pró­sent hlut í þeim þriðja.

Fyrir vikið var ríkið eig­andi að 80 pró­sent af allri grunn fjár­mála­þjón­ustu lands­ins.

Tvöfölduðust á hrunárinu

Í nýj­ustu útgáfu Tíundar, frétta­blaðs Skatts­ins, er fjallað um þróun inn­stæðna hér­lendis síð­ast­lið­inn rúma ára­tug.

[links]Þar er bent á að árið 2007, ári fyrir banka­hrunið, hafi alls 75.627 fjöl­skyldur talið fram 461,8 millj­arða króna í inn­stæðum á inn­lendum reikn­ingum og alls 3.630 fjöl­skyldur töldu fram 3,1 millj­arð í inn­stæður fyrir börn. „Ári síðar, í hrun­inu, voru inn­stæður 183.765 fjöl­skyldna árit­aðar á skatt­fram­tal en þá voru inn­stæður 933,7 millj­arðar og inn­stæður barna um 24,1 millj­arður. Inn­stæður juk­ust því um 471,9 millj­arða eftir að þær voru árit­aðar eða 102,2 pró­sent og inn­stæður barna um 21 millj­arð.“

Næstu árin minnk­uðu inn­stæð­urnar jafnt og þétt, eða alls um 40,5 pró­sent til árs­ins 2013. Það sama gilti um inn­stæður barna, sem dróg­ust saman um 21,1 pró­sent. Í nýja góð­ær­inu, sem hófst af alvöru 2013, fóru inn­stæð­urnar svo að vaxa á ný.

Lands­menn 782 millj­arða króna á inn­lendum banka­reikn­ingum í árs­lok árið 2019. Inn­stæður höfðu vaxið um 42,8 millj­arða eða 5,8 pró­sent frá árinu áður. Í umfjöll­un­inni í Tíund segir að þrátt fyrir síð­asta góð­ærið, sem slær hinu fyrra sem átti sér stað fyrir hrun að mörgu leyti við, eigi „ein­stak­lingar enn 151,6 millj­örðum minna á banka­reikn­ingum en þeir áttu í árs­lok árið 2008, árið sem fjár­mála­mark­aðir hrundu og gríð­ar­legir fjár­munir töp­uð­ust.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hrunið

InnlentHrunið

Segir Margréti leik­stjóra ekk­ert vita um málið: „Þetta er bara sóða­skapur“

Atli Þór Fanndal segir að leik­stjóri Baráttan um Ísland viti „greini­lega ekk­ert um þessi mál,“ en hún blæs á gagn­rýni á heim­ild­ar­mynd­inni. Mikil óánægja gætir á sam­fé­lags­miðlum vegna heim­ild­ar­mynd­ar­innar Baráttan um Íslands sem sýnd var í tveimur pörtum á RÚV á dög­unum, í til­efni af 15 ára afmæli Hrunsins. Gagn­rýnin bein­ist helst að efn­is­tökum mynd­ar­innar, að of mikil áhersla hafi...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár