5.632 íslenskar fjölskyldur áttu 24 milljarða á erlendum bankareikningum

Upp­lýs­ingar um erlenda banka­reikn­inga Íslend­inga voru í fyrsta sinn færðar á sund­ur­lið­un­ar­blað með fram­tali á árinu 2018. Við það þre­fald­að­ist fjöldi þeirra sem gáfu upp inn­stæður í erlendum bönkum.

Lengi hefur tíðkast að safna peningum í sparibauka, og leggja þá svo inn á innstæðureikninga.
Lengi hefur tíðkast að safna pen­ingum í spari­bauka, og leggja þá svo inn á inn­stæðu­reikn­inga. Mynd: 123rf.com

Í árs­lok 2019 áttu lands­menn 782 millj­arða króna á inn­lendum banka­reikn­ingum. Inn­stæð­urnar uxu um 42,8 millj­arða króna frá lokum árs­ins á undan.

Auk inn­stæðna í inn­lendum bönkum áttu 5.632 fjöl­skyldur á skatt­grunn­skrá hér á landi 24 millj­arða króna á erlendum banka­reikn­ingum.

Þetta kemur fram í umfjöllun um álagn­ingu ein­stak­linga á árinu 2020 í Tíund, frétta­blaði Skatts­ins, sem Páll Kolbeins rekstr­ar­hag­fræð­ingur skrifar.

Þrátt fyrir að þeim sem töldu fram erlendar inn­stæður hafi fjölgað um 627 milli ára þá lækk­uðu inn­stæð­urnar sjálfar um 1,5 millj­arða króna. Þær eru færðar til eignar á skatt­fram­tali í íslenskum krónum á kaup­gengi í árs­lok. Veiking íslensku krón­unnar á því tíma­bili sem um ræðir vigtar því inn í lækkun á virði erlendra inn­stæðna þegar þær eru umreikn­aðar í íslenskar krónur.

[adspot]Í umfjöllun Páls í Tíund kemur fram að á árinu 2018 hafi inn­stæður í erlendum bönkum auk­ist um 74,1 pró­sent á milli ára og sam­hliða þre­fald­að­ist fjöldi þeirra sem áttu inn­stæður. Ástæðan var ekki sú að íslenskir rík­is­borg­arar hafi fært óeðli­lega mikið magn fjár­muna inn á erlenda banka­reikn­inga heldur að vegna þess árs voru upp­lýs­ingar um erlenda banka­reikn­inga færðar í fyrsta skipti inn á sund­ur­lið­un­ar­blað með fram­tali.

Uppgefnar eignir erlendis aukast

Bein fjár­muna­eign Íslend­inga erlendis jókst um tæp­lega 58 millj­arða króna á árinu 2019 og var 666 millj­arðar króna um síð­ustu ára­mót. Frá lokum árs 2017 hefur hún auk­ist um 116 millj­arða króna, sam­kvæmt hag­­tölum frá Seðla­­banka Íslands.

[links]Mestar eru upp­­­gefnar fjár­muna­eignir Íslend­inga í Hollandi, en þar eiga inn­­­lendir aðilar alls 357 millj­­arða króna. Upp­­­gefnar eignir lands­­manna á þekktum aflandseyjum hafa dreg­ist mikið saman á und­an­­förnum árum. Þannig er fjár­­muna­­eign inn­­­lendra aðila á Bresku Jóm­frú­­areyj­un­um, sem inn­i­heldur með ann­­ars Tortóla, sögð vera 21 millj­­ónir króna í tölum Seðla­­banka Íslands, sem er svipað og síð­ast­liðin ár. Í árs­­lok 2015 voru 32 millj­­arðar króna í eigu Íslend­inga sagðir vera vistaðir í eyja­kla­s­an­­um.

Skrán­ingu á erlendri fjár­­­­muna­­­­eign Íslend­inga var breytt fyr­ir­ nokkrum árum síð­­­­­­­an. Nú eru gefnar upp­­­­lýs­ingar um eign í færri löndum en áður en ­flokk­­­­ur­inn „óflokk­að“ hefur stækk­­­­að. Áður var hægt að sjá til að mynda hver bein fjár­­­­muna­­­­eign Íslend­inga er á Cayman-eyj­um, Mön, Jersey, Guernsey og Má­ri­­­­tí­us. Það er ekki hægt leng­­­­ur.

Sá hluti fjár­­muna Íslend­inga erlendis sem eru óflokk­aðir hefur nán­ast þre­fald­ast á nokkrum árum. Í lok árs 2017 var hann met­inn á tæpa 25 millj­arða króna en um síð­ustu ára­mót var sú upp­hæð komin upp í rúm­lega 72 millj­arða króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár