Hinir miklu pólitísku leikir

Vinstri græn eru póli­tískt sætasta stelpan á ball­inu í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. Mikið er lagt upp úr því að sann­færa flokk­inn um að hann eigi meira sam­eig­in­legt með höf­uð­and­stæð­ingi sínum en hann hafi áttað sig á, og óábyrgt sé að gera ekki mála­miðl­anir.

Það er patt­staða í íslenskum stjórn­málum og engin hefð­bundin leið út úr henni í aug­sýn. Leikja­fræð­ingar stjórn­mála­flokka skipt­ast á að greina landið og segja öðrum hvað sé aug­ljós­lega það eina í stöð­unni, hverju kjós­endur hafi verið að kalla eftir og hvað sé póli­tískur ómögu­leiki. Flestir leikja­fræð­ing­arnir eru, kannski eðli­lega, innan þess flokks sem mótað hefur íslenskt sam­fé­lag og stjórn­sýslu, og er vanur því að stýra báðu. Þ.e. Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur sagt að hann vilji mynda „sterka rík­is­stjórn“ á Íslandi. Nokkuð ljóst er að það í því felst að ná fleirum að borð­inu en Bjartri fram­tíð og Viðreisn, enda myndi rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og þeirra tveggja flokka ein­ungis vera með eins manns meiri­hluta.

Viðreisn hefur úti­lokað að setj­ast í rík­is­stjórn með bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki og nær ómögu­legt verður að telj­ast að Björt fram­tíð sam­þykki að verða þriðja hjólið undir þeim vagni.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn þyrfti að gefa ansi mikið eftir til að mynda hina tæpu þriggja flokka miðju-hægri stjórn með eins manns meiri­hlut­ann. Þess vegna róa flokks­menn, Morg­un­blaðið og aðrir íhalds­sinn­aðir áhrifa­menn sem þátt taka í umræð­unni nú að því fullum fetum að fá Vinstri græna um borð í sterka rík­is­stjórn undir for­sæti Bjarna. Í þeirri leikja­fræði felst líka orð­ræða um að nú þurfi stjórn­mála­flokkar að sýna ábyrgð, koma sér saman um stuttan og hnit­mið­aðan stjórn­ar­sátt­mála um helstu mál sem fram undan séu á kom­andi kjör­tíma­bili. Það sem aðskilji flokk­anna eigi að taka út fyrir sviga og halda utan stjórn­ar­sam­starfs.

Lykilverkefni og engar breytingar

Þessi skila­boð komu til að mynda mjög skýrt fram í frétta­skýr­ingu og for­síðu­frétt sem birt­ist í Morg­un­blað­inu á laug­ar­dag. Fyr­ir­sögnin var: „Fá en stór lyk­il­verk­efni“.

Þar sagði að nást „verði eins konar sam­nefn­ari um lyk­il­mál sem skipti grund­vall­ar­at­riði en taka önnur mál, sem skipti minna máli, út fyrir sviga þannig að hver þing­flokkur eða ein­stakir þing­menn flytji slík mál á Alþingi án þess að um stjórn­ar­frum­vörp verði að ræða.“

Þau mál sem þar er rætt um sem lyk­il­mál eru nokkuð skýr. Á meðal þeirra eru end­ur­reisn heil­brigð­is­kerf­is­ins, fjár­fest­ing í mennta­kerf­inu, stór­aukin önnur inn­viða­fjár­fest­ing, lausnir á bráða­vanda á hús­næð­is­mark­aði og sam­komu­lag um aðgerðir í vinnu­mark­aðs­málum. Sam­an­dregið, mál sem allir stjórn­mála­flokkar á Íslandi eru nokkuð sam­mála um, og allar rík­is­stjórnir óháð sam­setn­ingu myndu ráð­ast í á næsta kjör­tíma­bili.

Í útvarps­við­tali 8. maí 2016 sagði Bjarni Bene­dikts­son að helstu kosn­inga­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kosn­ing­unum sem fram undan voru yrðu að verja stöð­ug­leika, standa gegn kerf­is­breyt­ingum og nýrri stjórn­ar­skrá. Því næst myndi flokkur hans beita sér fyrir bættri stöðu ungs fólks í vel­ferðar- og heil­brigð­is­málum.

Og það er Stein­grímur J. Sig­fús­son, fyrr­ver­andi for­maður Vinstri grænna, sem virð­ist nú heilla Sjálf­stæð­is­menn mest. Sjálf­stæð­is­menn segja í sam­tölum að hann hafi oft sýnt það í verki að hann er til­bú­inn að gera mála­miðl­anir fyrir sitt heima­kjör­dæmi. Þar nefna þeir t.d. mála­miðl­anir þegar kom að stór­iðju­upp­bygg­ingu á Bakka og olíu­leit á Dreka­svæð­inu. Þar hafi verið gef­inn afsláttur af öðrum stefnu­málum Vinstri grænna – umhverf­is­málum – til að koma á fót verk­efnum í kjör­dæmi Stein­gríms. Það sé í raun ekki langt á milli hans og Sjálf­stæð­is­flokks­ins þegar kemur að sjáv­ar­út­vegs-, land­bún­aðar- og Evr­ópu­málum og að hægt sé að ná sátt um að ýta breyt­ingum á þeim málum til hliðar á kom­andi kjör­tíma­bili.

Sjálf­stæð­is­menn kjósa hins vegar að líta fram­hjá því að Stein­grímur var annar leið­toga einu rík­is­stjórnar Íslands­sög­unnar sem sótt hefur um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu og sett­ist sjálfur sér­stak­lega í sjáv­ar­út­vegs­ráðu­neytið til að leggja á há veiði­gjöld á sjáv­ar­út­veg­inn, sem varð m.a. til þess að útgerð­ar­menn sigldu flot­anum í land árið 2012. Sam­legðin við hann í alþjóða- og sjáv­ar­út­vegs­málum er því ekki jafn aug­ljós og margir vilja af láta.

Mjög augljósir átakapunktar

Það er ýmis­legt annað sem gengur ekki upp í þessum sam­kvæm­is­leik þar sem Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokkur eru paraðir upp sem flokkar með mikla sam­legð. Þar ber fyrst að nefna að sam­þykktar stefnu­skrár flokk­anna eru í grund­vall­ar­at­riðum gjör­ó­líkar.

Vinstri græn vilja stór­efla skatta­eft­ir­lit og skatt­rann­sóknir, banna nýt­ingu aflands­fé­laga, þrepa­skipt skatt­kerfi sem nýtt verði til jöfn­unar og eru með sér­staka áherslu á aukin fram­lög þeirra rík­ustu. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill halda sköttum í lág­marki og að skatt­kerfið verði ein­falt, gagn­sætt og ætlað til tekju­öfl­unar fyrir rík­is­sjóð, ekki til að jafna stöðu fólks. Hann vill afnema lág­marks­út­svar svo valin sveit­ar­fé­lög geti orðið skattaparadísir til að auka sam­keppni á milli þeirra. Hann vill draga úr umsvifum hins opin­bera, meðal ann­ars með frek­ari sölu rík­is­eigna.

Það virðist allt í einu gleymt hjá Sjálfstæðismönnum að Steingrímur J. Sigfússon var sá sem lagði aukin veiðigjöld á útgerðir landsins og hefur verið holdgervingur allrar þeirrar pólitíkur sem þeir hafa þóst standa gegn. Nú er hann skínandi ljós mögulegrar samvinnu í ríkisstjórn.
Það virð­ist allt í einu gleymt hjá Sjálf­stæð­is­mönnum að Stein­grímur J. Sig­fús­son var sá sem lagði aukin veiði­gjöld á útgerðir lands­ins og hefur verið hold­gerv­ingur allrar þeirrar póli­tíkur sem þeir hafa þóst standa gegn. Nú er hann skín­andi ljós mögu­legrar sam­vinnu í rík­is­stjórn.

Vinstri græn vilja að gjald verði inn­heimt af nýt­ingu auð­linda, meðal ann­ars í sjáv­ar­út­vegi, og þannig verði tryggt að arð­ur­inn af sam­eig­in­legum auð­lindum þjóð­ar­innar renni til hennar ef þær eru ekki þegar nýttar með sam­fé­lags­legum hætti í þágu almenn­ings. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn leggur á hinn bóg­inn áherslu á að virða beri „eignar- og nýt­ing­ar­rétt ein­stak­linga á lög­vernd­uðum auð­lindum og ekki grípa til þjóð­nýt­ingar eða skerð­ingar á rétt­indum ein­stak­linga þegar slíkt er ekki brýn nauð­syn vegna þjóð­ar­hags.“

Í stjórn­ar­skrár­málum er stefna flokk­anna eins og svart og hvítt. Vinstri græn vilja að þeirri vinnu sem hófst með þjóð­fund­inum 2010 verði lokið og að nýja stjórn­ar­skrá eigi að klára sem byggir á til­lögum Stjórn­laga­ráðs. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn vill fara var­lega í breyt­ingar á stjórn­ar­skránni og telur að heild­ar­end­ur­skoðun hennar sé alls ekki æski­leg.

Því er ljóst að ef þessir tveir flokkar eigi að ná saman þá þarf að fel­ast í því mála­miðlun þar sem annar þeirra gefur eftir grund­vall­ar­stefnu sína í skatta­málum, auð­linda­málum og stjórn­ar­skrár­málum.

Flokkur Steingríms verður flokkur Katrínar

Annað sem taka verður með í reikn­ing­inn er að Vinstri græn eru flokkur sem er að breyt­ast. Hann var lengi vel flokk­ur­inn hans Stein­gríms, og mót­að­ist mjög af for­ingja sínum. Styrk­leiki Stein­gríms í Norð­aust­ur­kjör­dæmi var hryggjar­stykkið í stöðu flokks­ins og fylgið því mun frekar sótt á lands­byggð­ina en í þétt­býlið.

Það er nú gjör­breytt. Vinstri græn sækja nú flest atkvæði sín til höf­uð­borg­ar­innar. Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, þar sem Katrín Jak­obs­dóttir for­maður flokks­ins leiddi lista, fékk flokk­ur­inn 20,9 pró­sent atkvæða. Það er meira en hann fékk í Norð­aust­ur­kjör­dæmi, þar sem Stein­grímur leiddi. Í kjör­dæmi Katrínar fengu kerf­is­varn­ar­flokk­arnir tveir, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, minnstan hlut­falls­legan fjölda atkvæða, eða sam­an­lagt 30,1 pró­sent. Þar er því rík eft­ir­spurn eftir grund­vall­ar­breyt­ingum á lyk­il­kerfum sam­fé­lags­ins.

Þing­manna­hópur Vinstri grænna sem nú sest á Alþingi end­ur­speglar líka að flokk­ur­inn hefur tekið stórt skref frá því að vera flokkur Stein­gríms í að vera flokkur Katrínar. Helm­ingur þing­mann­anna eru úr Reykja­vík­ur­kjör­dæm­unum og 60 pró­sent þeirra af höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Því fer fjarri að það sé vin­sælt í þétt­býl­iskreðsum Vinstri grænna að fara í stjórn­ar­sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokki. Það sést til að mynda ágæt­lega á mynd­inni hér til hliðar. Sá sem „tengir“ við stöðu­upp­færsl­una er Andrés Ingi Jónsson, nýr þing­maður Vinstri grænna í Reykja­vík norður.

Þessi afstaða hefur skinið í gegn víðar. Freyr Rögn­valds­son, blaða­maður á DV sem var á sínum tíma á meðal stofn­fé­laga Vinstri grænna en er nú óflokks­bund­inn, setti stöðu­upp­færslu á Facebook um liðna helgi þar sem hann sagði: Stuðn­ings­menn VG, og raunar ýmsir vinstri­menn aðrir, anar­kistar, krútt og hip­sterar, eru nú með böggum hildar af hræðslu um að VG sam­þykki sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk. Ég sé heit­streng­ingar á Facebook um íkveikjur á skrif­stofum VG og annað í slíkum dúr ef af yrði. Þó það sé nú lík­lega í nös­unum á fólki er aug­ljóst að það er mik­ill titr­ingur og þar með er Katrín Jak­obs­dóttir sett í stöðu sem elur af sér „póli­tískan ómögu­leika“.

Þess í stað eru líkur til að á Íslandi verði mynduð hægri­s­inn­að­asta frjáls­hyggju­stjórn sem sögur fara af með Sýru-stjórn­inni (ACiD). Ef af verður og afstöðu VG liða verður um að kenna, þá skulu þeir spyrja sig hvort til mik­ils hafi verið unnið.“

Björg Eva Erlends­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Vinstri grænna, svarar þessum áhyggjum Freys í stöðu­upp­færslu og segir:

Björn Valur Gíslason, vara­for­maður Vinstri grænna, segir á heima­síðu sinni um helg­ina að skila­boð kjós­enda hafi verið þau að stjórn­mála­menn ættu að ræða sig saman til lausna, þvert á flokka. „Það kallar á mála­miðl­anir, það kallar á mark­vissa vinnu um að ná utan um verk­efni sem verður að leysa. Þetta vissu kjós­endur fyrir kosn­ingar. Það eru því engin vöru­svik af hálfu stjórn­mála­manna í því að miðla málum sín á milli. Þvert á móti reynir nú á stjórn­mála­menn að gegna kjós­endum og finna leiðir til að stjórna land­inu á grunni þeirra skila­boða sem kjós­endur sendu þeim í kosn­ing­unum.“

Sjálfur er Stein­grímur svo til við­tals í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir hann að sem annar stærsti flokkur lands­ins geti Vinstri græn ekki skellt í lás á fyrir fram ákveðna flokka í stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræðum. „Ef þetta fer svo að flækj­ast mikið munum við í VG sjálf­sagt ekki skor­ast undan ábyrgð þó að áherslur okkar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins séu fjar­lægar hvor annarri. Okkur í VG væri heldur eng­inn vandi á höndum í stjórn­ar­and­stöðu gagn­vart vænt­an­lega veikum stjórn­ar­meiri­hluta. Katrín hins vegar heldur á þessum við­ræðum og sjálfur er ég afar sáttur við að vera kom­inn á hlið­ar­lín­una.“

Það er því ljóst að afstaða lyk­il­fólks innan Vinstri grænna til sam­starfs við Sjálf­stæð­is­flokk­inn er mjög tvístruð.

Vinstri græn eiga fleiri möguleika, Sjálfstæðisflokkurinn ekki

Opinber afstaða Katrínar Jak­obs­dóttur hefur verið nokkuð stöðug: hún telur að of langt sé á milli flokk­anna tveggja til að þeir geti myndað rík­is­stjórn og að hugur hennar standi fyrst til að reyna á myndun rík­is­stjórnar frá miðju til vinstri. Sú afstaða kom fyrst nokkuð skýrt fram í við­tali við Kjarnann í júlí, þegar hún sagði að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði stimplað sig „frá sam­starfi við stjórn­ar­and­stöð­una þegar hann lýsti því yfir að hann muni berj­ast gegn öllum kerf­is­breyt­ing­um.“ Hún sagði einnig:

„Við höfum verið algjör­lega afdrátt­ar­laus með það allan tím­ann að við viljum vinna til vinstri. Þannig viljum við vinna og ég tel eðli­legt að ef stjórn­ar­and­staðan fær til þess um umboð þá er eðli­legt að hún myndi rík­is­stjórn byggða á mál­efn­um[...]Við liggjum lengst frá Sjálf­stæð­is­flokknum í okkar stefn­u.“

Fyrir liggur að Vinstri grænum liggur ekk­ert á að flýta sér í stjórn­ar­sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn í þeirri við­ræðu­lotu sem nú stendur yfir. Standi vil­yrði nær allra flokka um að þeir muni ekki vinna með bæði Sjálf­stæð­is­flokki og Fram­sókn­ar­flokki er ljóst að staða Sjálf­stæð­is­flokks er þröng. Hann hefur í raun tvo mögu­leika: þriggja flokka rík­is­stjórn með Bjartri fram­tíð og Viðreisn með lít­inn meiri­hluta og miklar kröfur um kerf­is­breyt­ingar, eða þriggja til fjög­urra flokka rík­is­stjórn þar sem Vinstri grænum er bætt við.

Hinir þrír flokk­arnir, Vinstri græn, Viðreisn og Björt fram­tíð, hafa annan mögu­leika í stöð­unni, og það er að mynda minni­hluta­stjórn til vinstri, með eða án Fram­sókn­ar­flokks­ins en með aðkomu eða stuðn­ingi Pírata og Sam­fylk­ingar. Það yrði alltaf mjög flókin stjórn­ar­myndun, og ákaf­lega erfitt stjórn­ar­mynstur, en lík­legra að allir flokk­arnir þrír – Vinstri græn, Viðreisn og Björt fram­tíð – myndu fá fleiri af sínum grund­vall­ar­stefnu­málum í gegn þar en í stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum.

Gangi slík stjórn­ar­myndun ekki þá er alltaf hægt að reyna aðra lotu af við­ræðum við Sjálf­stæð­is­flokk­inn þar sem allir geta borið fyrir sig ábyrgð og nauð­syn þess að leysa stjórn­ar­kreppu. Það gæti þó liðið nokkuð langur tíma þar til að sú staða kæmi upp.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár