Bjarni: Fyrsta kosningamál að standa gegn kerfisbreytingum

Bjarni Bene­dikts­son segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn muni standa gegn kerf­is­breyt­ingum og nýrri stjórn­ar­skrá í næstu kosn­ingum. Þar muni hann líka vera með mál­efni ungs fólks og vel­ferð­ar­mál á odd­inum.

Helsta kosn­inga­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins í kom­andi kosn­ingum verður að verja stöð­ug­leika á Íslandi með því að standa gegn kerf­is­breyt­ingum og nýrri stjórn­ar­skrá. Auk þess muni flokk­ur­inn beita sér fyrir bættri stöðu ungs fólks og í vel­ferðar- og heil­brigð­is­málum á breiðum grund­velli. Þetta kom fram í við­tali við Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, í útvarps­þætt­inum Sprengisandi í morgun.

Þar ræddi hann einnig um þátt­töku föð­ur­bróður hans í kaupum á Borgun, sam­skipti fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­seta Íslands í byrjun apríl þegar rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar féll og um sölu rík­is­eigna.

Getur ekki látið hagnað „einhvers frænda“ trufla sig

Páll spurði Bjarna út í aflands­fé­laga­eign hans sjálfs og föður hans og hvort hún þvæld­ist fyrir honum í stjórn­málum dags­ins í dag. Sömu­leiðis spurði Páll Bjarna um hvort Borg­un­ar­málið, þar sem Einar Sveins­son föð­ur­bróðir Bjarna var gróða­megin, þvæld­ist fyrir honum. Bjarni sagði engan hafa geta sýnt fram á að hann hafi komið að Borg­un­ar­mál­inu með nokkrum hætti. Þótt „ein­hver frændi“ hans hafi hagn­ast þá geti hann ekki látið það trufla sig. Lands­bank­inn hafi alfarið borið ábyrgð á mál­inu.

Það sé líka frá­leitt að halda því fram að hann hafi sýnt tregðu gagn­vart því að kaupa skatta­gögn sem sýndu aflands­fé­laga­eign Íslend­inga, vegna þess að hann væri sjálfur í gögn­unum. Hann hefði ávallt skráð félagið með réttum hætti í skatta­gögnum. Þetta séu póli­tískar árásir sem hann sé orð­inn vanur. Minna sé hins vegar um að ráð­ist sé á stefnu Bjarna, sem sýni að menn eigi „lítið í hann“ á þeim vett­vangi.

Bankinn hafi viðurkennt mistök

Páll ræddi nokkuð mikið um Borg­un­málið svo­kall­aða við Bjarna og benti meðal ann­ars á að banka­stjóri Lands­bank­ans, Steinþór Pálsson, sitji áfram og nýr for­maður banka­ráðs Lands­bank­ans hafi setið í því þegar ákvörðun um söl­una á Borgun var tekin.

Bjarni svar­aði því til að ekki mætti gera lítið úr því að bank­inn hefði við­ur­kennt mis­tök í mál­inu og breytt verk­lagi. Bankinn hefði brugð­ist við með skýrum hætti. Ef hann færi sem fjár­mála­ráð­herra að vísa mönnum úr stólum sínum þá væri hann kom­inn út fyrir þann ramma sem sé til staðar í lögum. Bjarni skipi í stjórn Banka­sýslu rík­is­ins sem ráði síðan stjórn bank­ans og hún ráði banka­stjór­ann.

Umræðan einkennileg

Bjarni ræddi einnig um sölu þeirra miklu rík­is­eigna sem nú er framundan. Hann telur fólk treysta rík­is­stjórn­inni til að selja þær eignir. Grein­ar­mun verði að gera á bönk­unum tveimur, Lands­bank­anum og Íslands­banka, sem ekki standi til að selja á þessu ári og þar af leið­andi ekki í tíð þess­arar rík­is­stjórnar. Til að selja bank­anna verði að vera breið sátt.

Umræðan um sölu á stöð­ug­leika­fram­lag­inu sé hins vegar ein­kenni­leg. Þau séu pen­inga­legar eignir og kröfur sem mjög auð­v­let sé að koma í verð. Síðan séu þar að finna skráð og óskráð hluta­bréf. Ríkið hafi ekk­ert að gera með skráð hluta­bréf og mik­ill áhugi sé þegar kom­inn fram frá fyrr­ver­andi eig­endum óskráðu bréf­anna um að kaupa þau. Leiðin til þess að losa um þær eignir sé að bjóða þær út og hafa gott jafn­vægi milli þess að hámarka verðið og að hafa fyr­ir­komu­lagið á söl­unni þannig að öllum gef­ist jöfn tæki­færi til að bjóða.

Trúnaðarbrestur milli Sigmundar Davíðs og forseta

Í upp­hafi við­tals­ins ræddi Bjarni um að það hefði orðið trún­að­ar­brestur milli Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og Ólafs Ragnars Gríms­sonar, for­seta Íslands, í byrjun apríl þegar Ólafur Ragnar hélt blaða­manna­fund til að útskýra ákvörðun sína um að synja Sigmundi Davíð um heim­ild til þing­rofs. Bjarni sagð­ist hafa setið með Sigmundi Davíð milli klukkan níu og tíu þá um morg­un­inn, og þar hafi hann ekki látið þess getið að hann væri á leið til Bessa­staða að óska eftir heim­ild til þing­rofs. Það hafi hann hins vegar gert klukkan tólf. „Þetta var allt mjög óvana­legt," segir Bjarni.

Bjarni stað­festi í við­tal­inu, með fyr­ir­vara, að kosn­ingar verði í októ­ber. Sá fyr­ir­vari sé sem fyrr að þing­störf gangi fram með eði­legum hætti. Þessa dag­anna gangi þingið þó vel og mál fái fram að ganga.

Aðspurður um hver þrjú helstu kosn­inga­mál Sjálf­stæð­is­flokks­ins verði í haust sagði Bjarni að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn myndi í fyrsta lagi beita sér fyrir áfram­hald­andi stöð­ug­leika í land­inu og að ríkið verði rekið með ábyrgum hætti. Að passað yrði upp á að kerfum verði ekki koll­varpað og að ekki verði tekin upp ný stjórn­ar­skrá. Í öðru lagi þyrfti að koma betur til móts við yngstu kyn­slóð­irnar í land­inu, sér­stak­lega varð­andi hús­næð­is­kaup. Staða hennar sé þó bjart­ari en staða ungs fólks hafi nokkru sinni verið. Í þriðja lagi verði vel­ferð­ar­mál og heil­brigð­is­mál í breiðum skiln­ingi kosn­inga­mál.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár