Óttast að fjármálastofnanir ætli sér að hagnast á neyð fólks

Forseti ASÍ seg­ist hafa áhyggjur af því að þau úrræði sem standa fólki til boða vegna tíma­bund­ins sam­dráttar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins séu oft og tíðum bjarn­ar­greiði.

Drífa Snædal, forseti ASÍ.
Drífa Snædal, for­seti ASÍ. Mynd: Bára Huld Beck

Drífa Snædal, for­seti ASÍ, gerir úrræði fjár­mála­stofn­ana að umtals­efni á Facebook í dag en hún seg­ist hafa áhyggjur af því að þau úrræði sem standa fólki til boða vegna tíma­bund­ins sam­dráttar séu oft og tíðum bjarn­ar­greiði og að ein­hverjar fjár­mála­stofn­anir ætli sér bein­línis að hagn­ast á neyð fólks.

Þá segir hún að tölu­verður munur sé til dæmis á því að lengja í lánum fólks eða að fresta greiðslum fram á næsta ár, þegar óvíst er hver staða fólks verði þá.

„Sömu­leiðis þarf að gæta sín vel á þeim kostn­aði sem fylgir þessum breyt­ingum, í ein­hverjum til­vikum er hann úr öllu sam­hengi,“ skrifar hún.

Verður að upplýsa einstaklinga með skýrum hætti hvaða áhrif úrræðin hafa

ASÍ sendi frá sér yfir­lýs­ingu í morgun vegna áhrifa efna­hags­sam­dráttar á heim­ilin. Í henni segir að heims­far­aldur vegna Covid-19 hafi nú áhrif á atvinnu og afkomu fjöl­margra heim­ila. Alþýðu­sam­band Íslands leggi ríka áherslu á að stjórn­völd, fjár­mála­stofn­anir og aðrir kröfu­hafar komi til móts við fólk í þessum erf­iðu aðstæðum. Öllu máli skipti nú að tryggja afkomu­ör­yggi heim­ila þannig að öllum sé kleift að setja eigin heilsu og ann­arra í for­gang.

„Liður í þessu er að opin­berir aðilar, sveit­ar­fé­lög, fjár­mála­stofn­anir, leigu­fé­lög, líf­eyr­is­sjóðir og aðrir kröfu­hafar sýni sann­girni og sveigj­an­leika varð­andi greiðslu­fresti á meðan mesta óvissan stendur yfir. Mik­il­vægt er að inn­heimtu­kostn­aður og drátt­ar­vextir verði ekki lagðir á van­skil og fólki gef­ist tæki­færi til að dreifa greiðslum og lengja í lánum svo greiðslu­byrði fari ekki úr hófi fram. Bankar, fjár­mála­stofn­anir, líf­eyr­is­sjóðir og leigu­fé­lög hafa þegar til­kynnt um úrræði fyrir heim­ili sem þurfa aukið svig­rúm við þessar aðstæður.

Alþýðu­sam­bandið beinir því til þess­ara aðila að þeir hafi ávallt að leið­ar­ljósi að upp­lýsa ein­stak­linga með skýrum og greina­góðum hætti um áhrif þeirra úrræða sem í boði eru á greiðslu­byrði til lengri og skemmri tíma og hvaða leiðir séu færar til að draga úr lang­tíma­á­hrifum á fjár­hag heim­il­anna. Þá skuli öllum kostn­aði sem inn­heimtur er vegna úræð­anna haldið í lág­marki,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Alþýðu­sam­bandið telur jafn­framt með öllu óásætt­an­legt að kröfu­hafar geti nýtt sér þá neyð sem blasir við mörgum heim­ilum við núver­andi aðstæður. ASÍ muni á næst­unni fylgj­ast náið með þeim greiðslu­erf­ið­leika­úr­ræðum sem boðið verður upp á og þeim þjón­ustu­gjöldum sem inn­heimt verða vegna þeirra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár