Ekkert annað en hækkanir í kortunum

Hag­fræð­ingar segja skort á fram­boði íbúða á fast­eigna­mark­aði þýða aðeins eitt; það eru frek­ari hækk­anir á mark­aði í kort­unum. Ungt fólk gæti lent í vanda vegna þessa.

Fast­eigna- og leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun halda áfram að hækka á næstu miss­er­um. Mik­il spenna er á mark­aðnum og er tak­markað fram­boð meg­in­skýr­ing­in, en fast­eigna­verð hefur hækkað hratt að und­an­förnu og nemur hækk­unin meira en 20 pró­sentum á und­an­förnu ári. 

Verð­bólga mælist nú 1,7 pró­sent en hún væri nei­kvæð um 2,5 pró­sent, ef ekki væri fyrir hinar miklu hækk­anir á fast­eigna­mark­aði.

Yngvi Harðar­son, fram­kvæmda­stjóri Ana­lytica, bend­ir á að fast­eigna­verð hafi hækkað um­tals­vert meira en leigu­verð íbúðar­hús­næðis, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag. Því sé und­ir­liggj­andi þrýst­ing­ur á enn frek­ari hækk­un leigu­verðs.

Ari Skúla­son, sér­fræð­ing­ur hjá Lands­bank­an­um, segir að vegna þess­ar­ar þró­un­ar muni koma fram ár­gang­ar af ungu fólki á Íslandi sem eigi að jafn­aði lítið eigið fé. Unga fólkið muni eiga erfitt með að kaupa hús­næði og leigu­verð verða svo hátt að það geti lítið lagt fyr­ir.

Útlit sé fyrir að þessi staða verði áfram með þess­ari við­var­andi spennu, jafn­vel þó upp­bygg­ing sé mikil víða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár