Bændur mótmæla rop- og prumpskatti

Stjórn­völd á Nýja-Sjálandi áforma að leggja skatt á losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda frá land­bún­aði, m.a. búfén­að­inum sjálfum. Bændur blása á þau rök að þetta muni gagn­ast þeim þegar upp verði staðið.

Nýsjálenskar kindur á beit.
Nýsjá­lenskar kindur á beit. Mynd: Pexels

Trakt­orar og pall­bílar fylltu í dag götur borga og bæja á Nýja-Sjálandi í mót­mælum sem bændur standa fyrir. Fólkið er að mót­mæla áformum stjórn­valda um nýjan skatt á losun hús­dýra – það er segja losun þeirra á gróð­ur­húsa­loft­teg­undum. Bænd­urnir vilja að stjórn­völd hverfi frá skatt­lagn­ing­unni sem þeir hafa upp­nefnt rop- og prumpskatt­inn.

Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, kynnti skatta­á­formin í síð­ustu viku. Skatt­ur­inn yrði, að því er fram kemur í frétt Al Jazeera um málið, sá fyrsti sinnar teg­undar í heim­inum. Skatt­lögð yrði losun frá land­bún­aði, m.a. á met­ani, sem sex millj­ónir naut­gripa og 26 millj­ónir kinda ropa út í and­rúms­loftið á hverjum degi.

[adspot]

Ardern segir þessa nýju skatt­lagn­ingu nauð­syn­lega aðgerð í bar­átt­unni gegn lofts­lags­breyt­ingum. Hún hefur nefnt að mögu­lega muni bændur í reynd hafa hag af þessu þar sem þeir geti þá mark­aðs­sett lofts­lagsvænna kjöt en áður.

Nýsjá­lenskir bændur hafa margir hverjir blásið á þennan rök­stuðn­ing og hóp­uð­ust sem fyrr segir út á stræti og torg í dag og mót­mæltu undir yfir­skrift­inni: „Við munum ekki sætta okkur við þetta“.

Bryce McKenzie var meðal þeirra sem skipu­lögðu mót­mælin. Hann segir við Al Jazeera að þessi nýja stefna stjórn­valda, að skatt­leggja enn frekar mat­væla­fram­leiðslu, muni bitna á dreifð­ari byggðum og bændum.

Stjórn­völd von­ast til þess að skatt­ur­inn verði til þess að draga úr losun frá búfén­aði um 20 pró­sent. McKenzie segir hins vegar að aðgerðin muni hafa þau áhrif að bændur í öðrum löndum, þar sem umhverf­is­mál eru ekki tekin eins föstum tökum og á Nýja-Sjálandi, muni taka stærri hluta mark­að­ar­ins.

Útblástur metangass er mun minni en koldí­oxíðs og það brotnar auk þess hraðar niður. Hins vegar er það þess eðlis að það hefur mun meiri áhrif til hlýn­unar.

Samkvæmt vís­inda­rann­sóknum er talið að um 30 pró­sent af ástæð­unni fyrir hækkun hita­stigs á jörð­inni megi rekja til met­ans þrátt fyrir að gas­teg­undin sé aðeins brot af heildar útblæstri.

[adspot]

En bænd­urnir voru ekki þeir einu sem mót­mæltu í dag. Segja má að mót­mæli gegn þeirra mót­mælum hafi farið fram í höf­uð­borg­inni Wellington. For­svars­menn þeirra segja að þeir sem starfi í land­bún­að­ar­geir­anum verði að taka sína ábyrgð á lofts­lags­breyt­ingum, að „taka þurfi umræð­una“ um þetta hita­mál. „Bændur verða að vera hluti af lausn­inni,“ hefur frétta­stofan RNZ eftir einum skipu­leggj­and­anum.

„Lands­byggðin og land­bún­að­ur­inn á Nýja-Sjálandi hefur orðið illa úti vegna flóða, ofsa­vinda og þurrka und­an­farið. Og þetta á aðeins eftir að versna. Bændur verða annað hvort að aðlaga sig og draga saman losun hratt eða að þeir, líkt og allir aðrir, munu þjást enn meira [vegna lofts­lags­breyt­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

nýjasjáland

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár