Í örvæntingarfullri leit að upprunanum

Þegar fyrsta nýja til­fellið af COVID-19 í meira en 100 daga greind­ist á Nýja-Sjálandi í vik­unni vökn­uðu margar spurn­ingar en þó fyrst og fremst ein: Hvernig í ósköp­unum komst veiran aftur inn í land sem hafði nær lokað sig algjör­lega af fyrir umheim­inum?

Jacinda Ardern er í endurkjöri fyrir Verkamannaflokkinn. Til stóð að kosningar færu fram 19. september en það kann að breytast.
Jacinda Ardern er í end­ur­kjöri fyrir Verka­manna­flokk­inn. Til stóð að kosn­ingar færu fram 19. sept­em­ber en það kann að breyt­ast. Mynd: EPA

Í byrjun vik­unnar greindust fjórir í sömu fjöl­skyldu í Auckland, stærstu borg Nýja-Sjálands, með veiruna. Þá höfðu liðið meira en þrír mán­uðir án nokk­urs smits í land­inu. Í dag hafa svo greinst þrettán til­felli til við­bótar. Góðu frétt­irnar eru þær að öll eru þau talin tengj­ast fjöl­skyld­unni í Auckland en slæmu frétt­irnar eru þær að einn af hinum sýktu heim­sótti nýverið ást­vin á öldr­un­ar­heim­ili. Og annar mætti í skól­ann á mánu­dag og sat í kennslu­stofu í heilan dag. Um 100 manns í skól­anum eru nú komnir í sótt­kví.

Jacinda Ardern, for­sæt­is­ráð­herra Nýja-Sjálands, segir að það hafi verið fyr­ir­séð að fleiri smit ættu eftir að grein­ast út frá hóp­sýk­ing­unni. Og að enn eigi lík­lega fleiri eftir að grein­ast. Land­læknir Nýja-Sjálands telur að vel megi vera að veiran hafi verið á sveimi í Auckland vikum saman þó að fjöl­skyldan hafi verið sú fyrsta í langan tíma sem greind var með hana. Þetta hefur vakið ugg. Og furðu.

Uppruni veirunnar í hóp­sýk­ing­unni er enn á huldu. Kenn­ingar eru um að hann megi rekja til vinnu­staðar eins úr fjöl­skyld­unni. Þar er að finna kaldar vöru­geymslur og inn­fluttar vörur.

[adspot]

Stjórn­völd á Nýja-Sjálandi settu á harðar aðgerðir í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins í vetur. Fólk var bein­línis beðið að vera heima. Þeim tak­mörk­unum hafði verið aflétt en tak­mark­anir á ferða­lögum eru enn miklar. Til lands­ins kemur eng­inn nema að hann sé rík­is­borg­ari þess eða hafi þangað brýnt erindi, s.s. vegna vinnu í heil­brigð­is­þjón­ust­unni.

Nú hefur aftur verið gripið til harðra aðgerða og borg­ar­búar í Auckland beðnir að halda sig heima og sinna aðeins nauð­syn­legum erindum utan heim­ilis. Skólar eru lok­aðir og fyr­ir­tæki sem sinna ekki brýnni þjón­ustu sömu­leiðis. Annars staðar í land­inu hafa einnig ákveðnar tak­mark­anir verið settar en þó mun væg­ari en í Auckland.

[links]Nýsjá­lend­ingum hefur verið hrósað í hástert fyrir við­brögð sín við far­sótt­inni. Þeir voru taldir hafa náð einna bestum árangri við að hemja útbreiðsl­una. Ekkert inn­an­lands­smit greind­ist þar í 102 daga og fólk gat um frjálst höfuð strokið, mætt til vinnu, farið út í búð, án þess að telja sig í mik­illi hættu á því að sýkj­ast.

„Enn einu sinni erum við minnt á hversu slóttug þessi veira er og hversu auð­veld­lega hún getur dreifst á milli manna,“ segir Ardern. „Að grípa til harðra aðgerða snemma er enn besta úrræðið sem við höfum.“

Á morgun, föstu­dag, verður tekin ákvörðun um hvort hinum hörðu aðgerðum verður aflétt á ný eða þeim haldið áfram. Á morgun mun Ardern einnig til­kynna, sam­hliða þessu, hvort að þing­kosn­ingum sem fram eiga fara 19. sept­em­ber, verði frestað.

Hvaðan kom hún?

Ashley Bloomfield, land­læknir Nýja-Sjálands, segir að skimun, smitrakn­ing og ein­angrun séu enn þær aðferðir sem fyrst og fremst er beitt til að reyna að ná tökum á útbreiðsl­unni. Einnig sé verið að rað­greina veiruna til að reyna að kom­ast að því hvaðan hún kemur. Hann hefur heitið því að upp­lýsa það. Hann segir mögu­legt að veiran hafi verið á sveimi í Auckland um hríð því einn sjúk­ling­ur­inn sem greind­ist í vik­unni fór að sýna ein­kenni síð­asta dag júlí­mán­aðar.

Þó að kenn­ingin um að hópsmitið megi rekja til kæli­geymslu inn­fluttra mat­væla telur land­lækn­ir­inn það „mjög ólík­legt“ þó að vitað sé að veiran geti lifað á sléttu og köldu yfir­borði í ein­hverja daga. Til að úti­loka þetta hafa verið tekin sýni í vöru­hús­inu. Nið­ur­stöðu er enn beðið.

Ef ekki tekst að finna hvaðan veiran kemur er ljóst að sú stefna sem stjórn­völd höfðu, að grípa hratt til harðra aðgerða, hefur ekki dugað til.

Stjórn­völd á Nýja-Sjálandi fóru þá leið í bar­áttu sinni við far­ald­ur­inn að reyna að úti­loka veiruna frá land­inu með öllu. Þau voru ekki aðeins að reyna að fletja kúr­f­una, eins og flest önnur ríki. Til­gang­ur­inn var sá að gefa lands­mönnum tæki­færi á því að eiga nokkuð eðli­legt líf, án tak­mark­ana á sam­komum. Þetta hefur vissu­lega haft efna­hags­leg áhrif og nú hafa stjórn­völd boðað frek­ari stuðn­ing til fyr­ir­tækja.

Nýsjá­lend­ingar flykkj­ast nú í skimun og biðraðir eru langar. Þá hefur tölu­verð hræðsla gripið um sig á ný og dæmi eru um að fólk ham­stri mat­væli og aðrar nauð­synjar. Mat­vöru­versl­anir hafa því sumar hverjar tak­markað hversu mikið hver og einn má kaupa af ákveðnum vörum.

Flestir hafa hlýtt fyr­ir­mælum stjórn­valda um að halda sig til hlés. Íbúar í Auckland gera það nær allir þó að ein­hverjir hafi reynt að stinga af í sum­ar­hús sín við strönd­ina. Aðra sögu er að segja frá öðrum stöðum á land­inu þar sem veiran hefur ekki látið á sér kræla mán­uðum saman. Þar hafa farið fram mót­mæli og krefj­ast mót­mæl­endur þess að öllum tak­mörk­unum á frelsi þeirra verði aflétt.

Ardern hefur und­an­farið haldið dag­lega blaða­manna­fundi og farið yfir stöð­una. Á mið­nætti að íslenskum tíma er þess vænst að hún muni færa löndum sínum tíð­indi um fram­haldið. Eftir að smitin þrettán greindust er talið lík­legra að áfram verði hertar reglur í gildi. Miðað við þá stefnu sem stjórn­völd hafa tekið sé ekki tíma­bært að slaka.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár