Reykjavíkurborg skilar miklu meiri afgangi en lagt var upp með

Alls skil­aði sá hluti rekst­urs Reykja­vík­ur­borgar sem rekin er fyrir skattfé 3,6 millj­arða króna afgangi á fyrri hluta árs­ins. Það er 2,5 millj­örðum krónum meira en áætl­anir gerðu ráð fyrir. Ástæðan er m.a. hærri skatt­tekjur og fram­lög Jöfn­un­ar­sjóðs.

Ráðhús Reykjavíkur.
Ráðhús Reykja­víkur. Mynd: Birgir Þór Harðarson

A-hluti Reykja­vík­ur­borgar var rek­inn með 3,6 millj­arða króna afgangi á fyrstu sex mán­uðum þessa árs. Það er 2,5 millj­örðum krónum meiri afgangur en fjár­hags­á­ætlun gerði ráð fyrir. Hin bætta nið­ur­staða er til­komin vegna þess að skatt­tekjur – útsvar og fast­eigna­gjöld – voru um 650 millj­ónum króna hærri en áætlað var, fram­lög Jöfn­un­ar­sjóð voru 900 millj­ónum króna yfir áætlun og tekjur af sölu bygg­inga­réttar og sölu­hagn­aði fast­eigna voru 1,1 millj­arði króna meiri en gert hafði verið ráð fyrir. Þetta kemur fram í árs­hluta­reikn­ingi borg­ar­innar sem birtur var í dag.

[links]Rekstr­ar­nið­ur­staða sam­stæðu borg­ar­innar, A og B-hluta hennar, er jákvæð um 18,5 millj­arða króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins. Í til­kynn­ingu til Kaup­hallar segir að ástæða þess sé hærri tekju­færsla á mats­breyt­ingum fjár­fest­inga­eigna Félags­bú­staða hf. (hækkun á virði fast­eigna í eigu borg­ar­innar), lægri fjár­magns­gjöld vegna gang­virð­is­breyt­inga inn­byggðra afleiða í raf­orku­samn­ingum hjá Orku­veitu og lægri rekstr­ar­kostn­aðar en áætlun gerði ráð fyrir. Sú nið­ur­staða er 10,8 millj­örðum krónum betri en fjár­hags­á­ætlun hafði gert ráð fyrir.

Kjarninn greindi frá því fyrr í mán­uð­inum að inn­heimt fast­eigna­gjöld í Reykja­vík hafi auk­ist um 50 pró­sent frá árinu 2010. Vegna þess árs inn­heimti Reykja­vík­ur­borg tæp­lega 12,1 millj­arð króna í fast­eigna­gjöld. Áætlað er að borgin inn­heimti 18,2 millj­arða króna í fast­eigna­gjöld vegna árs­ins 2017. Þar sagði einnig að inn­heimta fast­eigna­gjalda muni skila 2,6 millj­arði króna meira í borg­ar­sjóð vegna árs­ins 2017 en hún gerði árið 2016. Það er tekju­aukn­ing upp á 16,6 pró­sent milli ára.

Dagur boðar bætingu í fjárframlög

Þá hefur skulda­hlut­fall Reykja­vík­ur­borgar hríð­lækkað á und­an­förnum árum. Hreinar vaxta­ber­andi skuldir sam­stæðu borg­ar­innar voru 263 millj­arða króna í árs­lok 2011 eða tæp­lega 242 pró­sent af tekjum sam­stæð­unnar. Síðan þá hefur hlut­fallið hríð­lækkað og vaxta­ber­andi skuldir eru nú 169 millj­arðar króna, eða 100 pró­sent af rekstr­ar­tekjum.

[adspot]Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, segir í stöðu­upp­færslu á Facebook að upp­gjörið sé mjög sterkt hvar sem á sé litið. Það muni gera borg­inni kleift að „bæta við fjár­fram­lögum í skóla­mál, vel­ferðar- og hús­næð­is­mál og end­ur­nýjun inn­viða. Það höfum við gert frá því við­snún­ingur varð í rekstr­inum um mitt síð­asta ár og munum halda því áfram í næstu fjár­hags­á­ætlun. Sterkari fjár­hags­staða gerir þetta kleift og skólar, vel­ferð, hús­næð­is­mál og inn­virðir eru í for­gangi hjá meiri­hluta borg­ar­stjórnar.“

Miklar sveiflur á síðustu árum

Í fyrra var hagn­aður sam­stæðu Reykja­vík­ur­borgar sam­tals 26,4 millj­arðar króna eða tæpum 15 millj­örðum króna yfir áætlun. A-hlut­inn var rek­inn með 2,6 millj­arða króna afgangi.

Árið 2015 var rekst­ar­nið­ur­staðan nei­kvæð um fimm millj­arða króna og A-hlut­inn rek­inn með 13,6 millj­arða króna tapi. Ástæða þess var að líf­eyr­is­skuld­bind­ingar borg­ar­innar juk­ust um 14,6 millj­arða króna á árinu 2015 vegna nýrra trygg­inga­fræði­legra for­sendna. Þær voru allar gjald­færðar á því ári.

A-hlut­inn var rek­inn með 2,8 millj­arða króna tapi árið 2014 en rekstr­ar­nið­ur­staða sam­stæð­unnar var jákvæð um 11,1 millj­arða króna á því ári.

Því er staðan sú að á þeim tíma sem liðin er frá síð­ustu sveita­stjórn­ar­kosn­ingum er afkoma borg­ar­innar (2014, 2015, 2016 og fyrri helm­ingur árs­ins 2017) jákvæð um 51 millj­arð króna en A-hlut­inn, sá hluti sem fjár­magn­aður er með skatt­tekjum og not­aður er til að greiða fyrir þjón­ustu, rek­inn með rúm­lega tíu millj­arða króna tapi. Þar verður þó að taka inn gjald­færslu á áður­nefndum 14,6 millj­arða líf­eyr­is­skuld­bind­ingum sem voru ein­skiptis­kostn­aður.

Sveita­stjórn­ar­kosn­ingar fara fram næsta vor.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár