Tekjur vegna fasteignagjalda í Reykjavík 50 prósent hærri en 2010

Reykja­vík­ur­borg hefur notið góðs af gríð­ar­legri hækkun fast­eigna­verðs á und­an­förnum árum. Innheimt fast­eigna­gjöld borg­ar­innar hafa auk­ist um 50 pró­sent frá 2010. Á milli 2016 og 2017 skil­uðu þau 18,2 millj­örðum í tekjum í borg­ar­sjóð.

Innheimt fast­eigna­gjöld í Reykja­vík hafa auk­ist um 50 pró­sent frá árinu 2010. Vegna þess árs inn­heimti Reykja­vík­ur­borg tæp­lega 12,1 millj­arð króna í fast­eigna­gjöld. Áætlað er að borgin inn­heimti 18,2 millj­arða króna í fast­eigna­gjöld vegna árs­ins 2017. Þetta kemur fram í svörum Reykja­vík­ur­borgar við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið.

Þar segir einnig að inn­heimta fast­eigna­gjalda muni skila 2,6 millj­arði króna meira í borg­ar­sjóð vegna árs­ins 2017 en hún gerði árið 2016. Það er tekju­aukn­ing upp á 16,6 pró­sent milli ára.

Húsnæðisverð næstum tvöfaldast

Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæði hefur hækkað gríð­ar­lega á und­an­förnum árum og raun­verð fast­eigna hefur aldrei verið hærra en það er nú um stundir. Frá því í des­em­ber 2010 hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, á öllu hús­næði, hækkað um 90 pró­sent. Hækkunin hefur verið drifin áfram af skorti á fram­boði, sem hefur verið miklu minna en eft­ir­spurn. Samhliða hafa efna­hags­að­stæður batnað og kaup­máttur auk­ist og geta íbúa til að kaupa sér hús­næði þar af leið­andi meiri.

Á sama tíma hefur einnig verið byggt mikið magn af atvinnu­hús­næði og sér­stak­lega hót­el­bygg­ingum. Eft­ir­spurn eftir slíkum er síst minni en eftir íbúð­ar­hús­næði í ljósi þess að fjöldi ferða­manna sem heim­sækir Ísland heim hefur rúm­lega fjór­fald­ast frá árinu 2010.

Sveit­ar­fé­lög lands­ins eru með tvo meg­in­tekju­stofna. Annars vegar rukka þau útsvar, sem er beinn skattur á tekjur sem rennur til þess sveit­ar­fé­lags sem við­kom­andi býr í. Hins vegar rukka þau fast­eigna­gjöld.

Slík gjöld eru aðal­lega tvenns konar. Annars vegar er fast­eigna­skattur (0,2 pró­sent af fast­eigna­mati á íbúð­ar­hús­næði og 1,65 pró­sent af fast­eigna­mati á atvinnu­hús­næði) og hins vegar lóð­ar­leiga (0,2 af lóða­mati á íbúð­ar­hús­næði og eitt pró­sent af lóða­mati á atvinnu­hús­næði). Auk þess þurfa íbúar að greiða sorp­hirðu­gjald og gjald vegna end­ur­vinnslu­stöðva sem hluta af fast­eigna­gjöldum sínum.

Fasteignamat hækkaði um 17,2 prósent milli ára

Þar sem stóru breyt­urnar í greiddum fast­eigna­gjöldum, fast­eigna­skattur og lóða­leiga, byggja á fast­eigna­mati þá aukast tekjur sveit­ar­fé­laga í beinu sam­ræmi við hækkun á fast­eigna­mati milli ára. Og fast­eigna­mat hefur hækkað gríð­ar­lega hratt sam­hliða þeim miklu hækk­unum sem orðið hafa á fast­eigna­mark­aði hér­lendis. Þegar Þjóðskrá Íslands, sem sér reiknar út fast­eigna­matið sem lagt er til grund­vallar álagn­ingu opin­berra gjalda ár hvert, birti nýtt mat fyrir árið 2018 í júní síð­ast­liðnum kom til að mynda fram að heild­ar­mat allra fast­eigna á land­inu hefði hækkað um 13,8 pró­sent milli ára.

Í Reykja­vík var með­al­hækkun fast­eigna­mats­ins 17,2 pró­sent. Hún var mest í póst­núm­eri 111, eða Efra Breið­holti, þar sem matið hækk­aði um 20,8 pró­sent að mið­gildi.

Matið hækk­aði líka mikið þegar það var reiknað út fyrir árið 2017, eða 7,8 pró­sent. Milli 2015 og 2016 hækk­aði það um 5,8 pró­sent. Og svo fram­vegis.

Sam­an­dregið þá þýðir þessi hækkun á fast­eigna­mati ein­ungis eitt fyrir eig­endur fast­eigna: hærri skatta.

Skiptir miklu fyrir afkomu borgarinnar

Rekstur Reykja­vík­ur­borgar hefur notið góðs af þessum miklu hækk­unum. A-hluti borg­ar­innar, sem er sú starf­semi hennar sem er að hluta eða öllu leyti fjár­mögnuð með skatt­tekjum, hefur verið í járnum á und­an­förnum árum. Árin 2014 og 2015 var hún til að mynda nei­kvæð upp á 16,4 millj­arða króna. Það þýðir að borg­inni vant­aði þá upp­hæð til að geta staðið undir rekstr­ar­kostn­aði A-hlut­ans. Vert er að taka fram að stærsta ástæða þess að hall­inn var jafn hár og raun ber vitni var sú að breyt­ingar á líf­eyr­is­skuld­bind­ingum á árinu 2015 gerði það að verkum að bók­færð voru gjöld sem voru rúm­lega tíu millj­örðum krónum hærri en þau voru árið eftir. Þrátt fyrir að líf­eyr­is­skuld­bind­ing­arnar væru teknar út fyrir sviga þá var borgin samt sem áður að tapa millj­örðum króna á ári.

Þetta breytt­ist í fyrra þegar afkoma hennar var jákvæð um 2,6 millj­arða króna. Og við­búið er að borgin skili sér í plús fyrir árið 2017 líka, en fjár­hags­á­ætlun fyrir árið 2017 gerði ráð fyrir að nið­ur­staðan yrði jákvæð um 1,8 millj­arða króna.

Framhaldið ákveðið í haust

Stór breyta í þeirri afkomu er áætluð tekju­aukn­ing vegna fast­eigna­gjalda. Þau voru í heild 15,6 millj­arðar króna árið 2016 en sam­kvæmt fjár­mála­á­ætlun 2017 er búist við því að gjöldin skili 18,2 millj­örðum króna í borg­ar­sjóð í ár. Það er tekju­aukn­ing á þeim lið upp á 2,6 millj­arða króna á milli ára. Sú tekju­aukn­ing dekkar þann afgang sem Reykja­vík­ur­borg áætlar að skila á árinu 2017 og um 600 millj­ónir króna í við­bót­ar­kostnað til við­bótar.

Raunar hafa tekjur borg­ar­innar vegna inn­heimtra fast­eigna­gjalda auk­ist um 6,1 millj­arð króna frá árinu 2011, þegar þau voru tæp­lega 12,1 millj­arður króna. Tekju­aukn­ingin hefur verið lang­mest á allra síð­ustu árum og aldrei meiri en á milli áranna 2016 og 2017, þegar hún var upp á 16,7 pró­sent.

Í ljósi þess að fast­eigna­mat hækkar meira á milli áranna 2017 og 2018 en það hefur gert eftir hrun, og þeirrar stað­reyndar að þús­undir íbúða eru í upp­bygg­ingu í borg­inni auk alls þess atvinnu­hús­næðis sem er að rísa, má slá því föstu að tekjur borg­ar­innar vegna fast­eigna­gjalda munu að óbreyttu halda áfram að vaxa hratt.

Það er þó alls ekki meit­lað í stein að sú pró­senta sem borgin inn­heimtir í fast­eigna­gjöld verði ekki lækkuð í ljósi þess að hærra fast­eigna­verð hefur aukið tekjur hennar vegna þeirra svona mikið á skömmum tíma. Ákvörðun um það verður tekið í tengslum við afgreiðslu fjár­hags­á­ætl­unar Reykja­vík­ur­borgar fyrir árið 2018 á kom­andi hausti.

Kosið verður til borg­ar­stjórnar í Reykja­vík þann 26. maí næst­kom­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár