Takmarkanir settar á að nýju – andlitsgrímur skylda í verslunum á Englandi

„Ég vil vera hrein­skil­inn við ykkur: Við munum ekki snúa til sömu lífs­hátta í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð,“ segir fram­kvæmda­stjóri WHO. Enn og aftur hafa ýmsar tak­mark­anir verið settar á, m.a. í Kali­forníu þar sem smitum hefur fjölgað gíf­ur­lega hratt síð­ustu

Á gangi í Piccadily Circus í London.
Á gangi í Piccadily Circus í London. Mynd: EPA

Borgir og ríki víðs vegar um heim­inn hafa sett á ýmsar tak­mark­anir á ný til að berj­ast gegn fjölgun nýrra smita af kór­ónu­veirunni. Yfir 13 millj­ónir til­fella hafa greinst í heim­inum. Fram­kvæmda­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar segir ekki hægt „að stytta sér leið“ í bar­átt­unni gegn COVID-19. Mis­vísandi skila­boð leið­toga séu eitt helsta vanda­málið. Ef haldið verði áfram á sömu braut eigi far­ald­ur­inn eftir að „versna og versna og versna“.

Í dag voru settar á hertar tak­mark­anir í Hong Kong, þær hörð­ustu frá upp­hafi far­ald­urs­ins. Yfirvöld telja hætt­una á umfangs­miklum hópsmitum mikla. Frá og með mið­nætti þurfa allir sem nota almenn­ings­sam­göngur að vera með and­lits­grímur. Þá er ekki hægt að borða á veit­inga­húsum eftir klukkan 18 á kvöldin – aðeins verða leyfðar heim­send­ingar eftir þann tíma.

Aðgerð­irnar eru nýjar því ekki var gripið til þeirra í fyrstu bylgju far­ald­urs­ins og heldur ekki þeirri sem fylgdi á eftir.

[adspot]

Í höf­uð­borg Fil­ipps­eyja, Manilla, hefur útgöngu­bann verið sett á að hluta. Það nær til um 250 þús­und íbúa. Á Fil­ipps­eyjum hafa greinst 57 þús­und til­felli og tæp­lega 1.600 hafa lát­ist vegna COVID-19.

Í Banda­ríkj­unum hafa greinst um 60 þús­und ný til­felli dag­lega í tæpa viku. Rík­is­stjóri Kali­forníu hefur ákveðið að loka öllum börum í rík­inu og engin starf­semi má fara fram inn­an­dyra í kvik­mynda­húsum, leik­húsum og á veit­inga­stöðum. Í 30 sýslum í Kali­forníu þarf að loka ákveðnum sam­komu­stöðum á borð við bæna­hús, lík­ams­rækt­ar­stöðvar, hár­greiðslu­stofur og versl­un­ar­mið­stöðvar. Í kjöl­far afnáms tak­mark­ana nýverið hóf smitum að fjölga hratt í rík­inu. Yfir 8.200 ný til­felli hafa greinst dag­lega síð­ustu vik­una.

[links]Í dag urðu tíma­mót í Ástralíu er til­felli af COVID-19 fóru yfir 10 þús­und. Þegar hafði verið gripið til hertra aðgerða í Melbourne en nú hafa yfir­völd í Nýja Suður-Wales sett á fjölda­tak­mark­anir. Ekki fleiri en tíu mega koma saman í hverjum hópi á börum og sam­komur tak­markast við 300 manns að hámarki. Þá er þeim sem standa að við­burðum og taka á móti við­skipta­vinum skylt að fylgja ströngum sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum og fólk á að halda tveggja metra fjar­lægð sín á milli. Ástæðan er sú að hópsmit tíu manna er rakið til bars í Sydney. Heimilt er að sekta fólk sem ekki virðir nýju regl­urnar.

Ástralar höfðu náð góðum árangri í bar­átt­unni gegn kór­ónu­veirunni. Þeir vilja því tryggja að önnur bylgja far­ald­urs­ins brjót­ist ekki út.

Stjórn­völd á Englandi hafa ákveðið að við­skipta­vinir versl­ana verði að bera and­lits­grímur frá og með deg­inum í dag. Mis­vísandi skila­boð hafa borist frá rík­is­stjórn­inni varð­andi leið­bein­ingar til almenn­ings. Bretar búa sig nú undir aðra bylgju far­ald­urs­ins sem sér­fræð­ingar telja að gæti dregið 120 þús­und manns til dauða í vetur ef allt fari á versta veg.

Aðgerðir endurspegla ekki hættuna

„Ég ætla að vera hrein­skil­inn, mörg lönd eru að fara í ranga átt,“ sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar á blaða­manna­fundi í gær. „Veiran er enn óvinur númer eitt en aðgerðir margra rík­is­stjórna end­ur­spegla það ekki. Eina mark­mið veirunnar er að finna fólk til að sýkja.“

Sagði hann að mis­vísandi skila­boð frá leið­togum væri að grafa undan því mik­il­væg­asta í bar­átt­unni: Trausti. Ef rík­is­stjórnir senda ekki skýr skila­boð til borg­ara og vinna að mark­vissum áætl­unum til að draga úr útbreiðslu veirunnar og ef almenn­ingur fylgir ekki ein­földum sótt­varn­ar­ráð­stöf­unum „mun far­ald­ur­inn aðeins fara í eina átt. Hann á eftir að versna og versna og versna“.

Hann sagði að hægt væri að koma í veg fyrir það ef „hver ein­asti leið­togi, hver ein­asta rík­is­stjórn og hver ein­asta mann­eskja geri sitt til að rjúfa smit­keðj­una“.

Fram­kvæmda­stjór­inn sagð­ist gera sér grein fyrir að verk­efnið væri ekki ein­falt og að margir þjóð­ar­leið­togar væru að vinna við mjög erf­iðar aðstæður, m.a. efna­hags­legar og félags­legar.

Benti hann á nýja rann­sókn Sam­ein­uðu þjóð­anna um að á síð­asta ári hafi 690 millj­ónir manna búið við sult. Enn er óljóst hver áhrif COVID-19 verða á fátækt en sér­fræð­ingar Sam­ein­uðu þjóð­anna telja að um 130 millj­ónir manna til við­bótar eigi eftir að bæt­ast í hóp hungr­aðra jarð­ar­búa.

„Það er ekki hægt að stytta sér leið út úr far­aldr­inum,“ sagði Ghebr­eyesus. „Við vonum öll að árang­urs­ríkt bólu­efni finn­ist en við verðum að ein­beita okkur að því núna að nota þau verk­færi sem við höfum til að draga úr útbreiðsl­unni og bjarga manns­lífum.“

Erindi sínu lauk hann á þessum orðum: „Ég vil vera hrein­skil­inn við ykkur: Við munum ekki snúa til sömu lífs­hátta í fyr­ir­sjá­an­legri fram­tíð. En við höfum veg­vísi til að geta náð tökum á sjúk­dómnum og haldið áfram að lifa líf­inu.“

Veg­vísir­inn er þrí­þættur:

Í fyrsta lagi þarf að vinna að því að fækka smitum og draga úr dauðs­föllum af völdum sjúk­dóms­ins.

Í öðru lagi að vald­efla sam­fé­lög svo fólk taki per­sónu­legar sótt­varn­ar­ráð­staf­anir alvar­lega og gæti að hvert öðru.

„Og í þriðja lagi þurfum við sterka þjóð­ar­leið­toga og útfærslu á aðgerð­ar­á­ætl­unum sem er komið til skila á skil­virkan og skilj­an­legan hátt. Sama hvar hvert land er statt á kúrfu far­ald­urs­ins, það er aldrei of seint að grípa til aðgerða.“

Samvinna væri lyk­il­at­riði og hún þyrfti að hefj­ast þegar í stað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár