Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkar á milli mánaða – í fyrsta sinn frá 2019

Verð á ein­býl­is­húsum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækk­aði um 2,4 pró­sent á milli mán­aða og vísi­tala íbúða­verðs heilt yfir lækk­aði um 0,4 pró­sent. Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkar nú í fyrsta sinn frá árinu 2019.

Fasteignaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkar á milli mánaða, vegna lækkunar á eignum í sérbýli.
Fast­eigna­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkar á milli mán­aða, vegna lækk­unar á eignum í sér­býli. Mynd: Bára Huld Beck

Vísitala íbúða­verðs á höfu­borg­ar­svæð­inu lækk­aði um 0,4 pró­sent í ágúst frá fyrri mán­uði, sam­kvæmt nýbirtum tölum frá Þjóðskrá. Þetta er í fyrsta sinn síðan í nóv­em­ber árið 2019 sem íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu lækkar á milli mán­aða.

Íbúða­verð hefur hækkað hratt á höf­uð­borg­ar­svæð­inu rétt eins og víðar um land und­an­farin miss­eri og síð­ast­liðna 12 mán­uði hækk­aði vísi­talan, sem sýnir breyt­ingar á vegnu með­al­tali fer­metra­verðs, um alls 23 pró­sent.

Und­an­farna þrjá mán­uði hefur hækk­unin þó ein­ungis numið 2,9 pró­sentum og því ljóst að veru­lega er farið að hægj­ast á verð­hækk­unum – og þær jafn­vel byrj­aðar að ganga til baka, ef marka má breyt­ingar á vísi­töl­unni.

Einungis vísitalan fyrir sérbýli lækkaði

Verð á eignum í fjöl­býli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hélt áfram að hækka lít­il­lega á milli mán­aða, sam­kvæmt gögnum Þjóð­skrár.

Vísi­talan fyrir sér­býli gaf hins­vegar eftir og gefur til kynna að með­al­fer­metra­verð ein­býl­is­húsa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi lækkað um 2,4 pró­sent frá fyrri mán­uði.

Vextir halda áfram að hækka

Í síð­asta júlí­mán­uði hækk­aði íbúða­verðið um 1,1 pró­sent frá fyrri mán­uði, sem var mun minni hækkun á milli mán­aða en mælst hafði í nokkuð langan tíma.

Þótti það merki um að aðgerðir Seðla­banka Íslands till þess að hafa hemil á verð­bólgu væru byrj­aðar að hafa áhrif á hús­næð­is­mark­að­inn, en stýri­vextir höfðu þá verið hækk­aðir upp í 4,75 pró­sentu­stig.

Pen­inga­stefnu­nefnd Seðla­bank­ans ákvað svo undir lok ágúst­mán­aðar að hækka vexti enn frekar og eru stýri­vextir nú 5,5 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár