Þyngsta dýr allra tíma fundið — mun þyngra en steypireyður

Vís­inda­menn í Perú fundu stein­gerv­inga sem þeir átt­uðu sig ekk­ert á. Enda komu nið­ur­stöð­urnar þeim í opna skjöldu

Perucetus Colossus
Perucetus Colossus svaml­aði um á grunn­sævi, að því er talið er, en spretti ekki úr spori á úthöf­unum enda­lausu. Myndin er úr Guardian, merkt Alberto Gennari.

Fyrir 13 árum voru per­úískir stein­gerv­inga­fræð­ingar að störfum í Ica-eyði­mörk­inni syðst í land­inu. Þá fundu þeir í berg­lögum stein­gerv­inga af ein­hverju tagi sem þeir áttu mjög erfitt með að botna í. Beinin virt­ust hafa verið stór og sér­lega þung en fyrir ýmissa hluta sakir var mjög erfitt að átta sig á af hvaða skepnu beinin væru. Til dæmis vant­aði höf­uðið.

Í þau 13 ár sem síðan eru liðin hafa vís­inda­menn­irnir legið yfir stein­gerv­ing­unum úr eyði­mörk­inni og nið­ur­staða rann­sókna þeirra hefur nú loks verið kynnt í nýút­komnu hefti af vís­inda­rit­inu Nature.

Dýrið reynd­ist vera hvalur og ekki bara ein­hver hvalur, heldur skepna sem engan óraði fyrir því að hafi verið til.

Og senni­lega þyngsta dýr sem nokkru sinni hefur verið til á Jörðinni, hvorki meira né minna.

Hingað til höfum við trúað því að steypireyð­urin sé þyngsta dýr í ger­vallri sögu Jarð­ar­innar. Frá upp­hafi. Þyngsta steypireyður sem vitað er um vóg 173 tonn. Það er miklu miklu þyngra en jafn­vel hinar stærstu og þyngstu risa­eðlur.

En „nýi“ hval­ur­inn gæti mögu­lega hafa náð allt að 340 tonnum að þyngd.

Verið sem sé helm­ingi þyngri en stolt okkar steypireyð­urin.

Hins vegar virð­ist þessi hvalur — sem nú hefur hlotið vís­inda­heitið Perucetus (eftir „heima­landi“ sínu) Colossus — ekki hafa verið jafn langur og steypireyður. Hún getur náð 31 metra að lengd, en per­úísku vís­inda­menn­irnir telja að ris­inn þeirra hafi lík­lega ekki orðið mikið lengri en 20 metrar.

En hann var sem sagt ansi gild­vax­inn.

Margt fleira kom mjög á óvart við þessu nýfundnu skepnu. Í fyrsta lagi var Colossus uppi fyrir 40 millj­ónum ára. Það þýðir að risarnir voru uppi snemma í þró­un­ar­sögu hvala, því það eru talin „aðeins“ fimm­tíu millj­ónir ára síðan til­tekin klauf­dýr, þá búsett á að giska þar sem nú er Pakistan, tóku sér ból­festu í sjónum, kunnu vel við sig og fóru að þró­ast hratt í átt til hvala.

Á „aðeins“ tíu millj­ónum ára hafa hvalir sem sagt þró­ast nán­ast á leift­ur­hraða (í jarð­sögu­legum skiln­ingi) frá hinum fyrstu smá­hvelum og til hins tröll­vaxna Colossus.

Colossus bar ýmis merki þess að vera „frum­stæður“ hvalur.

Bein hans voru mjög þung, ólíkt beinum hvala nútil­dags sem eru fremur létt.

Og hann var enn með eins­konar litla fram­fætur, fremur en bægsli, og aft­ur­fætur gamla klauf­dýrs­ins voru ekki með öllu horfnir. Og talið er að Colussus hafi ekki synt um úthöfin stór og blá eins og stór­hvalir gera nú, heldur hafi hann haldið sig á grunn­sævi og damlað þar um í hægðum sínum og senni­lega étið lin­dýr og þang.

Sem sagt lifað ekki ósvip­uðu lífi og sækýr gera núna — en þær eru reyndar ekki hót skyldar hvölum.

Og vænt­an­lega hefur Colossus notað litlu fram­fæt­urna til að mjaka sér áfram við botn­inn á grunn­sæv­inu.

Annars er mjög margt enn á huldu um Colossus, meðal ann­ars og ekki síst vegna þess að enn vantar haus á skepn­una. Af tönn­unum mætti ráða mjög margt um lifn­að­ar­hætti ris­ans og alveg sér í lagi hvað hann lagði sér til munns.

En þessi óvænti fundur sýnir okkur að þró­un­ar­sagan getur enn komið okkur í opna skjöldu því eng­inn átti von á að svo stór hvalur gæti hafa verið til svo snemma á þró­un­ar­braut­inni.

Hér skrifar The Guardian nánar um Perucetus Colossus og ræðir við vís­inda­mann­inn Alberto Collareta sem stýrði rann­sókn­inni.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár