Aðildarríkin ákveða sjálf hvort tekið er á móti fólki frá „öruggum löndum“

Stjórn ESB seg­ist velja „örugg lönd“ út frá heil­brigð­is­sjón­ar­miðum. Listinn er engu að síður sagður mála­miðlun því mjög skiptar skoð­anir eru innan sam­bands­ins á því hvernig standa eigi að opnun ytri landamær­anna.

Einn á ferð. Ferðamaður gengur frá flugvellinum í Munchen.
Einn á ferð. Ferða­maður gengur frá flug­vell­inum í Munchen. Mynd: EPA

Hvaðan fólk er að koma en ekki hvar það er með rík­is­borg­ara­rétt mun skera úr um hvort því verður hleypt inn fyrir landa­mæri ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins. Sam­bandið birti í gær lista yfir fimmtán lönd utan ESB sem sögð eru örugg og geta aðild­ar­ríkin, ef þau kjósa, byrjað að taka á móti gestum frá þeim í dag.

Banda­ríkin, Brasilía og Rússland eru ekki í þeim hópi.

Stjórn ESB seg­ist byggja ákvörðun sína á heil­brigð­is­sjón­ar­miðum en ekki póli­tík. Viðmiðin sem eru notuð eru fyrst og fremst sögð þrenns konar: Fjöldi nýrra COVID-19 til­fella síð­ustu fjórtán daga, þróun til­fella frá upp­hafi far­ald­urs­ins og hvernig stjórn­völd hvers lands eru að takast á við far­sótt­ina.

Um mikla jafn­væg­is­list er að ræða: Að auka ferða­lög fólks að nýju til að ýta við efna­hags­líf­inu á sama tíma og hóp­sýk­ingar eru enn að koma upp í mörgum Evr­ópu­löndum og víða ann­ars staðar í heim­inum. Að úti­loka ferða­menn frá Banda­ríkj­unum þykir svo áfell­is­dómur yfir því hvernig Donald Trump for­seti og hans stjórn hefur tekið á far­aldr­inum.

Ytri landa­mæri ESB verða frá og með deg­inum í dag, 1. júlí, opin fyrir ferða­mönnum sem eru að koma frá eft­ir­far­andi fjórtán ríkjum: Alsír, Ástralíu, Kanada, Georgíu, Japan, Svart­fjalla­landi, Marokkó, Nýja-Sjálandi, Rúanda, Serbíu, Suður-Kóreu, Taílandi, Túnis og Úrúgvæ.

Gestir sem eru að koma frá fimmt­ánda land­inu, Kína, verða einnig boðnir vel­komnir ef kín­versk stjórn­völd opna sín landa­mæri með sama hætti fyrir fólki frá löndum ESB.

Stjórn­völd í Banda­ríkj­unum voru þau fyrstu til að banna ferða­lög fólks frá ESB-löndum í far­aldri COVID-19. Þá til­kynn­ingu gaf Trump út þann 11. mars. Þá var far­ald­ur­inn í hámarki í Ítalíu og var að breið­ast hratt út í öðrum löndum Evrópu. ESB for­dæmdi í fyrstu þá ákvörðun en ákvað svo sjálft nokkru síðar að setja á ferða­bönn. Í dag verða ytri landa­mæri sam­bands­ins opnuð og á list­anum sem gef­inn var út í dag eru þau lönd utan ESB (og Schengen-landa eins og Íslands) sem telj­ast „örugg“. Listinn verður í stöðugri end­ur­skoðun.

Á síð­ustu vikum hefur ýmsum ferða­tak­mörk­unum á ferðum fólks milli ákveð­inna ríkja innan ESB verið aflétt. Sum lönd hafa tekið sig saman og opnað landa­mæri sín á milli eða gefið út sína eigin lista yfir „örugg lönd“ eða öllu heldur lista yfir „áhættu­svæði“ sem ekki er tekið á móti ferða­mönnum frá.

Þó að fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hafi nú gefið út list­ann yfir „örugg lönd“ er ekki þar með sagt að öllum 26 aðild­ar­ríkj­unum beri skylda til að taka á móti ferða­mönnum frá þessum löndum. Í gær hafði rétt rúmur meiri­hluti þeirra þó sam­þykkt að gera það.

Lönd sunnar í álfunni vilja fleiri á listann

Rík­is­stjórnir sumra landa innan ESB, svo sem Þýska­lands, hafa viljað fara sér­stak­lega var­lega. Þar hafa síð­ustu vikur komið upp hóp­sýk­ingar, m.a. meðal starfs­manna kjöt­vinnslu­fyr­ir­tækja. Vildu þær hafa list­ann styttri frekar en lengri og að á honum væru lönd þar sem fjöldi dag­legra smita væri lít­ill og færi lækk­andi, lönd sem byggju yfir góðu heil­brigð­is­kerfi og gæfu út áreið­an­leg gögn um gang far­ald­urs­ins. Stjórn­völd landa sunnar í álf­unni svo sem Grikk­lands og í Portúgal, landa sem reiða sig gríð­ar­lega mikið á ferða­menn, vildu gera hið gagn­stæða og hafa list­ann eins langan og mögu­legt væri. Heim­ildir fjöl­miðla herma að í síð­ustu viku, er drög að list­anum voru enn í skoðun, hafi hann talið yfir 50 lönd.

Frönsk yfir­völd vildu svo að kröfur yrðu gerðar til þeirra landa sem lentu á list­anum að þau opn­uðu einnig sín landa­mæri fyrir fólki frá ESB. Það var almennt ekki gert, en þó í til­felli Kína.

Stjórn­mála­skýrendur segja fyrstu útgáfu list­ans, sem birt var í gær, því mikla mála­miðlun. Hann verður í stöðugri end­ur­skoðun og er aðeins ráð­gef­andi fyrir aðild­ar­ríkin sem þurfa ekki að fara eftir honum frekar en þau kjósa.

Það eru ekki aðeins áhyggjur af því að ferða­menn utan ESB komi með ný smit til Evrópu eftir þessa opnun landamær­anna. Ekki eru minni áhyggjur af því að fólk sem heim­sæki lönd á borð við Svíþjóð, Bretland og Portúgal, þar sem far­ald­ur­inn er enn útbreiddur, smit­ist þar.

Birta á end­ur­skoð­aðan lista á tveggja vikna fresti. Á list­ann munu smám saman bæt­ast fleiri lönd en sá mögu­leiki er einnig fyrir hendi að ein­hver verði tekin af honum. Allar þessar ákvarð­anir ætlar stjórn ESB að taka út frá heil­brigð­is­sjón­ar­miðum, það er að segja hvernig far­ald­ur­inn þró­ast.

Fyrir utan löndin fimmtán (fjórtán + Kína á hlið­ar­lín­unni) hafa smá­ríki á borð við Andorra, Mónakó, San Marínó og Vatíkanið, einnig sinn sess á list­anum yfir „öruggu löndin“.

Þá fylgja ákvörð­un­inni um opnun landamæra ESB fjöl­margar und­an­þágu­heim­ildir. Heil­brigð­is­starfs­menn, fólk í hjálp­ar­starfi, erind­rekar erlendra ríkja, far­þegar í tengiflugi, hæl­is­leit­endur og náms­menn eru meðal þeirra sem geta fengið und­an­þágur til ferða­laga þó að þeir séu að koma frá löndum sem ekki hafa unnið sér inn sess á list­anum.

En Banda­ríkin þurfa að bíða enn um sinn eins og fyrr segir. Þar breidd­ist far­ald­ur­inn aðeins seinna út en í Evrópu. Hann er enn í hámarki á mörgum stöðum og dag­legur fjöldi greindra smita er enn að aukast. Í gær, þriðju­dag, greindust þar yfir 48 þús­und manns með COVID-19. Það var fjórði dag­ur­inn á einni viku þar sem mesti fjöldi smita var greindur frá upp­hafi far­ald­urs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár