Aldraðir Bretar beðnir að halda sig til hlés næstu mánuði

Feneyjar virð­ast mann­lausar og gondól­arnir liggja bundnir við bryggjur. Ásýnd New York-borgar mun taka miklum breyt­ingum í dag þegar fólk getur ekki lengur farið inn á veit­inga­staði og bari. Skólum þar hefur einnig verið aflýst.

Markúsartorgið í Feneyjum er nær mannlaust.
Mark­ús­ar­torgið í Feneyjum er nær mann­laust. Mynd: EPA

Nýja kór­ónu­veiran hefur nú greinst í 148 löndum. Tæplega 170 þús­und manns um allan heim hafa greinst með smit og yfir 6.500 hafa lát­ist. Fleiri smit hafa nú greinst utan Kína en innan í fyrsta skipti frá því að far­ald­ur­inn braust út í byrjun árs.

Enn sem komið er hafa lang­flest dauðs­föllin vegna veiru­sjúk­dóms­ins COVID-19 átt sér stað í Kína. Yfir 1.800 hafa lát­ist á Ítalíu og tæp­lega 730 í Íran. Í Banda­ríkj­unum hafa nú 3.500 greinst og 57 lát­ist. Smit­sjúk­dóma­stofn­unin þar í landi hefur lagt til að sam­komur tak­mark­ist næstu átta vik­urnar við fimm­tíu manns.

Ásýnd borga og bæja víða um heim er óvenju­leg þessa dag­ana. Ítalska borgin Feneyjar er allt árið um kring gríð­ar­lega vin­sæll áfanga­staður ferða­manna svo mörgum var farið að þykja nóg um. Núna eru þar fáir á ferli og gondól­arnir mara mann­lausir við bryggjur.

Ástandið er svipað í mörgum öðrum ítölskum borgum en þar í landi hefur verið gripið til alls­herjar lok­unar stofn­ana, versl­ana, veit­inga­staða og ann­arra sam­komu­staða.

Nú hefur einnig verið gripið til svip­aðra aðgerða í New York-borg. Þar verður skólum, veit­inga­húsum, börum og öðrum sam­komu­stöðum lokað fyrir gestum til að reyna að hefta útbreiðslu veirunnar. Þó má sækja mat og senda heim. Borg­ar­yf­ir­völd í Los Angeles ætla að feta sömu slóð og sam­bær­legar aðgerðir eru við lýði í Washington-ríki.

Ákveðið hefur verið að loka nokkrum hót­elum og spila­vítum í Las Vegas.

Heil­brigð­is­yf­ir­völd í Bret­landi hafa beðið fólk yfir sjö­tugt um að halda sig til hlés í heima­sótt­kví næstu vik­urnar og jafn­vel mán­uð­ina. Þetta er gert vegna þess að aldr­aðir eru í einum helsta áhættu­hópnum.

Í Lúx­em­borg, Frakk­landi og Belgíu eru barir og veit­inga­hús lokuð.

Stjórn­völd í Þýska­landi ætla að loka landa­mærum sínum fyrir öllum nema þeim sem nauð­syn­lega þurfa að ferð­ast.

Ind­verski kvik­mynda­iðn­að­ur­inn, Bollywood, mun leggj­ast í dvala næstu vik­urnar.

Í Hondúras hefur einnig veirð gripið til mjög rót­tækra aðgerða. Bæði opin­berir starfs­menn og starfs­menn einka­fyr­ir­tækja hafa verið sendir heim, fyrir utan þá sem sinna heil­brigð­is­þjón­ustu, lög­gæslu og svo fram­vegis. Flugum hefur verið aflýst og sömu­leiðis almenn­ings­sam­göngum. Tak­mark­an­irnar munu gilda í að minnsta kosti viku. Sex smit hafa greinst í land­inu til þessa.

Í morgun bætt­ist Gana í hóp þeirra ríkja sem hafa bannað komur fólks frá helstu áhættu­svæðum veiru­sýk­ing­ar­innar.

Í Suður-Afríku hefur verið lýst yfir neyð­ar­á­standi og þar hefur landa­mærum einnig verið lokað fyrir fólki frá mestu áhættu­svæð­unum, m.a. frá Kína, Íran, Ítalíu, Spáni, Bret­landi og Banda­ríkj­unum.

Í Kenía hafa einnig verið settar á ýmsar tak­mark­anir á ferða­lögum. Fólk frá löndum þar sem veiran hefur greinst er bannað að koma þangað. Þar hafa þrjú til­felli greinst.

Í Tansaníu hefur ekk­ert til­felli greinst en stjórn­völd ætla engu að síður að grípa til harðra aðgerða og hafa aflýst öllu milli­landa­flugi. Sömu sögu er að segja frá Marokkó.

Fleiri lönd í Afríku hafa gripið til sam­bæri­legra aðgerða en í álf­unni hafa mun færri til­felli greinst en flestum öðrum heims­álfum. Þó hafa smit verið stað­fest í 26 löndum Afríku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár