Tugmilljarða framsal á hlutum í Samherja er fyrirframgreiddur arfur og sala

Stærstu eig­endur Samherja greindu frá því í síð­ustu viku að þeir hefðu fram­selt hluta­bréf í inn­lendri starf­semi sjáv­ar­út­vegs­ris­ans til barna sinna. Um er að ræða fyr­ir­tæki sem heldur, beint og óbeint, á 16,5 pró­sent af úthlut­uðum kvóta á Íslandi.

Framsal hluta­bréfa í Samherja hf. frá helstu eig­endum félags­ins til barna sinna átti sér stað ann­ars vegar með því að börnin fengu fyr­ir­fram­greiddan arf, og hins vegar með sölu milli félaga. Ekki fást upp­lýs­ingar hjá Samherja um virði þess hlutar sem til­kynnt var um í síð­ustu viku að færður hefði verið á milli kyn­slóða né hvernig til­færsl­unni var skipt milli fyr­ir­fram­greidds arfs og sölu.

Í svari Björg­ólfs Jóhanns­sonar, ann­ars for­stjóra Samherja, við fyr­ir­spurn Kjarnans um málið kemur fram að Samherji sjálfur sé ekki aðili að breyt­ing­unum og því sé hann ekki í for­svari fyrir þær.

Fyr­ir­spurn Kjarnans var ekki send á Björgólf per­sónu­lega heldur á það net­fang sem Samherji hefur not­ast við árum saman í sam­skiptum sínum við fjöl­miðla. Hinn for­stjóri Samherja, Þor­steinn Már Bald­vins­son, og útgerð­ar­stjór­inn Kristján Már Vil­helms­son, eru tveir þeirra þriggja eig­enda sem eru að fram­selja hluti sína í Samherja til barna sinna. Þriðji stóri eig­and­inn er Helga S. Guð­munds­dóttir, fyrr­ver­andi eig­in­kona Þor­steins Más.

Af fyr­ir­fram­greiddum arfi ber að greiða tíu pró­sent erfða­fjár­skatt af öllum arfs­hlut­anum. Af sölu­hagn­aði hluta­bréfa ber að greiða fjár­magnstekju­skatt, sem er í dag 22 pró­sent. 

Viðhalda mikilvægum fjölskyldutengslum

Samherji greindi frá því að heima­síðu sinni í síð­ustu viku að 86,5 pró­sent hlutur í Samherja hf., öðrum helm­ingi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, hefði verið færður frá þre­menn­ing­unum til barna þeirra. Eftir þá til­færslu eru stærstu hlut­hafar Samherja hf. Bald­vin og Katla Þor­steins­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 43,0 pró­sent hlut í Sam­herja og Dagný Linda, Hall­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín Krist­jáns­börn, sem munu fara sam­an­lagt með um 41,5 pró­sent hluta­fjár. Í til­kynn­ingu á vef Samherja sagði að með þessum hætti „vilja stofn­endur Sam­herja treysta og við­halda þeim mik­il­vægu fjöl­skyldu­tengslum sem félagið hefur ætíð byggst á og hafa verið horn­steinn í rekstr­in­um.“

Engar upp­lýs­ingar hafa verið sendar til fyr­ir­tækja­skrár vegna þess­ara breyt­inga. Þar eru Kristján, Þor­steinn Már og Helga enn skráð sem aðal­eig­endur Samherja hf. Því er ekki hægt að sjá af slíkum gögnum, að minnsta kosti enn sem komið er, hvert kaup­verðið á hlut­unum var í sölu á milli félaga.

Eigið fé Samherja hf. var 446,7 millj­ónir evra í árs­lok 2018, en árs­reikn­ingur fyr­ir­tæk­is­ins fyrir árið 2019 hefur ekki verið skilað til fyr­ir­tækja­skrár, enda frestur til slíks ekki útrunn­inn. Á gengi þess tíma var eigið féð um 60 millj­arðar króna. Á gengi dags­ins í dag er það um 70 millj­arðar króna þar sem krónan hefur veikst umtals­vert gagn­vart evru, upp­gjörs­mynt Samherja, á þessu ári.

Í ljósi þess að afla­verð­mæti fyrstu sölu á afla sem íslensk fisk­veiði­skip veiddu í fyrra var 17 millj­örðum krónum meira en á árinu 2018, eða alls 145 millj­arðar króna, má ætla að Samherji hafi bætt við það eigið fé á árinu 2019. Árið í fyrra var nefni­lega það besta fyrir íslenskan sjáv­ar­út­veg í heild frá 2015 mælt í afla­verð­mæti.

Með beint og óbeint 16,5 prósent af úthlutuðum kvóta

Samherji er risi í sjáv­ar­út­vegi í Evrópu. Síðustu ára hafa verið gríð­ar­lega arð­bær hjá fyr­ir­tæk­inu. Frá 2011 og út árið 2018 nam sam­an­lagður hagn­aður þess 112 millj­örðum króna.

Lengi vel var öll starf­semi félags­ins rekin undir hatti Samherja hf. en sam­stæð­unni var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki á árinu 2018, ann­ars vegar Samherja hf. og hins vegar Samherja Holding. Skipt­ingin á eigin fé sam­stæð­unnar var nán­ast til helm­inga: 446,7 millj­ónir evra urðu eftir í Samherja hf. en 384,7 millj­ónir evra færður yfir til Samherja Holding.

Þessi til­högun var sam­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­em­ber 2017. Sam­eig­in­legt eigið fé beggja félaga var 111 millj­arðar króna í lok árs 2018 miðað við gengi krónu þá, en bæði gera þau upp í evrum. Umreiknað í krónur hefur það eigið fé hækkað veru­lega síðan þá, enda krónan fallið mikið. Miðað við núver­andi gengi evru væri sam­eig­in­leg eig­in­fjár­staða beggja félaga í kringum 130 millj­arða króna.

Sá hluti sem færður var yfir til barn­anna er Samherji hf., sem heldur utan um þorra inn­lendrar starf­semi fyr­ir­tæk­is­ins og starf­semi þess í Færeyjum. Þar með talið eru þær afla­heim­ildir sem Samherji heldur á sem úthlutað hefur verið af íslenskum stjórn­völdum.

Miklar aflaheimildir færðar til barnanna

Þær eru gríð­ar­legar. Sam­herji hf. er með næst mesta afla­hlut­deild ein­stakra útgerða , eða 7,02 pró­sent. ­Út­gerð­­­­­ar­­­­­fé­lag Akur­eyr­­­­­ar, sem er í 100 pró­­­­­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­­­­­sent kvót­ans og Sæból fjár­­­­­­­­­fest­inga­­­­­fé­lag heldur á 0,64 pró­­­­­sent hans. Síld­­­­­ar­vinnslan, sem Sam­herji á beint og óbeint 49,9 pró­sent hlut í, er svo með 5,2 pró­sent afla­hlut­deild og Berg­ur-Hug­inn, í eigu Síld­ar­vinnsl­unn­ar, er með 2,3 pró­sent af heild­ar­kvóta til umráða. Sam­an­lagt er þessi blokk með 16,5 pró­sent afla­hlut­deild.

Lög um stjórn fisk­veiða segja að hámarks­afla­hlut­deild sem ein­stakir eða tengdir aðilar halda á megi ekki fara yfir tólf pró­sent af heild­ar­verð­mæti afla­hlut­deildar allra teg­unda. Sam­kvæmt gild­andi lögum fer eng­inn yfir þau mörk, en mikil póli­tísk umræða hefur verið um að breyta því hvað telj­ist tengdir aðilar í sjáv­ar­út­vegi und­an­farin miss­eri. Eins og lögin eru til að mynda í dag telj­ast hjón, sam­búð­ar­fólk og börn þeirra ekki tengdir aðilar og ein útgerð þarf að eiga yfir 50 pró­sent hlut í annarri til að þær telj­ist tengdar. Þá getur for­stjóri einnar útgerðar setið sem stjórn­ar­for­maður ann­arrar án þess að þær telj­ist tengdar í skiln­ingi gild­andi laga.

Eiga áfram erlendu starfsemina

Þor­steinn Már, Kristján og Helga munu áfram eiga uppi­stöð­una í hinum hluta starf­sem­innar, Samherja Holding. Á meðal þeirra eigna sem færðar voru þangað yfir á árinu 2018 voru eign­­­ar­hlutir Sam­herja í dótt­­­ur­­­fé­lögum í Þýska­landi, Nor­egi, Bret­landi og í fjár­­­­­fest­inga­­­fé­lagi á Ísland­i. Þar er til að mynda 27,06 pró­sent hlutur í Eimskip.

Inni í þeim hluta er líka fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból, sem hét áður Polar Seafood. Það félag á tvö dótt­ur­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­festi á Kýp­ur. Þau félög héldu meðal ann­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­íu, þar sem sam­stæðan og stjórn­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­ast yfir ódýran kvóta.

Auk þess er uppi grun­ur, eftir ítar­lega opin­berum Kveiks og Stund­ar­innar í nóv­em­ber í fyrra, um að Sam­herji hafi stundað umfangs­mikla skatta­snið­göngu í gegnum Kýpur og aflands­fé­lög og pen­inga­þvætti á fjár­magni sem end­aði inn á reikn­ingum norska bank­ans DNB. Þessi mál eru til rann­sóknar í Namibíu, á Íslandi og í Noregi. Engin nið­ur­staða liggur fyrir úr þeim rann­sóknum en fjöldi áhrifa­manna í Namibíu hafa verið haldi þar mán­uðum saman vegna máls­ins og þeim verið birt ákæra, meðal ann­ars fyrir spill­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

AfhjúpunSamherjaskjölin

Lög­reglan á nýrri slóð: Fundu skila­boð Þor­steins

Tækni­mönnum á vegum hér­aðs­sak­sókn­ara tókst á dög­unum að end­ur­heimta á annað þús­und smá­skila­boð sem fóru á milli Þor­steins Más Bald­vins­sonar og Jóhann­esar Stef­áns­sonar, á meðan sá síð­ar­nefndi var við störf í Namibíu. Skila­boðin draga upp allt aðra mynd en for­stjór­inn og aðrir tals­menn fyr­ir­tæk­is­ins hafa reynt að mála síð­ustu fimm ár.

16 mín. lestur

RannsóknirSamherjaskjölin

Lögmaður namibískra sjó­manna við Samherja: „Borgið það sem þið skuldið þeim“

Lögmaður skip­verj­anna tutt­ugu og þriggja sem dæmdar voru bætur vegna ólög­legrar upp­sagnar Sam­herj­a­fé­lags í Namibíu, kallar eftir því að Íslend­ingar axli ábyrgð á fram­komu sinni í Namibíu. Það stand­ist enga skoðun að Samherji hafi ekki vitað af mál­inu. For­stjóri Samherja lof­aði því að fyr­ir­tækið myndi sjá til þess að staðið yrði við allar skuld­bind­ingar og sér­stak­lega hugað að sjó­mönnum sem starfað hefðu fyrir félagið.

Mest lesið undanfarið ár