Aflaverðmæti íslenskra útgerða var 145 milljarðar króna í fyrra

Þrátt fyrir loðnu­brest jókst afla­verð­mæti þeirra sjáv­ar­af­urða sem íslenskar útgerðir veiddu í fyrra um 17 millj­arða króna. Þar munar mestu um aukið verð­mæti þorsks, sem skil­aði 12,6 millj­örðum fleiri krónum í kass­ann hjá útgerðum.

Afla­verð­mæti fyrstu sölu á afla sem íslensk fisk­veiði­skip veiddu í fyrra var 17 millj­örðum krónum meira en á árinu 2018. Afla­verð­mætið fyrir allt árið 2019 var 145 millj­arðar króna sem er það mesta sem verð­mætið hefur verið innan árs síðar árið 2015.

Stærstur hluti fisk­afl­ans er seldur í beinni sölu útgerða til vinnslu. Árið 2019 var 75 pró­sent af heild­ar­afla seldur í beinum við­skiptum og nam verð­mæti þess afla 77,5 millj­örðum sem er um 53 pró­sent af heild­ar­verð­mæti afl­ans. Verðmæti sjó­frysts afla nam 37,8 millj­örðum og verð­mæti afla sem fór á fisk­mark­aði nam 22,2 millj­örðum.

Þetta kemur fram í nýjum bráða­birgða­tölum frá Hagstofu Íslands.

Þessi verð­mæta­aukn­ing átti sér stað þrátt fyrir að afli botn­fisk­teg­unda hafi verið álíka mikil og á árinu 2018, eða tæp­lega 481 þús­und tonn. Afla­verð­mæti hans jókst hins vegar um 23,7 pró­sent á síð­asta ári og var í heild 112,3 millj­arðar króna. Mest veidd­ist að venju af þorski, eða 273 þús­und tonn, sem var svo seldur fyrir um 70 millj­arða króna, sem er 12,6 millj­örðum krónum meira en þorsk­sala skil­aði útgerðum árið 2018.

[adspot]Aflasam­dráttur varð í veiðum á upp­sjáv­ar­afla og skipti þar mestu að engin loðna var veidd. Hlut­falls­lega var sam­drátt­ur­inn í upp­sjáv­ar­afla 11,6 pró­sent en í krónum talið nam hann 2,8 millj­örðum króna þar sem verð­mæti fyrstu sölu á honum var 21,6 millj­arðar króna. Þar mun­aði mestu um mak­ríl sem skil­aði 8,5 millj­örðum króna í kass­ann fyrir íslenskar útgerðir.

Áframhald á góðum gangi í sjávarútvegi

Frá hruni og til loka árs 2018 batn­aði eig­in­fjár­­­staða 92 pró­sent sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja um 355 millj­­arða króna sam­kvæmt Sjáv­ar­út­vegs­gagna­grunni Deloitte fyrir árið 2018.

Alls greiddu þau fyr­ir­tæki sem grunn­ur­inn nær yfir sér arð upp á 12,3 millj­­arða króna árinu 2018. Frá árinu 2010 og til loka árs 2018 greiddu þau því 92,5 millj­­arða króna til eig­enda sinna í arð­greiðsl­­ur.

Sam­an­lagt hefur hagur sjá­v­­­ar­út­­­veg­­ar­ins, því vænkast um 447,5 millj­­arða króna frá árinu 2008 og út árið 2018, eða á einum ára­tug.

Miðað við aukið afla­verð­mæti er ljóst að sá góði gangur hefur haldið áfram í fyrra og að eigið fé útgerð­ar­fyr­ir­tækja hafi haldið áfram að aukast.

[adspot]Veið­i­­­gjöld voru 11,4 millj­­arðar króna árið 2018, sem eru þau hæstu sem geir­inn hefur greitt. Það nán­­ast tvö­­­föld­uð­ust milli ára, úr 6,8 millj­­örðum króna árið 2017. Sam­tals frá árinu 2011, og út síð­­asta ár, greiddi sjá­v­­­ar­út­­­veg­­ur­inn 63,3 millj­­arða króna í veið­i­­­gjöld.

Veið­i­­­gjöldin lækk­uðu umtals­vert í fyrra, og áætlað var að þau myndu skila um sjö millj­­örðum króna í rík­­is­­kass­ann sam­­kvæmt fjár­­laga­frum­varp­i stjórn­valda. Veiði­gjöldin áttu síðan að skila inn enn minna í rík­is­kass­ann á í ár vegna fjár­fest­inga í grein­inni eða alls um fimm millj­örðum króna.

Ný lög um veið­i­­­­gjald tóku gildi í byrjun árs í fyrra þar sem meðal ann­­­ars var settur nýr reikni­stofn sem bygg­ist á afkomu við veiðar hvers nytja­­­stofns. Í fjár­­­laga­frum­varp­inu sagði að með breyt­ing­unum sé dregið úr töf við með­­­­­ferð upp­­­lýs­inga um átta mán­uði. „Þá er veið­i­­gjaldið nú ákveðið fyrir alm­an­aksár í stað fisk­veið­i­­ár­s.“

Nokkrar blokkir með stærstan hluta kvótans

Í sept­em­ber 2019 var Sam­herji með 7,1 pró­­sent kvót­ans. Útgerð­ar­fé­lag Akur­eyr­ar, sem er í 100 pró­sent eigu Sam­herja, heldur svo á 1,3 pró­sent kvót­ans og Sæból fjár­fest­inga­fé­lag heldur á 0,64 pró­sent hans. Síld­­ar­vinnslan heldur á 5,3 pró­­sent allra afla­heim­ilda og sjá­v­­­ar­út­­­vegs­­fyr­ir­tækið Berg­­ur-Hug­inn er síðan með 2,3 pró­­sent kvót­ans en það er að öllu leyti í eigu Síld­­ar­vinnsl­unn­­ar. Samherji á beint og óbeint 49,9 pró­sent í Síld­ar­vinnsl­unni og í Sam­herj­a­skjöl­unum kom fram að fyr­ir­tækið hefði verið kynnt sem upp­sjáv­ar­hluti Sam­herj­a­sam­stæð­unnar erlendis, þrátt fyrir að for­svars­menn fyr­ir­tækj­anna tveggja hafi ávallt neitað því hér­lendis að þau væru tengdir aðilar.

Sam­an­lagt er afla­hlut­­deild þess­­ara aðila er því rúm­lega 16,6 pró­­sent, eða langt yfir tólf pró­sent lög­bundnu hámarki, sem var sett til að koma í veg fyrir að of mikið af afla­heim­ildum myndi safn­ast á fárra hend­ur.

Sam­herj­a­sam­stæðan er ekki sú eina sem liggur undir grun um að vera komin vel yfir tólf pró­sent afla­hlut­deild­ar­mark­ið.

[links]Stærsti eig­andi Brim er Útgerð­­ar­­fé­lag Reykja­vík­­­ur, sem á um 46 pró­­sent hlut í því félagi. Það félag var 1. sept­­em­ber síð­­ast­lið­inn með 3,9 pró­­sent af öllum úthlut­uðum kvóta. Auk þess var félagið Ögur­vík með 1,3 pró­­sent afla­hlut­­deild. Sam­an­lagður kvóti þess­­ara þriggja félaga, sem eru ekki skil­­greind sem tengd, var því 15,6 pró­­sent í byrjun sept­­em­ber síð­­ast­lið­ins.

Aðrir hópar eru líka stór­ir. Kaup­­fé­lag Skag­­firð­inga á til dæmis FISK Seafood, sem heldur á 5,3 pró­­sent heild­­ar­kvót­ans. FISK á 32,9 pró­­sent í Vinnslu­­stöð­inni í Vest­­manna­eyjum sem er með fimm pró­­sent heild­­ar­afla­hlut­­deild. Þá eign­að­ist FISK allt hlutafé í Soff­an­­ías Cecils­­son hf. síðla árs 2017, en það fyr­ir­tæki heldur á um 0,3 pró­­sent kvót­ans. Sam­tals nam heild­­ar­kvóti þess­­ara þriggja aðila 10,6 pró­­sent í sept­em­ber.

Vísi og Þor­birni í Grinda­vík halda síðan sam­an­lagt á 8,4 pró­­sent af heild­­ar­kvót­­an­um, Skinney-Þinganes á 4,2 pró­sentum og Ísfélag Vest­manna­eyja á 3,8 pró­sentum.

Sam­an­lagt eru ofan­greind fyr­ir­tæki því með 60 pró­sent alls úthlut­aðs kvóta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sjávarútvegsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár