Ríkið þurfi að kortleggja á hverjum loftslagsskattarnir lenda

Upp­lýs­ingar liggja ekki fyrir í dag um það hvernig byrðar af lofts­lags­sköttum dreifast um sam­fé­lagið. Í grein­ar­gerð frá Lofts­lags­ráði segir að stjórn­völd þurfi að vinna slíka grein­ingu, vilji þau hafa yfir­sýn yfir áhrif skatt­anna.

Ekki liggur fyrir hvernig skatt­byrðin af kolefn­is­gjaldi og öðrum lofts­lagstengdum sköttum dreif­ist á milli tekju­tí­unda og fyr­ir­tækja á Íslandi, en rann­sóknir erlendis frá benda til þess að aukin skatt­byrði vegna slíkra skatta bitni mest á tekju­lágum hópum sem verja gjarnan stærri hluta tekna sinna í kolefn­is­frekar vörur og þjón­ustu en aðrir þjóð­fé­lags­hópar.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri grein­ar­gerð frá Lofts­lags­ráði um opin­ber fjár­mál og lofts­lags­mál, sem unnin var af Hrafn­hildi Braga­dóttur lög­fræð­ingi og Jónasi Atla Gunn­ars­syni hag­fræð­ingi.

Í grein­ar­gerð­inni, sem birt var undir lok síð­ustu viku, kemur fram að stjórn­völd þurfi að fram­kvæma grein­ingu á því hvernig skatt­byrðin dreif­ist, vilji þau hafa yfir­sýn yfir áhrif lofts­lags­skatta. Ef reyndin sé sú að skatt­lagn­ingin bitni meira á tekju­lágum hópum væri svo hægt að stuðla að „rétt­látum umskiptum“ með því að ráð­stafa skatt­tekjum af lofts­lags­að­gerðum sér­stak­lega til fyr­ir­tækja og heim­ila í við­kvæmri stöðu.

Réttlát umskipti eru hug­tak sem inni­ber að aðgerðir sem gripið er til vegna lofts­lags­mála byggi á rétt­læti og jöfn­uði og að ávinn­ingi af breyt­ingum á sam­fé­lagi og efna­hag vegna lofts­lags­breyt­inga verði skipt með rétt­látum hætti.

Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórn­ar­innar segir að rétt­lát umskipti fyrir alla hópa sam­fé­lags­ins skuli verða leið­ar­stef í þeim umbreyt­ingum sem standa yfir vegna lofts­lags­vár­innar og tækni­breyt­inga.

Þrátt fyrir að hið opin­bera hafi ekki enn upp­lýs­ingar um það hvernig skatt­byrðin af lofts­lags­sköttum dreif­ist um sam­fé­lagið, skal tekið fram að Hag­fræði­stofnun Háskóla Íslands hefur þegar verið falið að vinna kostn­aðar- og ábata­grein­ingu á aðgerðum aðgerða­á­ætl­unar í lofts­lags­málum.

Sömu­leiðis á stofn­unin að greina áhrif ein­stakra aðgerða í aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum á kjör fólks eftir tekju­hópum og búsetu. „Slík grein­ing myndi hafa þýð­ingu við for­gangs­röðun fjár­muna í fjár­mála­á­ætlun og fjár­lögum,“ segir í grein­ar­gerð Lofts­lags­ráðs.

Allt í sama sarpinn eða beint til aðgerða?

Grein­ar­gerð Lofts­lags­ráðs var unnin með það að mark­miði að ná yfir­sýn yfir þá þætti rík­is­fjár­mála sem hafa sér­staka þýð­ingu fyrir lofts­lags­málin, í þeim til­gangi að stuðla að gagn­sæi varð­andi ráð­stöfun opin­berra fjár­muna í þágu lofts­lags­mark­miða.

Í grein­ar­gerð­inni frá Lofts­lags­ráði kemur fram að í alþjóð­legri umræðu sé „áhersla lögð á að tekjur af lofts­lags­að­gerðum séu nýttar í þágu skil­greindra mark­miða, meðal ann­ars á sviði lofts­lags- og orku­mála, svo sem til tækni­fram­fara og lofts­lagsvænna lausna, og til að dreifa byrðum af lofts­lags­vand­anum með rétt­látum hætti“.

Tekjur af lofts­lags­að­gerðum geta ýmist runnið beint í rík­is­sjóð eða verið eyrna­merktar til­teknum aðgerðum og kemur fram í grein­ar­gerð­inni að alþjóð­lega hafi verið bent á að hvor leiðin fyrir sig hafi sína kosti; sú fyrr­nefnda veiti færi á sveigj­an­leika til að aðlaga notkun tekn­anna að breyttum aðstæðum eða áherslum, en hin síð­ar­nefnda stuðli að gagn­sæi og fyr­ir­sjá­an­leika.

Ísland fer fyrri leið­ina, og hafa sér­stakir lofts­lags­skattar sem aðal­lega eru inn­heimtir í formi kolefn­is­gjalds frá árinu 2010, runnið beint í rík­is­sjóð á und­an­förnum árum. Kolefn­is­gjaldið nemur nú um 6 millj­örðum á ári, en einnig hefur verið sett sér­stakt gjald á inn­flutn­ing F-gasa frá árinu 2020. Til við­bótar við þetta fær ríkið tekjur af sölu los­un­ar­heim­ilda, sem telj­ast til tekna vegna lofts­lags­að­gerða. Alls er áætlað að ríkið fái um 9 millj­arða króna í kass­ann vegna lofts­lags­að­gerða á þessu ári.

Borgarlína og rafdrifinn Herjólfur taldar sem 100 prósent loftslagsaðgerðir

Samkvæmt bók­haldi rík­is­ins er þess vænst að heild­ar­kostn­aður vegna skil­greindra lofts­lags­að­gerða muni nema um 18 millj­örðum króna á árinu. Í grein­ar­gerð Lofts­lags­ráðs er hins vegar bent á að lítil sem engin sund­ur­liðun liggi fyrir í opin­berum gögnum um kostnað við ein­stakar lofts­lags­að­gerðir og einnig eru sett spurn­inga­merki við fram­setn­ingu útgjalda til mála­flokks­ins í bók­haldi rík­is­ins.

„Í núgild­andi sund­ur­liðun á kostn­aði vegna lofts­lags­að­gerða er ekki gerður grein­ar­munur á aðgerðum sem að mestu geta talist beinar aðgerðir í lofts­lags­málum og þeim aðgerðum sem einnig er ráð­ist í í öðrum til­gangi. Í þeim til­vikum gæti verið um ofmat kostn­aðar að ræða. Til dæmis má nefna að fjár­magn sem fer úr rík­is­sjóði til Vest­manna­eyja­ferju og í upp­bygg­ingu Borg­ar­línu er að fullu talið sem fjár­magn til lofts­lags­að­gerða, en sam­dráttur í losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda er ekki eini til­gang­ur­þess­ara fjár­fest­inga,“ segir í grein­ar­gerð Loft­lags­ráðs.

Þar er einnig bent á að Evr­ópu­sam­bandið hafi, er það tók saman eigin útgjöld til lofts­lags­mála fyrir fjár­mála­á­ætlun áranna 2014-2020, horft til þess að gefa aðgerðum sem hafa ekki ein­ungis lofts­lagstengd mark­mið 40 pró­sent vægi, en aðgerðum sem voru ein­ungis fram­kvæmdar til að sporna gegn lofts­lags­breyt­ingum var gefið 100 pró­sent vægi. Það sem hér er átt við að ef rík­is­stjórnin seg­ist ætla að setja 10 millj­arða í til dæmis Borg­ar­línu, sé ef til vill ekki rétt að flokka nema 4 millj­arða af þeirri upp­hæð sem beint fram­lag til lofts­lags­mála.

Hve lengi vara loftslagsáhrif aðgerða?

Höfundar grein­ar­gerð­ar­innar benda einnig á að ekki hafi verið gerður grein­ar­munur á flokkun lofts­lags­að­gerða hvað varði mis­mun­andi áhrif þeirra til skemmri og lengri tíma.

„Þannig verða lofts­lags­á­hrif sam­göngu­mann­virkja sem ætlað er að draga úr losun – líkt og Vest­manna­eyja­ferju og Borg­ar­línu ásamt göngu- og hjóla­stígum – minni eftir því sem aðrir sam­göngu­mátar verða vist­vænni. Rík­is­stjórn Frakk­lands, sem metur lofts­lags­á­hrif eigin fjár­laga, gefur lofts­lags­að­gerðum minna vægi ef þær hafa ein­ungis jákvæð áhrif á lofts­lags­breyt­ingar til skamms tíma. Sömu­leiðis hefur nefnd á vegum norsku rík­is­stjórn­ar­innar, sem var skipuð til að koma með til­lögur um fram­kvæmd grænnar fjár­laga­gerðar, lagt til að aðgerðir verði flokk­aðar eftir því hversu lengi lofts­lags­á­hrif þeirra muni vara,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Á hinn bóg­inn er þó bent á það að ríkið gæti talið fleiri hluti en það gerir í dag til lofts­lags­að­gerða, að minnsta kosti að ein­hverju leyti. Hér er meðal ann­ars átt við aðlög­un­ar­að­gerðir vegna lofts­lags­breyt­inga, eins og fram­lög rík­is­ins í Ofan­flóða­sjóð og fram­lög til flóða­varna.

Í grein­ar­gerð Lofts­lags­ráðs segir að til­efni sé til að greina ítar­lega hvernig nýta megi stefnu­mót­unar- og ákvörð­un­ar­ferli opin­berra fjár­mála með mark­viss­ari hætti í þágu lofts­lags­mark­miða.

„Skoða þarf hvaða aðferðir henta best hér á landi til að auka skil­virkni og gagn­sæi varð­andi fjár­mögnun lofts­lags­að­gerða þar með talið til að tryggja rétt­lát umskipti, auk þess sem huga þarf að hlut­verki og sam­starfi stjórn­valda við stefnu­mótun um fram­lög til lofts­lags­mála og eft­ir­fylgni með þeim. Í þessu sam­hengi mætti horfa til aðferða grænnar fjár­laga­gerðar og læra af reynslu þeirra ríkja sem vinna að inn­leið­ingu slíkrar nálg­unar,“ segir í grein­ar­gerð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár