„Þurfum að fá að spyrja heimskulegra spurninga án ótta við þöggun“

Vara­þing­maður Pírata segir að Íslend­ingar þurfi að geta átt opið, ein­lægt og gegn­sætt sam­tal um hlið­ar­á­hrif aðgerða vegna COVID-19 far­ald­urs­ins á íslenskt sam­fé­lag.

Sara Elísa Þórðardóttir
Sara Elísa Þórð­ar­dóttir Mynd: Skjáskot/Alþingi

„Núna fer að aukast hit­inn og vanda­málin og við­fangs­efnin hvað varðar COVID verða flókn­ari. Við þurfum að skoða málið enn þá heild­rænna. Við þurfum að geta átt opið, ein­lægt og gegn­sætt sam­tal um hlið­ar­á­hrif aðgerð­anna á íslenskt sam­fé­lag. Við þurfum að fá að spyrja heimsku­legra spurn­inga án þess að ótt­ast ofsa­fengin við­brögð og án ótta við þöggun.“

Þetta sagði Sara Elísa Þórð­ar­dóttir, vara­þing­maður Pírata, undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Hún sagði enn fremur að gott og mik­il­vægt væri að vera bjart­sýn og von­góð en „við þurfum líka að vera raunsæ. Það er á ábyrgð stjórn­valda og hlut­verk þeirra að setja fram lang­tíma­sviðs­myndir með við­bragðs­á­ætl­unum. Óvissan er óskap­lega þung­bær fyrir mjög marga. Það þarf að vinna í átt að því að eyða eins mik­illi óvissu og ótta og hægt er um fram­tíð­ina fyrir þjóð­ina.“

Veirufrítt samfélag í besta falli tálsýn

Sara sagði að Íslend­ingar byggju nú við hörð­ustu sótt­varna­að­gerðir í lýð­veld­is­sögu Íslands. „Borgara- og mann­rétt­indi, ferða­frelsi og atvinnu­frelsi hafa verið og eru enn stór­skert. Á opnum vel­ferð­ar­nefnd­ar­fundi í gær­morgun kom fram í máli Þórólfs Guð­laugs­son sótt­varna­læknis að bólu­efni við COVID er ekk­ert endi­lega á næsta leiti og eins er ekk­ert víst að það verði eins áhrifa­ríkt og vonir standa til.“

Á sama tíma stæðu Íslend­ingar frammi fyrir þeirri stað­reynd að þó nokkrar líkur væru á að það myndi koma fleiri bylgjur. Veiru­frítt sam­fé­lag væri í besta falli tál­sýn og efna­hags­höggið með til­heyr­andi atvinnu­leysi hefði nú þegar skapað alvar­legt ástand.

„Eins er ljóst að það eru þeir sem minnst hafa á milli hand­anna sem koma til með að verða verst úti og þola mestar afleið­ingar hertra aðgerða. Við stöndum í raun í auknum mæli frammi fyrir flóknum og risa­stórum spurn­ingum sem tengj­ast sið­fræði lífs og dauða,“ sagði hún.

Þurfum að fara yfir málin með gagnrýnum hætti

Birgir Ármanns­son, þing­flokks­for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, tók undir hug­leið­ingar Söru í ræðu sinni undir sama lið á Alþingi í gær. „Ég held að það sé mjög mik­il­vægt fyrir okkur að vera með­vituð um það að við erum að grípa til mjög harðra sótt­varna­ráð­staf­ana þar sem eru miklar tak­mark­anir á svig­rúmi fólks og miklu meiri en við höfum kynnst áður í lýð­veld­is­sög­unni, eins og hátt­virtur þing­maður Sara Elísa Þórð­ar­dóttir nefndi.

Við við­ur­kennum auð­vitað að far­sótt og alvar­legur inflú­ensu­far­aldur kallar á aðgerðir af hálfu hins opin­bera. Það er eðli­legt og heim­ilt að sótt­varna­yf­ir­völd grípi til ákveð­inna aðgerða af því til­efni en það þýðir hins vegar ekki að heim­ilt sé að gera hvað sem er. Þar verður að vanda til verka og við þurfum að fara yfir það með gagn­rýnum hætti,“ sagði hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár