NATO snuprar Dani

Dönsk stjórn­völd eru harð­lega gagn­rýnd í nýrri skýrslu frá NATO. Þar segir að Danir hafi ekki staðið við lof­orð um fram­lög til varn­ar­mála og her­inn sé ófær um að gegna skyldum sínum innan Atl­ants­hafs­banda­lags­ins. Danski varn­ar­mála­ráð­herr­ann er ósam­mála.

Trine Bramsen, varnarmálaráðherra Danmerkur.
Trine Bramsen, varn­ar­mála­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Óánægja NATO í garð Dana er ekki ný af nál­inni. Yfir­stjórn banda­lags­ins hefur árum saman gagn­rýnt dönsk stjórn­völd fyrir að standa ekki við gefin lof­orð um aukin fram­lög til her­mála. Danskir frétta­skýrendur segja gagn­rýni NATO, í skýrslu sem birt var sl. þriðju­dag, óvenju­lega bein­skeytta og harða. Það bendi til að þol­in­mæði yfir­stjórnar banda­lags­ins sé á þrotum.

Í skýrsl­unni segir að Danmörk hafi árum saman dreg­ist aftur úr öðrum ríkjum Atl­ants­hafs­banda­lags­ins varð­andi hern­að­ar­upp­bygg­ingu og ekki fyr­ir­séð að í þeim efnum verði snúið við blað­inu.

Þrennt sem er brýnast

Skýrslu­höf­undar NATO benda á þrennt sem þeir segja brýn­ast fyrir Dani.

Í fyrsta lagi er gagn­rýnt að Danir fari sér alltof hægt við að koma á fót svoköll­uðum þung­vopn­uðum her­sveitum þrátt fyrir lof­orð um slíkt. Ekkert bóli á stórum skrið­drekum sem Danir hafi lýst yfir að „séu á leið­inni“.

Í öðru lagi séu Danir langt á eftir áætlun með upp­bygg­ingu rat­sjár­stöðva, sem séu æ mik­il­væg­ari hlekkir í eft­ir­liti NATO. Í áætlun banda­lags­ins, sem Danir hafi sam­þykkt, sé gert ráð fyrir tveimur nýjum eft­ir­lits­flug­vélum danska hers­ins, búnum full­komn­asta rad­ar­bún­aði. Ekkert bóli á þeim.

[adspot]Í þriðja lagi fari Danir sér mjög hægt varð­andi kaup á bún­aði til að fylgj­ast með ferðum kaf­báta. Danir hafi, segir í skýrsl­unni, keypt sér­stakan rad­ar­búnað sem ætl­aður sé frei­gátum danska flot­ans. Þessi rad­ar­bún­aður verður hins vegar ekki kom­inn í gagnið fyrr en árið 2028. Í ljósi þess að ferðum rúss­neskra kaf­báta á haf­svæð­inu við Grænland hefur fjölgað mikið að und­an­förnu er þetta mjög alvar­legt segir í skýrsl­unni

Þar er einnig nefnt að það verði í fyrsta lagi árið 2024 sem Seahawk þyrlur danska hers­ins verði búnar tund­ur­skeytum gegn kaf­bátum. Árið 2012, þegar ákvörðun um kaup á þyrl­unum var tekin ákvað danska þingið, Fol­ket­inget, í sparn­að­ar­skyni, að þær skyldu ekki bera sér­stakan búnað til að geta skotið áður­nefndum tund­ur­skeytum. Að kaupa þennan búnað eftir á kostar mun meira en ef hann hefði fylgt þyrl­unum frá upp­hafi.

Skortir framtíðarsýn

Sér­fræð­ingar NATO segja danska her­inn skorta fram­tíð­ar­sýn, lang­tíma­á­ætlun. Peter Viggo Jakobsen, danskur hern­að­ar­sér­fræð­ingur, tekur undir það. „Núgild­andi sam­komu­lag um fjár­veit­ingar og stefnu í hern­aðar- og varn­ar­málum gildir til árs­ins 2024. Það er ekki langur tími og við vitum ekk­ert hvað þá tekur við“ sagði hann í við­tali við dag­blaðið Berl­ingske.

Skýrslu­höf­undar NATO segja danska her­inn alls ófæran um að taka þátt í nútíma hern­aði, eins og það er orðað. Og miðað við stöð­una nú sé alls óljóst hvenær þar verði breyt­ing á.

Ógnin úr austri

Í skýrsl­unni frá NATO er vakin athygli á að þegar danska þingið gekk frá sam­komu­lagi (for­lig) varð­andi danska her­inn, sem gildir til 2024 voru þing­menn sam­mála um að hern­að­arógnin sem steðji að Danmörku sé nú meiri en nokkru sinni frá falli Berlín­ar­múrs­ins. Og að NATO væri horn­steinn í vörnum Dan­merkur. Í sam­starfs­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna segir að komi til þess að árás verði gerð á eitt aðild­ar­ríkj­anna skuli við­kom­andi ríki (Ísland er þarna und­an­skilið) vera fært um að verja sig þangað til liðs­auki ber­ist frá öðrum NATO ríkjum. Það geta Danir ekki að mati áður­nefnds Peter Viggo Jakobsen. „Það er ekki lík­legt að Rússar ráð­ist á Danmörku, og ef til þess kæmi myndu herir NATO ríkja bregð­ast hratt við.“

Varnarmálaráðherrann segir NATO líta framhjá mikilvægu atriði

Í bréfi sem Trine Bramsen skrif­aði varn­ar­mála­nefnd þings­ins segir hún að í skýrslu sinni líti NATO fram­hjá einu mjög mik­il­vægu atriði. Danskir her­menn, her­skip og flug­vélar sem sinni eft­ir­liti á mjög stóru haf­svæði umhverfis Grænland sé ekki talið með í skýrsl­unni frá Brussel. Það skekki mynd­ina að mati ráð­herr­ans.

Dönskum þingmönnum brugðið við gagnrýnina

Þótt gagn­rýni NATO hafi ekki bein­línis komið dönskum þing­mönnum á óvart urðu þeir undr­andi á hve harð­orðir skýrslu­höf­undar voru. Þingmenn stjórn­ar­and­stöð­unnar í varn­ar­mála­nefnd þings­ins hafa boðað Trine Bramsen varn­ar­mála­ráð­herra á fund nefnd­ar­innar. Þeir vilja að ráð­herr­ann leggi fram áætlun til úrbóta, hvernig danska stjórnin hygg­ist bregð­ast við gagn­rýni NATO. Hvernig eigi að sjá til þess að Danmörk verði ekki „toss­inn í bekknum“ eins og einn þing­maður komst að orði.

Snýst um peninga

Eins og getið var um í upp­hafi þessa pistils er gagn­rýni NATO ekki ný af nál­inni, hún er hins­vegar harð­orð­ari en áður.

Danskir fjöl­miðlar hafa fjallað tals­vert um skýrsl­una síðan hún var gerð opin­ber fyrir tæpri viku. Stjórn­mála­skýrendur segja að þótt stjórn­ar­and­staðan vilji draga núver­andi varn­ar­mála­ráð­herra til ábyrgðar sé málið ekki svo ein­falt. NATO hafi árum saman hamrað á því að fram­lög margra aðild­ar­ríkja, þar á meðal Dan­merkur, til varn­ar­mála séu of lág.

Á fundi æðstu stjórn­enda NATO sem hald­inn var í Wales árið 2014 var sam­þykkt að fram­lög aðild­ar­ríkj­anna til varn­ar­mála skyldu hækka í áföngum þannig að þau myndu árið 2023 nema að lág­marki tveimur pró­sentum af vergri lands­fram­leiðslu. Mörg aðild­ar­ríki NATO, þar á meðal Danmörk hafa ekki staðið við þetta lof­orð. Hafa ein­fald­lega sagt sem svo að aukin fram­lög til her­mála séu ekki for­gangs­at­riði. Árið 2019 ( í stjórn­ar­tíð Venstre) sam­þykkti danska þingið að hækka árleg fram­lög til varn­ar­mála um einn og hálfan millj­arð danskra króna (33 millj­arða íslenska) fram til árs­ins 2023. Það dugir þó ekki til að ná tveggja pró­senta mark­inu, það hangir í einu og hálfu.

Trine Bramsen varn­ar­mála­ráð­herra sagði í við­tali við dag­blaðið Politi­ken að lík­lega væru allir þing­menn sam­mála um að auka fram­lög til varn­ar­mála á næstu árum. Á vegum rík­is­stjórnar Mette Frederik­sen væri þegar hafin vinna við að móta fram­tíð­ar­stefnu Dan­merkur í öryggis- og varn­ar­málum. „Sú vinna tekur tíma enda er þar horft til fram­tíðar, til næstu ára­tuga“ sagði Trine Bramsen.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár