Rúmur helmingur kjósenda VG frá 2017 ætlar að kjósa annan flokk í haust

Samkvæmt nýrri könnun Prósents fyrir Frétta­blaðið verða níu flokkar á Alþingi eftir kom­andi kosn­ingar. Rúmur helm­ingur þeirra sem kusu Vinstri græn árið 2017 segj­ast ætla að leita á önnur mið er gengið verður til kosn­inga í sept­em­ber.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og formaður Vinstri grænna.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Vinstri grænna. Mynd: Bára Huld Beck

Níu stjórn­mála­flokkar myndu eiga sæti á Alþingi eftir kom­andi kosn­ingar ef nið­ur­staðan í sept­em­ber yrði í sam­ræmi við þær sem birt­ast í könnun sem rann­sókn­ar­fyr­ir­tækið Prósent (áður Zenter) hefur unnið fyrir Frétta­blaðið og fjallað er um í blað­inu í dag

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn mælist stærstur með 23,6 pró­sent fylgi, Píratar með 13,3 pró­senta fylgi og Sam­fylk­ingin mælist með 12,6 pró­sent. Vinstri græn mæl­ast með tæp 12 pró­sent, Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn 10,6 pró­sent og Viðreisn með 10,1 pró­sent.

Undir tíu pró­senta mark­inu eru svo Sós­í­alista­flokk­ur­inn, sem mælist með 6,1 pró­sent í könn­un­inni frá Prósent. Mið­flokk­ur­inn helst einnig inni á þingi með 5,6 pró­senta fylgi og Flokkur fólks­ins mælist með slétt 5 pró­senta fylgi, sam­kvæmt þess­ari könnun sem fjallað er ítar­lega um í Frétta­blað­inu í dag.

Helmingur kjósenda VG leitar á önnur mið

Þeir sem svör­uðu könn­un­inni voru einnig spurðir að því hvaða flokk þeir greiddu atkvæði í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2017 og með því fæst nið­ur­brot á því hvaða flokkum hefur hald­ist á stuðn­ings­mönnum sínum á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili og hverjum ekki.

[adspot]

Hæst hlut­fall kjós­enda hefur sagt skilið við Vinstri græn, en ein­ungis 49 pró­sent þeirra sem kusu flokk­inn árið 2017 segj­ast ætla að greiða VG atkvæði sitt í kosn­ing­unum í sept­em­ber­lok. Þetta hlut­fall er 50 pró­sent hjá Flokki fólks­ins, 58 pró­sent hjá Mið­flokknum og 59 pró­sent hjá Sam­fylk­ing­unni, en öðrum flokkum hefur hald­ist betur á kjós­endum sínum.

Mest er trygg­lyndið hjá sjálf­stæð­is­mönnum, en 81 pró­sent af þeim sem greiddu flokknum atkvæði sitt árið 2017 hafa uppi áætl­anir um að kjósa flokk­inn á ný. Þetta hlut­fall er 78 pró­sent hjá Viðreisn, 76 pró­sent hjá Fram­sókn­ar­flokknum og 73 pró­sent hjá Pírötum.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 15. til 23. júlí. Um net­könnun var að ræða sem send var á könn­un­ar­hóp Prósents. Í hópnum voru 2.600 ein­stak­lingar á Íslandi, átján ára og eldri og voru svör þeirra vegin eftir kyni, aldri og búsetu. Svar­hlut­fall var 52 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár