Jakob Frímann oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi

Jakob Frímann Magn­ús­son tón­list­ar­maður verður odd­viti Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi.

Jakob Frímann Magnússon tónlistarmaður hefur verið kynntur sem oddviti Flokks fólksins í Norðausturkjördæmi.
Jakob Frímann Magn­ús­son tón­list­ar­maður hefur verið kynntur sem odd­viti Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Mynd: Aðsend

Jakob Frímann Magn­ús­son tón­list­ar­maður verður efstur á lista Flokks fólks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Frá þessu var fyrst sagt á vef Aust­ur­fréttar á mánu­dag og vís­aði mið­ill­inn til heim­ilda sinna, en á þriðju­dags­morgun barst stað­fest­ing frá flokknum.

Í sam­tali við Kjarnann í gær hvorki ját­aði Jakob Frímann því né neit­aði að það stæði til að hann leiddi lista flokks­ins í kjör­dæm­inu og sagð­ist ekki til­bú­inn að segja neitt um málið, það væri ekki tíma­bært.

Sagðist hann telja „ansi bratt“ að birta frétt um málið án þess að rætt hefði verið við hann fyrst, en stað­festi síðan seint í gær­kvöldi við Kjarnann að hann ætl­aði fram fyrir hönd flokks­ins.

„Ég hef hrif­ist af stefnu­málum Flokks fólks­ins þar sem áhersla er lögð á að útrýma fátækt og órétt­læti á Íslandi. Það er sjálf­sögð krafa að allir fái lifað mann­sæm­andi lífi í einu af auð­ug­ustu sam­fé­lögum heims. Hér á eng­inn að búa við bág kjör að afloknu ævi­starfi, hlúa þarf betur að þeim sem hafa lent í áföllum eða búa við skerta orku og allir eiga að njóta jafnra tæki­færa til mennt­unar og tóm­stunda­starfs. Alvöru vel­ferð­ar­sam­fé­lag bygg­ist á heil­brigðu sam­hengi milli verð­mæta­sköp­unar og mann­úðar,“ er haft eftir Jakobi Frímanni í til­kynn­ingu frá Flokki fólks­ins.

Fyrrverandi varaþingmaður og leiddi lista Íslandshreyfingunnar árið 2007

Jakob Frímann, sem er lands­kunnur tón­list­ar­maður og fyrr­ver­andi mið­borg­ar­stjóri í Reykja­vík­ur­borg, er ekki ókunn­ugur þátt­töku í stjórn­mála­starfi. Hann var eitt sinn virkur innan Alþýðu­flokks­ins og tók þátt í próf­kjörum hjá Sam­fylk­ing­unni árið 2003 og 2007 og sett­ist á þing sem vara­for­maður fyrir flokk­inn undir lok árs 2004.

[adspot]

Í alþing­is­kosn­ing­unum árið 2007 bauð hann sig fram fyrir Íslands­hreyf­ing­una og var odd­viti á lista hennar í Suð­vest­ur­kjör­dæmi, en flokk­ur­inn fékk engan þing­mann kjör­inn. Íslands­hreyf­ingin, sem Ómar Ragn­ars­son leiddi, rann síðan inn í Sam­fylk­ing­una árið 2009.

Á und­an­förnum árum hefur Jakob Frímann unnið að upp­bygg­ingu ferða­þjón­ustu í Össurár­dal í grennd við Höfn í Horna­firði, en fram hefur komið í fréttum að þar standi til að fjár­festa í lúx­us­hót­eli og annarri ferða­þjón­ustu­tengdri starf­semi fyrir millj­arða króna.

Athuga­semd rit­stjórnar: Fréttin var upp­færð eftir að stað­fest­ing barst á því að Jakob Frímann ætl­aði fram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár