Leiðtogar hneykslaðir á ákvörðun Trumps

Helstu leið­togar í efna­hags­lífi Banda­ríkj­anna segj­ast ætla að halda uppi áformumum að ná mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins.

Donald Trump, forseti Bandaríkjanna.
Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna. Mynd: EPA.

For­stjórar, fjár­festar og frum­kvöðlar í Banda­ríkj­unum erum ósáttir við ákvörðun Donalds Trumps frá því í gær, um að draga Banda­ríkin út úr Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, en ekki eru þó ljóst ennþá hvernig að því verður staðið.

Samkvæmt sam­komu­lag­inu er ekki hlaupið að því að yfir­gefa það, eins og rakið var í grein Þrastar Freys Gylfa­sonar, stjórn­mála­fræð­ings, á vef Kjarnans í gær.

For­stjórar tækniris­ana Apple, Alphabet (Google), Microsoft og Tesla Motors voru fljótir að tjá sig um ákvörðun Trumps, og sögðu hana engu breyta um það að fyr­ir­tækin ætl­uðu sér að leggja sitt af mörkum til að mark­mið Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins muni nást.

Elon Musk, stofn­andi og for­stjóri Tesla, ákvað að fara úr ráð­gjafa­ráði Trump, þegar kemur að atvinnu­málum og nýsköpun, um leið og ákvörðun hans lá fyrir. Hann sagði að ákvörðun væri slæm fyrir Banda­ríkin og slæm fyrir heim­inn allan. „Lofts­lags­breyt­ingar eru raun­veru­legar,“ sagði hann á Twitter svæði sínu.

Robert Iger, for­stjóri Walt Disney, sagði sig einnig strax úr ráð­inu, og mót­mælti ákvörðun Trumps. Darren Woods, for­stjóri Exxon Mobile, stærsta skráða olíu­fé­lags í heimi, sendi Trump bréf og bað hann um að halda Banda­ríkj­unum inn í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu.

Llyod Blank­fein, for­stjóri og stjórn­ar­for­maður Goldman Sachs, sagði ákvörðun Trumps ranga og að hún væri til þess fallin að grafa undan leið­toga­hlut­verki Banda­ríkj­anna í heim­inum.

Flest þeirra fyr­ir­tækja, sem þegar hafa ákveðið að vinna að því að ná mark­miðum sam­komu­lags­ins, ætla engu að breyta, þrátt fyrir yfir­lýs­ingu Trumps.

Þá sendu borg­ar­stjórar 68 borga í Banda­ríkj­unum frá sér yfir­lýs­ingu, þar sem þeir mót­mæltu ákvörðun Trumps, og sögð­ust ekki ætla að breyta neinu í sinni vinnu. Mark­miðið væri að ná fylgja Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu og reyna að stuðla að umhverf­is­vænni lífstíl ti fram­tíðar litið.

Ísland er aðili að Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, og sagði Björt Ólafs­dóttir, umhverf­is­ráð­herra, í gær að ekk­ert yrði slegið af í vinnu stjórn­vald á Íslandi, þegar kæmi að því ná mark­miðum Par­ís­ar­sam­komu­lags­ins.

Gagnvart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu hefur Ísland hengt sig á Evr­ópu­sam­bandið og tekur þátt í sam­eig­in­legu mark­miði aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins um að vera búið að minnka losun frá Íslandi um 40 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 1990.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár