Hvað á til bragðs að taka?

Ljóst er að ef ekki verður gripið til aðgerða mun Ísland ekki geta staðið við skuld­bind­ingar sínar gagn­vart alþjóð­legum lofts­lags­sátt­málum. En hvar eru tæki­færi til þess að draga úr losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda?

Á dög­unum var kynnt skýrsla um Ísland og lofts­lags­mál þar sem dregin er upp mun dekkri mynd af horfum í lofts­lags­málum, miðað við yfir­lýst mark­mið Íslands í þessum mála­flokki. Eins og Kjarninn greindi frá sagð­ist Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hafa verið slegin yfir þeim dómi sem skýrslan kveður um stöðu Íslands í þessu til­liti.

„Að óbreyttu munum við ekki standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið nema við hysjum upp um okkur bux­urnar, sagði hún í við­tali í Kast­ljós­þætti, dag­inn sem skýrslan var kynnt. Björt hefur verið umhverf­is­ráð­herra síðan 11. jan­úar síð­ast­lið­inn þegar ný rík­is­stjórn tók við eftir kosn­ing­arnar í haust.

En jafn­vel þó skýrslan lýsi því að ef ekk­ert verið að gert muni Ísland vera fjarri því að standa við alþjóð­legar skuld­bind­ingar sínar, þá er einnig dregin upp bjart­ari mynd. Sú mynd verður að veru­leika ef gripið verður til mót­væg­is­að­gerða gegn útblæstri gróð­ur­húsa­loft­teg­unda hér á landi. Hér að neðan verður farið stutt­lega yfir þau atriði sem skýrslu­höf­undar leggja til og nota í þá sviðs­mynd þar sem nið­ur­staðan er jákvæð fyrir Ísland og mark­miðin.

En fyrst um mark­miðin.

Einföld markmið

Markmið Íslands í lofts­lags­málum er ein­falt fljótt á litið. Gagnvart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu hefur Ísland hengt sig á Evr­ópu­sam­bandið og tekur þátt í sam­eig­in­legu mark­miði aðild­ar­ríkja Evr­ópu­sam­bands­ins um að vera búið að minnka losun frá Íslandi um 40 pró­sent árið 2030 miðað við losun árs­ins 1990.

Í mark­miði Íslands segir enn fremur að stjórn­völd hér á landi skuld­bindi sig til ábyrgðar á „rétt­látum hluta“ (e. fair share) í mark­miði ESB. Enn hefur ekki feng­ist nið­ur­staða í við­ræður við Evr­ópu­sam­bandið um hvað þessi „rétt­láti hluti“ felur í sér. Þangað til hefur verið gengið út frá því að Ísland hafi skuld­bundið sig til að minnka losun um 40 pró­sent. Það hafa ráða­menn jafn­vel sagt á opin­berum vett­vangi. Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son lýsti því yfir á erlendum vett­vangi að Ísland myndi minnka losun um þessi 40 pró­sent árið 2030, en gat svo ekki stað­fest það við íslenska fjöl­miðla.

Miðað við fram­reikn­aðar tölur þá er ljóst að ef ekki verður gripið til auk­inna mót­væg­is­að­gerða í lofts­lags­málum þá muni heild­ar­út­streymi frá Íslandi verða á bil­inu 53 til 99 pró­sent meira en árið 1990 árið 2030.

Heild­ar­út­streymi árið 2030
% breyt­ing frá 1990Grunn­til­vik % breyt­ing frá 1990Mið­til­vik % breyt­ing frá 1990Hátilvik % breyt­ing frá 1990
2014203020302030
Rafmagn og hiti69%146%164%272%
Sam­göngur39%11%11%11%
Iðnaður og efna­notkun79%163%215%292%
Sjáv­ar­út­vegur-42%-35%-35%-35%
Land­bún­aður-4%7%7%7%
Úrgangur52%15%15%15%
Samtals án land­notkun26%53%71%99%
Samtals með land­notkun15%33%51%79%

Taflan hér að neðan er tafla 13-2 í skýrsl­unni. Hún sýnir að heild­arútstreymi miðað við gefnar for­sendur gæti auk­ist frá 51 til 99% á milli 1990 og 2030, ef bind­ing er und­an­skilin.

Þungur róður með stóriðjunni

Í þessum háspám og lág­spám er útstreymi frá stór­iðju talið með. Stór­iðjan fellur hins vegar ekki undir mark­mið Íslands í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu vegna þess að los­un­ar­heim­ildir frá stór­iðju eru fram­selj­an­legar á mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir. Það kann að skjóta skökku við að stærsti meng­un­ar­vald­ur­inn hér á landi falli ekki undir mark­miðin í lofts­lags­málum. Mark­að­ur­inn með los­un­ar­heim­ild­irnar var hins vegar skap­aður til þess að „jafna skell­inn“ á milli ríkja sem reka mis­mikla stór­iðju.

Þess vegna er útstreymið einnig reiknað fram til árs­ins 2030 án stór­iðj­unnar. Þar breyt­ist myndin tals­vert. Án bind­ingar (og að stór­iðju und­an­skil­inni) gæti heild­ar­út­streymi orðið tíu pró­sent meira árið 2030 en árið 1990 í grunn­til­viki. Hátil­vikið er 16 pró­sent aukn­ing frá 1990. Binding breytir mynd­inni enn frekar: 18 pró­sent minna útstreymi árið 2030 í grunn­til­viki og 12 pró­sent minna í hátil­viki.

Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, pró­fessor í umhverfis- og auð­linda­fræðum við Háskóla Íslands sem rit­stýrði skýrsl­unni, segir að það yrði þungur róður fyrir Ísland að ná mark­mið­unum ef stór­iðjan yrði ekki und­an­skilin. „Það eru aðgerðir í hverjum ein­asta geira sem hægt er að ráð­ast í og eru tækni­lega mögu­legar í dag. Nema í stór­iðj­unni, það er að segja,“ segir Bryn­hildur í sam­tali við Frétta­blaðið.

Hvaða lausnir eru í boði?

Í ský­sl­unni um Ísland og lofts­lags­mál er sam­fé­lag­inu skipt í sjö geira, líkt og hefð er fyrir hér á landi. Geir­arnir eru svo greindir sér­stak­lega, en undir hvern þeirra falla jafn­vel fjöl­breyttur iðn­aður eða starf­semi. Geir­arnir sjö eru:

  • Rafmagn og hiti
  • Sam­göngur
  • Sjáv­ar­út­vegur
  • Iðnaður og efna­notkun
  • Land­bún­aður
  • Meðferð úrgangs
  • Land­notkun, breytt land­notkun og skóg­rækt

Í skýrsl­unni er fjallað um þær mót­væg­is­að­gerðir sem raun­hæft er að ráð­ast í á næstu árum til þess að stemma stigu við aukna losun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi.

Eðli máls­ins sam­kvæmt eru úrræðin mis áhrifa­rík. Þar geta ýmsir þættir ráðið för; til dæmis má nefna stöðu tækni­þró­unar, kostnað við verk­efni og inn­leið­ing­ar­hraða auk ill­mæl­an­legra þátta á borð við það hvað almenn­ingur er mót­tæki­legur fyrir vissar nýj­ungar.

Smelltu á flokk­ana hér að neðan til að sjá útlist­anir í hverjum flokki fyrir sig.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár