„Tíminn er að hlaupa frá okkur“

Markmið um 40% minni losun árið 2030 er fjar­lægur draumur ef Íslend­ingar ger­ast ekki rót­tæk­ari í lofts­lags­málum. Umhverf­is­ráð­herra kynnir stöðu­mat í rík­is­stjórn í þessum mán­uði.

Skýrsla Hag­fræða­stofn­unar Háskóla Íslands um Ísland og lofts­lags­mál dregur upp mun dekkri mynd af stöðu Íslands í mál­efnum lofts­lags­ins og sýnir Íslend­inga í verri stöðu gagn­vart mark­miðum Par­ís­ar­samn­ings­ins en áður var talið. Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir, pró­fessor í umhverfis- og auð­linda­fræðum við Háskóla Íslands, kynnti skýrsl­una á mánu­dag­inn var. Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, segir nið­ur­stöður skýrsl­unnar hafa komið sér á óvart.

Jafnvel þó nið­ur­stöður skýrsl­unnar um stöð­una Íslands séu nei­kvæðar þá lýsir skýrslan einnig tæki­færum fyrir Íslend­inga til fram­tíðar á sviði lofts­lags­mála. Fyrir lofts­lags­ráð­stefn­una í París í des­em­ber í fyrra lögðu öll aðild­ar­ríki að Ramma­samn­ingi Sam­ein­uðu þjóð­anna um lofts­lags­mál fram sín eigin mark­mið í lofts­lags­málum. Var það meðal ann­ars talið til þeirra atriða sem gerðu far­sæla ráð­stefnu að mögu­leika í París.

Ísland ákvað að fylgja Evr­ópu­sam­band­inu (ESB) og hengja sig á mark­mið sam­bands­ins um 40 pró­sent minni losun árið 2030 miðað við árið losun árs­ins 1990. Í mark­miði Íslands er talað um að stjórn­völd hér á landi ætli að skuld­binda sig til ábyrgðar á „rétt­látum hluta“ (e. fair share) í mark­miði ESB.

Nýr umhverfisráðherra hissa á stöðunni

Björt segir skýrsl­una hafa slegið sig vegna þess að hún sýni aðra og dekkri stöðu lofts­lags­mála en hún hafi búist við. Hún tók við emb­ætti umhverf­is­ráð­herra í síð­asta mán­uði. „Að óbreyttu munum við ekki standa við Par­ís­ar­sam­komu­lagið nema við hysjum upp um okkur bux­urnar,“ sagði hún í Kast­ljósi RÚV á mánu­dag.

Björt Ólafsdóttir varð umhverfis- og auðlindaráðherra í síðasta mánuði. Í stjórnarsáttmála er aðgerðum í takt við markmið Íslands gagnvart Parísarsamkomulagið. Talsvert þarf að gerast áður en þau markmið nást. Mynd: Birgir Þór
Björt Ólafs­dóttir varð umhverfis- og auð­linda­ráð­herra í síð­asta mán­uði. Í stjórn­ar­sátt­mála er aðgerðum í takt við mark­mið Íslands gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Talsvert þarf að ger­ast áður en þau mark­mið nást. Mynd: Birgir Þór

Á árunum 1990 til 2014 jókst útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda á Íslandi um 26 pró­sent, ef frá­skilin er bind­ing vegna land­notk­unar. Ef nettó­bind­ing með land­græðslu og skóg­rækt væri tekin með var aukn­ingin 15 pró­sent. Í útblást­urs­mæl­ingum á Íslandi er sam­fé­lag­inu skipt í sjö flokka. Það eru raf­magn og hiti, sam­göngur, sjáv­ar­út­vegur, iðn­aður og efna­notkun, land­bún­aður, með­ferð úrgangs og síð­ast land­notkun sem getur nýst sem mót­væg­is­að­gerð.

Mest var aukn­ingin í útstreymi frá iðn­aði frá árinu 1990 til 2014. Aukn­ingin nam 79 pró­sentum. Útstreymi jókst einnig frá orku­fram­leiðslu um 69 pró­sent, frá úrgangi um 52 pró­sent og sam­göngum um 39 pró­sent. Útstreymi frá sjáv­ar­út­vegi dróst hins vegar saman um 43 pró­sent og útstreymi frá land­bún­aði minnk­aði um fjögur pró­sent. Íslend­ingum tókst jafn­framt að binda meira af gróð­ur­húsa­loft­teg­undum með land­græðslu og skóg­rækt; um 429 þús­und tonn árið 2014. Heild­ar­út­streymi árs­ins 2014 var um 4.600 tonn koldí­oxíðs.

Allt að 99 prósent meira útstreymi 2030

Þegar spáð er fyrir um fram­tíð­ar­út­streymi til árs­ins 2030 eru gerðar tvær spár; þ.e. háspá og grunn­spá. Í grunn­spá er reiknað með venju­bund­inni þróun, þe. ef við hegðum okkur eins og við gerum nú þegar. Samkvæmt háspánni má gera ráð fyrir að heild­ar­út­streymi frá Íslandi verði 99 pró­sent meira en það var árið 1990. Grunn­spáin gerir ráð fyrir að útstreymið verði 53 pró­sent meira en árið 1990.

Hér skiptir stór­iðjan enn og aftur sköpum en í skýrsl­unni er því spáð að aukn­ingin gæti orðið mest vegna auk­inna umsvifa í stór­iðju. Í grunn­til­viki gæti aukn­ing útstreymis vegna stór­iðju auk­ist um 161 pró­sent í grunn­til­viki upp í 290 pró­sent í hátil­viki.

Í þessum háspám og lág­spám er útstreymi frá stór­iðju talið með. Stór­iðjan fellur hins vegar ekki undir mark­mið Íslands í Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu vegna þess að los­un­ar­heim­ildir frá stjór­iðju eru fram­selj­an­legar á mark­aði Evr­ópu­sam­bands­ins með los­un­ar­heim­ildir. Það kann að skjóta skökku við að stærsti meng­un­ar­vald­ur­inn hér á landi falli ekki undir mark­miðin í lofts­lags­málum. Mark­að­ur­inn með los­un­ar­heim­ild­irnar var hins vegar skap­aður til þess að „jafna skell­inn“ á milli ríkja sem reka mis­mikla stór­iðju.

Stóriðja mengar lang mest allra samfélagsþátta á Íslandi. „Græn“ raforka fer þar til spillis, ef svo má að orði komast.
Stóriðja mengar lang mest allra sam­fé­lags­þátta á Íslandi. „Græn“ raf­orka fer þar til spillis, ef svo má að orði kom­ast.

Þess vegna er útstreymið einnig reiknað fram til árs­ins 2030 án stór­iðj­unnar. Þar breyt­ist myndin tals­vert. Án bind­ingar (og að stór­iðju und­an­skil­inni) gæti heild­ar­út­streymi orðið tíu pró­sent meira árið 2030 en árið 1990 í grunn­til­viki. Hátil­vikið er 16 pró­sent aukn­ing frá 1990. Binding breytir mynd­inni enn frekar: 18 pró­sent minna útstreymi árið 2030 í grunn­til­viki og 12 pró­sent minna í hátil­viki.

Bryn­hildur segir að það væri þungur róður fyrir Ísland að ná mark­mið­unum ef stór­iðjan yrði ekki und­an­skilin. „Það eru aðgerðir í hverjum ein­asta geira sem hægt er að ráð­ast í og eru tækni­lega mögu­legar í dag. Nema í stór­iðj­unni, það er að segja,“ segir Bryn­hildur í sam­tali við Frétta­blaðið.

Tæknilega mögulegt

Í skýrsl­unni eru listaðar leiðir til þess að draga úr losun sem eru tækni­lega mögu­legar. Miklar tækni­fram­farir hafa átt sér stað síðan sam­bæri­leg skýrsla var gerð síð­ast. Nær­tæk­asta dæmið eru full­komn­ari raf­magns­bílar, sem nú eru lang­dræg­ari og ódýr­ari og þar af leið­andi aðgengi­legri en þeir voru fyrir ára­tug. Þá var því spáð að aðrir aflgjafar á borð við metan og vetni yrðu lík­legri til þess að hljóta hylli neyt­enda.

Rafbílavæðing er mjög ábatasöm loftslagsaðgerð. Mynd: EPA
Raf­bíla­væð­ing er mjög ábata­söm lofts­lags­að­gerð. Mynd: EPA

Minnstu tæki­færin eru hins vegar í tækni­legum lausnum á því að draga úr útstreymi frá stór­iðju. Þar er ekki að eygja eins miklar tækni­fram­farir sem yrðu þess vald­andi að hægt væri að minnka útstreymi nema um fáein pró­sentu­stig.

Yfirlýst markmið er 40 prósent minni losun en árið 1990

Augljóst er að íslensk stjórn­völd verða að taka til hend­inni í þessum mála­flokki ef standa á við yfir­lýst mark­mið Íslands gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu. Í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartar fram­tíðar er klausa um umhverfis- og auð­linda­mál. Þar segir að ekki verði efnt til nýrra íviln­andi fjár­fest­ing­ar­samn­inga vegna upp­bygg­ingar meng­andi stór­iðju.

Enn fremur er því lofað í stjórn­ar­sátt­mál­anum að gerð verði aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum í sam­ræmi við Par­ís­ar­sam­komu­lagið. Björt Ólafs­dóttir, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, hygg­ist leggja fyrir rík­is­stjórn og Alþingi skýrslu um stöðu mála­flokks­ins í þessum mán­uði. Samkvæmt upp­lýs­ingum frá ráðu­neyt­inu verður um eins­konar stöðu­mat að ræða, þar sem tæki­færi verða listuð og helstu ógnir. Ný aðgerða­á­ætlun stjórn­valda í lofts­lags­málum verður svo unnin á þessu ári og kynnt síðar á árinu. Um þessa áætlun er sagt í stjórn­ar­sátt­mál­anum að hún „feli meðal ann­ars í sér græna hvata, skóg­rækt, land­græðslu og orku­skipti í sam­göngum“.

Ekki er hægt að fjöl­yrða um hverjar áhersl­urnar verða í þeirri áætlun, enda er skýrsla Háskól­ans nýkomin út og und­ir­bún­ingur innan ráðu­neyt­is­ins stutt á veg kom­inn.

Vinna við aðgerða­á­ætlun íslenskra stjórn­valda í lofts­lags­málum fór síð­ast fram eftir að sam­bæri­leg skýrsla og hér er fjallað um var kynnt árið 2009. Ári síðar var aðgerða­á­ætlun í lofts­lags­málum sam­þykkt af rík­is­stjórn Sam­fylk­ing­ar­innar og Vinstri grænna – í umhverf­is­ráð­herra­tíð Svan­dísar Svav­ars­dóttur – þar sem stefnt var að því að draga úr nettólosun gróð­ur­húsa­loft­teg­unda um allt að 30 pró­sent til árs­ins 2020 með tíu lyk­il­að­gerðum. Eftir þeirri aðgerða­á­ætlun er enn unnið opin­ber­lega. Atriðin tíu eru kunn­ug­leg stef umræð­unni um lofts­lags­mál:

  1. Inn­leið­ing við­skipta­kerfis með los­un­ar­heim­ildir.
  2. Kolefn­is­gjald.
  3. Breytt kerfi skatta og gjalda á bíla og elds­neyti.
  4. Notkun ríkis og sveit­ar­fé­laga á spar­neytnum og vist­vænum öku­tækjum.
  5. Efling göngu, hjól­reiða og almenn­ings­sam­gangna sem val­kost í sam­göngum.
  6. Notkun líf­elds­neytis á fiski­skipa­flot­anum.
  7. Raf­væð­ing fiski­mjöls­verk­smiðja.
  8. Aukin skóg­rækt og land­græðsla.
  9. End­ur­heimt vot­lendis.
  10. Efldar rann­sóknir og nýsköpun í lofts­lags­málum.

Ekki verður lagt mat á það hér hversu vel á veg þessi verk­efni eru komin. Ljóst er hins vegar að mörg þess­ara verk­efna krefj­ast auk­innar þver­fag­legrar vinnu milli ráðu­neyta og þvert á alla stjórn­sýsl­una, hvort sem það er í ráðu­neytum, und­ir­stofn­unum eða meðal sveit­ar­fé­laga. Auk þess er gert ráð fyrir að fjár­fest sé í innviðum, svo sem raf­orku­flutn­ingi og sam­göngu­leiðum svo aðeins tvö aug­ljós atriði séu nefnd.

Sigrún Magnúsdóttir, þáverandi umhverfisráðherra, og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, kynna sóknaráætlun í loftslagsmálum í nóvember 2015.
Sigrún Magn­ús­dóttir, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, kynna sókn­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum í nóv­em­ber 2015.

Í tíð rík­is­stjórnar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar var lögð fram sókn­ar­á­ætlun í lofts­lags­málum í nóv­em­ber 2015. Þar voru nokkur verk­efni skil­greind sem myndu fá mest vægi meðal stjórn­valda hér á landi. Nokkur þeirra verk­efna hafa þegar verið sett af stað en þau treysta að miklu leyti á fram­lög einka­að­ila. Árlega er 250 millj­ónum króna veitt til verk­efn­anna í sókn­ar­á­ætl­un­inni á meðan hún gildir til árs­ins 2018.* Sigrún Magn­ús­dóttir, þáver­andi umhverf­is­ráð­herra, sagð­ist í sam­tali við Kjarnann í kjöl­far kynn­ingar á sókn­ar­á­ætl­un­inni, vera frá­hverf því að ríkið myndi setja upp skatta­lega eða aðra tækni­lega hvata fyrir almenn­ing til þess að stunda „lofts­lagsvænni“ lífstíl. Hvatar í þeim til­gangi litu heldur ekki dags­ins ljós.

Í skýrsl­unni sem kynnt var á mánu­dag­inn er sviðs­mynd stillt upp þar sem völdum mót­væg­is­að­gerðum er beitt saman, án bind­ingar, og nið­ur­staðan er að hugs­an­lega mætti draga úr útstreymi um 1.716 þús­und tonn. Ofan á það bæt­ist svo væntur jafn mik­ill kraftur í land­græðslu og skóg­rækt. Fram­reiknað gæti bind­ingin því numið um 2.460 þús­und tonna koldí­oxíðs.

Bryn­hildur Dav­íðs­dóttir segir í sam­tali við Frétta­blaðið að aðgerðir stjórn­valda í lofts­lags­málum geti skilað þjóð­hags­legum ábata til lengri tíma, jafn­vel þó kostn­að­ur­inn sé mik­ill til að byrja með. „Þetta er eins og með hita­veitu­væð­ing­una sem var dýr – en það má líta raf­bíla­væð­ing­una sömu augum,“ er haft eftir Bryn­hildi í Frétta­blað­inu þriðju­dag­inn 14. febr­úar.

Möguleikarnir miklir ef pólitískur vilji er fyrir hendi

Af þeim aðgerðum sem óhjá­kvæmi­lega þarf að ráð­ast í til þess að ná mark­miði Íslands gagn­vart Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu eru nokkur sem gætu skilað þjóða­hags­legum ábata, sam­kvæmt skýrsl­unni. Hér er ekki síst rætt um jákvæð ytri áhrif af aðgerð­unum. Kolefn­is­hlut­leysi á Íslandi gæti hins vegar verið fjar­lægur draumur ef útstreymið frá stór­iðj­unni stendur í stað.

Í skýrsl­unni segir orð­rétt: „Ljóst er að mögu­leikar Íslands eru miklir þegar kemur að sam­drætti í útstreymi gróð­ur­húsa­loft­teg­unda. Mögulegt er að ná fram þeim sam­drætti í útstreymi sem Íslend­ingar hafa ásett sér að ná undir Par­ís­ar­sam­komu­lag­inu, ef útstreymi frá þeim geirum sem falla undir við­skipta­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins um los­un­ar­heim­ildir eru und­an­skildir. Erfitt gæti reynst að ná kolefn­is­hlut­leysi ef útstreymi frá stór­iðju stendur í stað eða eykst.“

Í skýrsl­unni er einnig minnt á að mót­væg­is­að­gerð­irnar séu marg­vís­legar og að mik­il­vægt sé að valdar verði þær stjórn­valds­að­gerðir sem skili mestum mögu­lega árangri í sam­drætti í útstreymi með sem minnstum þjóð­hags­legum kostn­aði.

Augljóst er að aðgerð­ar­á­ætlun Bjartar Ólafs­dóttur þarf að ganga lengra en aðgerða­á­ætlun Svan­dísar Svav­ars­dóttur frá árinu 2010. Og það mun þurfa að fylgja henni eftir, innan allra ráðu­neyta og efla sam­starf milli deilda rík­is­ins ef við­un­andi árangur á að nást.

„Við verðum að bregð­ast við því sem áður hefur verið gert. Og við verðum að gera það strax því tím­inn er að hlaupa frá okkur,“ sagði umhverf­is­ráð­herra í sam­tali á RÚV.


*Leiðrétt: Upp­haf­lega var full­yrt í text­anum hér að ofan að ekki hafi verið skil­greint hversu miklum fjár­munum verði varið í sókn­ar­á­ætl­un­ina. Það er rangt því 250 millj­ónum verður veitt til verk­efna sókn­ar­á­ætl­un­ar­innar í fjár­lögum hvers árs til árs­ins 2018. Það hefur verið leið­rétt í text­anum hér að ofan.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár