Una heimsótti spítala þar sem 30 voru myrtir í dag

Í síð­ustu viku heim­sótti Una Sig­hvats­dóttir her­sjúkra­hús í Kabúl til þess að ræða við kven­lækna sem leggja líf sitt í hættu með því að ákveða að mæta í vinnu og skóla á hverjum degi. Viðtal sem hún tók við kven­lækni þar birt­ist í morgun, í til­efni af alþjóð­legum bar­áttu­degi kvenna. Skömmu síðar var sjálfs­morðsárás framin á sjúkra­hús­inu og að minnsta kosti þrjá­tíu drepnir. Hryðju­verka­sam­tökin ISIS hafa lýst ábyrgð á árásinni.

Á sjúkrahúsinu
Á sjúkra­hús­inu Hér er Una með tveimur kven­læknum sem starfa á sjúkra­hús­inu þar sem sjálfs­morðsárás var framin í dag, með þeim afleið­ingum að 30 voru drepnir. Lækn­arnir sem eru með henni á mynd eru dr. Sonia og dr. Adiba, en Una veit ekki um afdrif þeirra í dag. Mynd: Una Sighvatsdóttir

„Í dag var gerð árás á her­sjúkra­húsið í Kabúl, sem ég heim­sótti í síð­ustu viku til að hitta unga kven­lækna. Viðtalið mitt við dr. Sonia Baha birt­ist í morgun í til­efni Alþjóð­legs bar­áttu­dags kvenna og má sjá hér að neðan. Stuttu síðar réðst hópur manna með alvæpni og sprengju­vesti inn á sjúkra­húsið, klæddir í læknasloppa. ISIS lýsir yfir ábyrgð. Nýjustu fregnir herma að 30 séu látnir og 50 særðir,“ segir Una Sig­hvats­dóttir, fyrr­ver­andi frétta­kona sem starfar nú sem upp­lýs­inga­ful­trúi Atl­ants­hafs­banda­lags­ins í Afganistan.

Árásarmennirnir klæddir sem læknar

Í morgun réð­ust árás­ar­menn úr hryðju­verka­sam­tök­unum Íslamska ríkið á Sardar Daud Khan-sjúkra­húsið í Kabúl höf­uð­borg Afganistan. Menn­irnir dul­bjuggu sig sem lækna, voru klæddir í hvíta sloppa og sprengju­vesti og vopn­aðir hríð­skota­byssum. Talið er að alla­vega fjórir menn hafi framið sjálfs­morðsárás og vitni segja að árás­ar­mennrinir hafi skotið á alla sem urði á vegi þeirra. Læknir rétt náði að kom­ast undan með því að stökkva úr stiga þegar skotið var á hann og félaga hans. Aðrir leit­uðu skjóls á syllum utan á bygg­ing­unni.

Mikil átök áttu sér stað í og við spít­al­ann, en árás­ar­menn­irnir héldu spít­al­anum í helj­ar­g­reipum í um sex tíma áður en þeir voru yfir­bug­aðir af örygg­is­sveitum. Að minnsta kosti 30 voru drepnir í árásinni og 50 særðir voru fluttir á annað sjúkra­hús. Um 400 sjúk­lingar voru á sjúkra­hús­inu þegar árásin átti sér stað.

Hryðju­verka­sam­tökin Íslamska ríkið sendu frá sér yfir­lýs­ingu eftir að árásin hófst um að liðs­menn sam­tak­anna hefðu ráð­ist á sjúkra­húsið. Frétta­veita þeirra hefur birt myndir og mynd­skeið sem árás­ar­menn­irnir tóku. Ashraf Ghani, for­seti Afganistan, for­dæmdi árás­ina og sagði hana brjóta gegn mann­legum gildum, sjúkra­hús séu grið­ar­staðir og árásir á þá séu árásir á þjóð­ina.

Leggja líf sitt í hættu á hverjum degi

Una heim­sótti sjúkra­húsið fyrir viku síðan til þess að ræða við konur sem starfa þar sem læknar. Sjúkra­húsið er stærsta her­sjúkra­hús lands­ins, stað­sett skammt frá banda­ríska sendi­ráð­inu. Sjúkra­húsið var opnað aftur fyrir um ára­tug eftir að talí­banar lok­uðu því um ára­mótin, og árið 2009 voru fyrstu kon­urnar teknar inn í lækna­nám þar. Þá voru þær tíu af fjör­tíu stúd­entum. Í fyrra útskrif­uð­ust svo fyrstu kven­lækn­arnir. Í dag er heild­ar­fjöldi nem­enda 147 og þar af eru 30 stelpur.

Leggja líf sitt í hættu Í Afganistan þykir ekki sjálf­sagt að konur gangi mennta­veg­inn og velji sér starfs­frama, líkt og þessar konur hafa gert.

Heimsókn Unu var til þess að ræða við kon­urnar, vegna verk­efnis sem hún var að vinna við Alþjóð­lega kvenn­rétt­inda­dag­inn, sem er í dag. Verk­efnið fólst í því að taka við­töl við konur sem fylgja mark­miðum sínum og láta drauma sína ræt­ast.

Hún bendir á að óvíða í heim­inum sé verra að vera kona en í Afganistan, þar sem konur upp­skera líf­láts­hót­anir fyrir að velja sér starfs­frama. „Þær eru því­líkir naglar, þessar stelpur, sem leggja líf sitt í hættu með því einu að ákveða að mæta í vinnu og skóla á hverjum degi, til þess að bjarga lífi ann­arra,“ sagði Una á Facebook eftir heim­sókn­ina.

Vonar það besta

Konurnar sem hún ræddi við áttu það sam­eig­in­legt að hafa notið stuðn­ings fjöl­skyld­unnar til mennt­unar og starfs­frama:  „Það er lyk­il­at­riði. Konur geta ekk­ert gert hér án stuðn­ings fjöl­skyld­unnar. Ég spurði hvort það væri eitt­hvað í bak­grunni þeirra sem gerði að verkum að þær njóti stuðn­ings þrátt fyrir að svo víða í afgönsku sam­fé­lagi sé enn hörð mót­staða gegn sjálf­stæði kvenna. Mér var sagt að bak­grunnur þeirra væri fjöl­breyttur, sumar úr efna­meiri fjöl­skyldum en aðrar ekki. Rauði þráð­ur­inn væri sá að for­eldrar þeirra allra hefðu líka gengið mennta­veg­inn, væru upp­lýstir og vildu það sama fyrir dætur sínar. Menntun er lyk­ill­inn,“ sagði Una í umræðum um heim­sókn­ina. 

Viðtölin voru birt í morgun, þar á meðal við­tal við dr. Sonia Baha, ungan lækni á Sardar Daud Khan sjúkra­hús­inu. Sonia útskrif­að­ist sem læknir í fyrra eftir sjö ára nám og ætl­aði að sér­hæfa sig í skurð­lækn­ingum. Una veit ekki hver örlög hennar urðu í árásinni í dag og greindi frá því á Facebook í dag: „Ég veit ekki ennþá um afdrif Soniu eða hinna lækn­anna sem ég hitti. Vona það besta á meðan fregnir skýr­ast og hvet ykkur til að horfa á við­talið við þessa hug­rökku ungu konu.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár