Blaðaljósmyndir ársins - Stórglæsileg sýning opnuð

Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lag Íslands opn­aði stór­glæsi­lega sýn­ingu sína í dag í Perlunni, og veitti verð­laun fyrir þær myndir sem skör­uðu fram úr á árinu 2015.

Myndir árs­ins er árleg sýn­ing Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands. Á sýn­ing­unni í ár eru 83 myndir frá liðnu ári sem valdar voru af óháðri dóm­nefnd úr 904 inn­sendum myndum íslenskra blaða­ljós­mynd­ara. Myndunum er skipt í 7 flokka sem eru frétta­myndir, dag­legt líf myndir, íþrótta­myndir, por­trett­myndir, umhverf­is­myndir, tíma­rita­myndir og myndraðir. Í hverjum flokki valdi dóm­nefndin bestu mynd­ina / bestu myndröð­ina og ein mynd úr fyrr­nefndum flokkum var svo valin sem mynd árs­ins.

Dóm­nefnd­ar­störf fóru fram 22. - 23. jan­úar síð­ast­lið­inn en í ár skip­uðu dóm­nefnd­ina þau Hilmar Þór Guð­munds­son, Sissa, Íris Dögg Ein­ars­dóttir, Auðunn Níelsson, Torfi Agn­ars­son, Karl Pet­ers­son og Jan Grarup sem jafn­framt var for­maður dóm­nefndar.

Eyþór Árnason, sjálf­stætt starf­andi ljós­mynd­ari, átti mynd árs­ins.

Kristinn Magn­ús­son átti frétta­mynd árs­ins. Hún sýndi fjöl­skyldu frá Albaníu, með lang­veikt barn, var vísað úr landi í rétt fyrir jól. Hófst mikil sam­fé­lags­leg pressa um að fá þau aftur sem end­aði með því að þau fengu íslenskan rík­is­borg­ara­rétt

Heiða Helga­dóttir fékk verð­laun fyrir mynd árs­ins í flokknum Daglegt líf.

Eggert Jóhann­es­son fékk verð­laun fyrir bestu íþrótta­mynd­ina. Stjörnu­konur fagna íslands­meist­aratitl­inum í hóp­fim­leikum á heima­velli sínum í Ásgarði, á þeirri mynd.

Kristinn Magn­ús­son fékk svo verð­laun fyrir bestu portrait mynd­ina, af Sigga Sig­ur­jóns, leik­ara.

Haraldur Þór Stef­áns­son fékk verð­laun fyrir bestu umhverf­is­mynd árs­ins, sem prýðir þessa frétt sem burð­ar­mynd. Myndin sýnir Skaft­ár­hlaup 2015, sem var eitt það mesta í sög­unni en þessi mynd sýnir kraft­inn sem var við Eld­vatns­brúna skammt frá Ytri Ásum.

Frá dóm­nefnd, var þessi rök­stuðn­ingur: „Myndin sýnir mikla drama­tík og kraft nátt­úr­unnar. Persónan á mynd­inni gefur áhorf­and­anum við­mið sem gerir upp­lifun hans enn meiri. Mynd­vinnslan hæfir mynd­inni ein­stak­lega vel.“

Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaða­manna­fé­lags Íslands. Sýningin Myndir árs­ins hefur verið haldin árlega síðan 1995 og er ein fjöl­sóttasta ljós­mynda­sýn­ingin ár hvert. Stjórn Blaða­ljós­mynd­ara­fé­lags Íslands í ár skipa Eyþór Árnason (for­maður), Ernir Eyj­ólfs­son, Anton Brink Hansen, Rut Sig­urð­ar­dóttir, Heiða Helga­dóttir og Styrmir Kári Erwinsson.

Sýningin stendur til 2. apríl og Sögur Útgáfa gefur út bók með myndum sýn­ing­ar­innar sem fæst í bóka­búðum lands­ins.

Verðlaun fyrir mynda­röð árs­ins fékk Heiða Helga­dóttir, ,meðal ann­ars fyrir myndir sem teknar voru í Lauf­skála­rétt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár