Metamates: Töff gælunafn eða endalok krúttlegrar hefðar tæknigeirans?

Mark Zuckerberg vill að starfs­menn Meta kalli sig Meta­mates. Ákveðin gælu­nafna­menn­ing hefur verið ríkj­andi í tækni­geir­anum vest­an­hafs en starfs­fólk Meta hefur skiptar skoð­anir. „Við erum alltaf að breyta nafn­inu á öllu og það er rugl­andi.“

„Meta, Metamates, Me,“ eru ný einkunnarorð samfélagsmiðlarisans Meta og hvetur Mark Zuckerberg starfsmenn til að tala um sig sem „Metamates“.
„Meta, Meta­mates, Me,“ eru ný ein­kunn­ar­orð sam­fé­lags­miðl­aris­ans Meta og hvetur Mark Zuckerberg starfs­menn til að tala um sig sem „Meta­mates“. Mynd: EPA

Ný gildi sam­fé­lags­miðl­aris­ans Meta, eins verð­mætasta fyr­ir­tæki heims, voru kynnt af Mark Zuckerberg, stofn­anda Facebook og for­stjóra Meta, í vik­unni. Í leið­inni svipti hann hul­unni af því sem hann hvetur starfs­fólk hér eftir til að kalla sig: Meta­mates.

Gælunöfn yfir starfs­fólk tækni­fyr­ir­tækja er eitt­hvað sem tíðkast hefur í Banda­ríkj­unum frá því að þau fyrstu urðu til í Kís­ildalnum. Þannig gengur starfs­fólk Google undir nafn­inu „Googlers“, „Amazonians“ starfa hjá Amazon og starfs­fólk Yahoo gengur ein­fald­lega undir nafn­inu „Yahoos“. Það var því bara tíma­spurs­mál hvenær starfs­fólk Meta fengi nýtt nafn eftir að fyr­ir­tækið sagði skilið við Facebook-nafnið og „Facebookers“ á síð­asta ári.

Svo það fari ekki milli mála þá fól nafn­breyt­ingin í októ­ber í sér breyt­ingu á nafni móð­ur­fyr­ir­tæk­is­ins Facebook. Sam­­fé­lags­mið­ill­inn Face­book eins og við þekkjum hann hefur ekki breyt­­ast mik­ið, ef eitt­hvað. Facebook varð Meta en sam­­fé­lags­mið­ill­inn Face­book fór undir hatt fyr­ir­tæk­is­ins líkt og Instagram, Whatsapp og Oculus, smá­­for­rit og sam­­fé­lags­miðlar sem eru í eigu fyr­ir­tæk­is­ins.

Nýr kafli Meta hafinn

Við nafn­breyt­ing­una sagði Zucker­berg að Face­book-­nafnið fang­aði ekki lengur allt sem fyr­ir­tækið gerir og heildin væri of tengd við eina vöru, þ.e. sam­fé­lags­mið­il­inn Face­book. Hann sagð­ist von­a að með tíð og tíma yrði litið á Meta sem „meta­ver­se“ fyr­ir­tæki, þar sem raun­veru­leiki og sýnd­ar­leiki sam­ein­ast í einni ver­öld þar sem not­endum er nán­ast ekk­ert óvið­kom­andi.

[links]Zuckerberg segir í færslu á Facebook að nú sé nýr kafli fyr­ir­tæk­is­ins haf­inn, sem Meta, og því sé kom­inn tími til end­ur­skoða gildi þess og því hafi þau verið upp­færð. „Við munum halda áfram að ráða fólk út um allan heim og það er gagn­legt fyrir fólk að vita hvernig það er að vinna hjá Meta og hvað aðskilur okkur frá öðrum fyr­ir­tækjum,“ segir Zuckerberg í færsl­unni, en í henni deilir hann einnig bréfi til starfs­manna sem hann sendi í vik­unni.

Zuckerberg segir að verk­efni Meta sem meta­verse-fyr­ir­tækis sé að leggja grunn að fram­tíð félags­legra tengsla. „Nú er rétti tím­inn til að upp­færa gildi okkar og menn­ing­ar­legt stýri­kerfi,“ segir hann í færslu sinni.

Áhersla á samvinnu og samstöðu

Meðal gilda og slag­orða sem Facebook hefur unnið með frá stofnun þess árið 2004 eru „move fast and break things“, sem síðar var tónað niður í „move fast“ þannig að í stað­inn fyrir að „vinna hratt og brjóta hluti“ voru skila­boðin ein­fald­lega að vinna hratt. Nú beinir Zuckerberg skila­boðum sínum til starfs­fólks­ins að halda áfram að vinna hratt, en gera það saman: „Move fast together“. „Þetta snýst um að vinna hratt í sam­ein­ingu - í eina átt sem fyr­ir­tæki, ekki bara sem ein­stak­lingar.“

Á ýmsu hefur gengið hjá Meta síð­asta ár. Facebook-skjölin, þar sem fyrr­ver­andi starfs­maður Facebook lak gögnum til Wall Street Journal, komu upp um vafa­sama hegðun Facebook, svo sem að ein­blína á gróða frekar en öryggi not­enda sinna og að hylma yfir sönn­un­ar­gögn um dreif­ingu fals­frétta og áróð­urs í gróða­skyni. Bilanir plög­uðu einnig fyr­ir­tækið á síð­asta ári þar sem Facebook og fleiri sam­fé­lags­miðlar fyr­ir­tæk­is­ins lágu niðri í margar klukku­stundir.

Daglegum notendum fækkar í fyrsta skipti í sögu Facebook

Nafn­breyt­ingin var ekki síst gerð til að breyta, og í leið bæta, ímynd Facebook. Stað­reyndin er hins vegar sú að Facebook, eða Meta, er enn í vand­ræðum.

Á síð­asta árs­fjórð­ungi fækk­aði dag­legum not­endum Face­book um 500 þús­und og er það í fyrsta skipti í 18 ára sögu fyr­ir­tæk­is­ins sem dag­legum not­endum fækkar. Aðrir miðlar í eigu Meta, líkt og WhatsApp, Messen­ger og Instagram, náðu heldur ekki að bæta við sig mörgum not­end­um.

Eftir kynn­ingu síð­asta árs­hluta­upp­gjörs hrundi verðið á hluta­bréfum í Meta um fimmt­ung á einum degi, eftir að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins voru undir vænt­ingum í nýbirtu árs­fjórð­ungs­upp­gjöri. Mark­aðsvirði Meta féll því um rúma 200 millj­arða doll­ara á sól­ar­hring.

Í til­kynn­ingu sinni með árs­hluta­upp­gjör­inu seg­ist Meta búast við áfram­hald­andi erf­ið­leikum í tekju­öflun vegna auk­innar sam­keppni og breyt­inga í neyt­enda­hegð­un. Einnig býst fyr­ir­tækið við erf­ið­leikum vegna nýrra laga­setn­inga sem gera fyr­ir­tæk­inu erf­ið­ara fyrir að safna upp­lýs­ingum um neyt­end­ur.

„Metamates“ uppástunga frá manni sem notar ekki Facebook

Ímynd­ar­upp­bygg­ing Meta heldur hins vegar áfram og virð­ist hluti af henni, ef marka má orð Zuckerberg, að efla starfs­manna­and­ann og sýna í leið­inni hvað það er gaman að vinna hjá Meta. Á starfs­manna­fund­inum í vik­unni kynnti Zuckerberg ný ein­kunn­ar­orð fyr­ir­tæk­is­ins: Meta, Meta­mates, Me. „Þetta snýst um að vera góðir full­trúar fyr­ir­tæk­is­ins okkar og mark­miða þess. Þetta snýst um ábyrgð­ar­kennd okkar gagn­vart sam­eig­in­legri vel­gengni okkar sem liðs­fé­lagar. Þetta snýst um að hugsa vel um fyr­ir­tækið okkar og hvort annað,“ segir Zuckerberg í færslu sinni.

Meta­mates er í raun vísun í banda­ríska sjó­her­inn og kemur hug­myndin frá Douglas Hof­stadter, pró­fessor í hug­rænum vís­indum við Indiana Uni­versity. Hof­stadter, sem hlaut Pulitzer-verð­launin fyrir bók sína „Gödel, Escher, Bach: An Eternal Golden Braid“, stakk upp á Meta­mates í tölvu­pósti frá yfir­manni tækni­mála hjá Meta, sem leit­aði eftir upp­á­stungum frá honum í tölvu­pósti.

Túlka má ein­kunn­ar­orðin „Meta, Meta­mates, Me“ sem vísun í banda­ríska sjó­her­inn sem hefur stuðst við ein­kunn­ar­orðin „Ship, Ship­mates, Self“, sem Instagram hefur reyndar líka gert. Hof­stadter stakk upp­runa­lega upp á „teammate“ til að lýsa starfs­fólki Meta en „Metamate“ var nefnt sem annar mögu­legur kostur. Aðspurður seg­ist Hof­stader ekki hafa hug­mynd um að Meta hafi tekið upp „Meta­mates“ fyrir starfs­fólk sitt. „Á meðan ég man, ég nota ekki Facebook og hef aldrei gert,“ skrifar hann í tölvu­pósti til blaða­manns New York Times. „Ég forð­ast alla sam­fé­lags­miðla, þeir eru ekki minn stíll. En tölvu­póst nota ég!“

Fyrirtækjamenning tæknigeirans ekki jafn krúttleg og áður

En mun starfs­fólk Meta koma til með að tala um sig og sam­starfs­fé­lag­ana sem Meta­mates?

Hundruð starfs­manna brugð­ust við tíð­ind­unum á innri vef Meta með hjarta-lynd­is­tákni (e. emoji) en efa­semd­ar­tón má greina í einka­skila­boðum sem New York Times hefur undir höndum. „Hvernig er þetta að fara að breyta fyr­ir­tæk­inu? Ég skil ekki skila­boðin,“ skrifar verk­fræð­ingur hjá Meta í skila­boðum til sam­starfs­manns. „Við erum alltaf að breyta nafn­inu á öllu og það er rugl­andi.“ Þá nefna nokkrir starfs­menn að þeim finn­ist vísun í her­inn óþægi­leg til­hugsun.

Blaða­maður New York Times spyr hvort ekki sé kom­inn tími á að tækni­fyr­ir­tækin segi skilið við gælu­nöfnin. Þau hafi kannski þótt töff þegar fyr­ir­tækin voru að stíga sín fyrstu skref. Tækni sé hins vegar eðli­legur hluti af lífi fólks í dag og „krútt­leg tækni­fyr­ir­tækja­menn­ing“ heyri því sög­unni til, svo sem gælu­nöfn yfir starfs­fólkið.

Zuckerberg virð­ist hins vegar sann­færður um ágæti Meta­mates og brýnir fyrir starfs­fólki sínu að hugsa til lengri tíma. „Við eigum að takast á við þær áskor­anir sem munu hafa hvað mest áhrif, jafn­vel þótt árang­ur­inn verði ekki sýni­legur fyrr en eftir nokkur ár.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár