Bjarni segist ætla að kynna hugmyndir um endurskipulagningu lífeyriskerfisins

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks­ins segir of marga vera að ljúka starfsævi sinni án ríkra líf­eyr­is­rétt­inda. Tími sé kom­inn til að breyta kerf­inu. Síðast var það gert 2016, með jöfnun líf­eyr­is­rétt­inda. Enn á eftir að efna for­sendur þeirra breyt­inga.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Golli

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, vill leggja líf­eyr­is­kerfið á Íslandi til hliðar í þeirri mynd sem það er nú og byggja upp nýtt frá grunni. Hann seg­ist vera að leggja loka­hönd á hug­myndir í þá veru og að hann ætli sér að kynna þær innan tíðar.

Þetta kom fram í við­tali við Bjarna í þætt­inum Bítið á Bylgj­unni í morgun.

Bjarni sagði þar að það þyrfti að sætta sig við að of margir væru ekki að ljúka starfsævi sinni með rík líf­eyr­is­rétt­indi og því þyrfti að hugsa kerfið upp á nýtt. „Nota skatt­kerfið ann­ars vegar til að styðja við þessa hópa, auka svig­rúm til atvinnu­þátt­töku án skerð­inga, og hins vegar að hætta að líta á þetta sem bætur heldur stuðn­ings­kerfi sem byggir á rétt­indum.“

Vísaði í breytingarnar 2016

Í við­tal­inu sagði Bjarni að kerf­inu hefði verið breytt veru­lega árið 2016, þegar hann var fjár­mála­ráð­herra líkt og nú, og að nú væri kom­inn sá tíma­punktur að ráð­ast þyrfti í enn rót­tæk­ari breyt­ingar.

[adspot]Þær breyt­ingar sem Bjarni vísar í að hafi verið gerðar fólust í því að sam­komu­lag var gert um að sam­ræma opin­bera og almenna líf­eyr­is­kerfið með þeim hætti að opin­berir starfs­menn myndu ekki njóta lengur betri líf­eyr­is­rétt­inda en þeir sem starfa á einka­mark­aði. Í stað­inn áttu þeir að fá betur borgað og meiri launa­hækk­anir næsta ára­tug­inn til að jafna stöðu opin­berra starfs­manna og ann­arra í launa­þróun.

Með því að sam­ræma líf­eyr­is­kerfin átti loks að vera hægt að nálg­ast kjara­samn­inga heild­rænt og vinna skipu­lega að því að koma í veg fyrir að höfr­unga­hlaup launa­hækk­ana myndi grafa undan því mark­miði að bæta kjör íslenskra launa­manna.

Í sam­komu­lag­inu var sömu­leiðis fjallað um að launa­kjör opin­berra starfs­manna yrðu jöfnuð við þau sem tíðkast á almennum mark­aði. Samkvæmt sam­komu­lag­inu átti launa­jöfn­unin að nást innan ára­tugar en iðgjöld áttu að hækka á móti í almenna kerf­inu í 15,5 pró­sent.

Á móti áttu opin­berir starfs­menn að sam­þykkja stór­tækar breyt­ingar á líf­eyr­is­rétt­inda­vinnslu sinni. Stærstu breyt­ing­arnar voru þær að líf­eyr­i­s­töku­aldur var hækk­aður úr 65 í 67 ár, sjóðs­söfnun myndi byggja á föstum iðgjöldum og ávinnsla rétt­inda yrði ald­urstengd.

Sam­hliða yrði ábyrgð launa­greið­enda, ríkis og sveit­ar­fé­laga, á sjóð­unum afnumin.

Loforð sem ekki hefur verið efnt

Í svari við fyr­ir­spurn Kjarnans, sem send var til fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins í sept­em­ber 2016, kom fram að laun opin­berra starfs­manna væru um það bil 16 pró­sent lægri en starfs­manna á almennum vinnu­mark­aði á þeim tíma.

[links]Það var því launa­mun­ur­inn sem þurfti að vinna upp næsta ára­tug­inn umfram almennar launa­hækk­anir.

Svarið byggði á sam­an­burði Hagstofu Íslands á launa­mun opin­berra starfs­manna og þeirra sem starfa á almennum vinnu­mark­aði. Sá fyr­ir­vari var þó gerður á því að launa­sam­an­burð­ur­inn væri erf­iður og aðilar sam­komu­lags­ins töldi sig ekki geta byggt frek­ari vinnu um launa­sam­an­burð á grunni nið­ur­stöðu Hag­stof­unnar. Því varð ofan á að byggja þyrfti vinn­una á „betri for­sendum og ræð­ast frekar á milli aðila.“

Kjarninn greindi frá því í byrjun júní að nú, þegar fimm ár eru liðin frá því að sam­komu­lagið var gert, væri langt í land að laun opin­berra starfs­manna séu í takti við laun á almenna mark­aðnum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár