Vonar að við séum á leið inn í flata kúrfu

Enn vantar for­sendur til að geta spáð fyrir um það hvernig far­aldur COVID-19 muni þró­ast hér inn­an­lands, að sögn land­læknis, sem býst við að fjöldi veikra fari fljót­lega að aukast með til­heyr­andi auknu álagi á heil­brigð­is­kerfið.

For­sendur vantar enn til þess að hægt sé að spá fyrir um hvernig far­aldur COVID-19 muni þró­ast hér inn­an­lands, að sögn Ölmu D. Möller land­læknis. Hún von­ast til þess að við séum á upp­leið í „flatri kúrfu“ yfir fjölda smit­aðra og býst við því að fjöldi veikra hér á landi fari að aukast, með til­heyr­andi álagi á heil­brigð­is­kerfið.

Eins og ítrekað hefur komið fram skiptir gríð­ar­lega miklu máli að kúrfan sem Alma ræðir um verði eins flöt og mögu­legt er, en ekki brött eins og hún er orðin í ríkjum þar sem fjöldi greindra smita er nán­ast í veld­is­vexti.

Markmið heil­brigð­is­yf­ir­valda og stjórn­valda er að hægja á útbreiðslu veirunnar til að álag á heil­brigð­is­kerfið verði við­ráð­an­legt allan tím­ann á meðan far­ald­ur­inn gengur yfir.

Töl­fræð­ingar og aðrir vís­inda­menn vinna að spá um þróun far­ald­urs­ins hér á landi og þar til nið­ur­stöður þeirra liggja fyrir er viss­ara að tala var­lega um það hver mögu­legur fjöldi smit­aðra hér á landi gæti orðið, að sögn land­læknis.

Fimm á spítala og þar af tveir á gjörgæslu

Tvö­hund­ruð og fimm­tíu til­felli COVID-19 hafa nú greinst hér á landi, aldrei fleiri en í gær, er 43 sýni greindust jákvæð, en hafa má í huga að mun fleiri sýni voru greind á sýkla- veiru­fræði­deild Land­spít­ala en fyrri daga, alls 545 tals­ins.

[adspot]

Fimm manns eru á Land­spít­ala vegna veik­inda sinna, þar af tveir á gjör­gæslu, en þó ekki í önd­un­ar­vél, sam­kvæmt því sem fram kom á dag­legum blaða­manna­fundi í sam­hæf­ing­ar­stöð­inni í Skóg­ar­hlíð í dag.

Níu ein­stak­lingum er þegar batnað og hafa fengið þann form­lega stimpil, að sögn Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis, en um er að ræða fólk sem hefur verið ein­kenna­laust með öllu í heila viku. Þórólfur sagði að ekki væri þörf á að taka sýni úr fólki á ný í lok þessa ein­kenna­lausa tíma­bils til að ganga úr skugga um að það væri sann­ar­lega laust við veiruna.

Sótt­varna­læknir ítrek­aði á blaða­manna­fund­inum að hér á landi væri verið að taka mjög mikið af sýnum, hlut­falls­lega miklu fleiri sýni en til dæmis á hinum Norð­ur­lönd­unum. Það þarf að hafa í huga þegar tölur yfir fjölda smit­aðra hér eru túlk­aðar, en víða er það svo að ein­ungis þeir sem sýna það alvar­leg ein­kenni veirunnar að þeir þurfi á spít­ala­inn­lögn að halda séu teknir í sýna­töku.

Hann telur sig geta sagt að útbreiðsl­unni hafi verið „nokkuð vel stjórnað“ hér­lendis, sökum þess að ekki hefur orðið hlut­falls­leg aukn­ing í fjölda smita, en um 10 pró­sent allra sýna sem tekin eru af veiru­fræði­deild Land­spít­ala reyn­ast jákvæð og innan við 1 pró­sent sýna sem tekin eru af Íslenskri erfða­grein­ingu. Um 6.500 sýni hafa alls verið tekin til þessa.

Allir í sóttkví þar sem sýkingin er víðast hvar í vexti

Aðgerðir stjórn­valda voru hertar í dag, en nú þurfa allir Íslend­ingar og aðrir sem búsettir eru á Íslandi að fara í tveggja vikna sótt­kví við kom­una til lands­ins, sama hvaðan þeir koma.

Þórólfur sagði að sú ákvörðun hefði verið tekin vegna þess að svo virð­ist sem sýk­ingin sé í „miklum vexti í flestum löndum“ en til umræðu hafi verið að ein­skorða sótt­kví áfram við til­tekin ríki eins og áður hafði verið.

Auknar sótt­varna­ráð­staf­anir hafa verið gerðar á Kefla­vík­ur­flug­velli vegna þessa og reynt er að halda fólki aðskildu þar inn­an­dyra eins og kostur er, þó það sé vissu­lega svo að allir sem þar eru séu á leið­inni í tveggja vikna sótt­kví hvort sem er.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár