Gunnar Smári alltaf við stjórnarborðið í spilakassa Samtaka skattgreiðenda

Félag sem heitir Samtök skatt­greið­enda hefur kynnt til sög­unnar stjórn­ar­skiptarúl­lettu á net­inu. Formaður félags­ins segir það ekki hafa kostað krónu að setja vef­inn í loftið og að til­gang­ur­inn með honum sé að láta fólk hugsa um skatta­hækk­anir.

Samtök skatt­greið­enda, félaga­sam­tök sem berj­ast fyrir lægri sköttum, hafa sett upp vef þar sem leið­togum allra ann­arra flokka en Sjálf­stæð­is­flokks­ins er stillt upp í spila­kassa­leik. Með því að ýta á einn takka kemur síðan upp ein­hver sam­setn­ing af fimm leið­togum stjórn­mála­flokka, undir yfir­skrift­inni „5 flokka drauma­stjórnin þín!“.

Ekkert á vef­síð­unni gefur til kynna hver stendur fyrir þessum leik nema lénið, sem er undir hatti síð­unnar skatt­greið­endur.is. Sú síða hefur ekki verið upp­færð síðan skömmu fyrir kosn­ing­arnar árið 2016, þá með tengli á aug­lýs­ingu sem var­aði við því að vinstri stjórn kæm­ist til valda á Íslandi.

Á síð­unni kemur fram að Skafti Harð­ar­son rekstr­ar­stjóri á Sel­tjarn­ar­nesi sé for­maður Samtaka skatt­greið­enda. Hann játar því í sam­tali við Kjarnann að sam­tökin hafi ákveðið að setja þennan leik í loftið til að vekja athygli á sínum mál­stað fyrir kosn­ingar.

„Þetta er fyrst og fremst gert til að hafa gaman af,“ segir Skafti í sam­tali við blaða­mann, spurður um ástæð­una. „Þarna erum við að setja saman þá rík­is­stjórn sem lofar hvað mestum skatta­hækk­unum og sjá hvernig fólki líkar,“ bætir hann við.

Hann seg­ist telja það eðli­legt að sam­tökin reyni að vekja athygli á sínum mál­stað fyrir kosn­ingar rétt eins og aðilar á borð við ASÍ, BSRB og fleiri hafi gert. Hann segir 2-300 manns styrkja sam­tökin með frjálsum fram­lögum á hverju ári, en segir þó sömu­leiðis við Kjarnann að upp­setn­ing vef­síð­unnar með stjórn­ar­skipta-spila­kass­anum hafi ekki kostað neitt fé.

Gunnar Smári birtist alltaf

Samkvæmt athugun Kjarnans á þessum leik er ekki hægt að snúa hjól­inu án þess að Gunnar Smári Egilsson for­maður fram­kvæmda­stjórnar Sós­í­alista­flokks­ins sé einn af stjórn­mála­leið­tog­unum fimm sem koma upp á hjóli spila­kass­ans.

„Er það ekki bara af því að þú hefur ekki verið nógu lengi fyrir framan rúl­lett­una?“ spyr Skafti þegar blaða­maður nefnir þetta. Síðan bætir hann því við að mark­miðið hafi verið að setja fram þá rík­is­stjórn sem lík­leg­ust væri til þess að hækka skatta mest og þar horfi hann á sós­í­alista fremsta í flokki.

Aug­lýs­ingar á vegum Samtaka skatt­greið­enda í aðdrag­anda kosn­inga hafa áður vakið athygli, en fyrir kosn­ing­arnar árið 2017 keyptu sam­tökin aug­lýs­ingar bæði í útvarpi og á sam­fé­lags­miðlum þar sem varað var við skatta­til­lögum nokk­urra stjórn­mála­flokka sem þá buðu fram.

Í sam­tali við Vísi eftir kosn­ing­arnar 2017 sagði Skafti að sam­tökin sem hann stýrir og stofnuð voru árið 2012 hefðu engin tengsl við stjórn­mála­flokka, þrátt fyrir að hann sjálfur væri flokks­bund­inn sjálf­stæð­is­maður og hinir stjórn­ar­menn­irnir tveir í sam­tök­unum væru sömu­leiðis stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins.[links]

Í takti við varúðarorð frá forystu Sjálfstæðisflokksins

Skila­boðin sem fel­ast í rúl­lettu Samtaka skatt­greið­enda ríma ágæt­lega við mál­flutn­ing for­ystu­fólks í Sjálf­stæð­is­flokknum þessa dag­ana, um að flokkar séu of margir og vanda­samt geti orðið að mynda stöðuga rík­is­stjórn eftir kosn­ingar.

Bjarni Bene­dikts­son for­maður flokks­ins var­aði til dæmis við því að gera þyrfti miklar mála­miðl­anir við stjórn lands­ins í við­tali í Dagmálum á vef mbl.is, sem birt­ist í gær.

„Þetta er bara sundr­ung, þetta er ákveð­inn glund­roði. Það er til mik­ils tjóns, eins og ég horfi á hlut­ina, að það þurfi að gera jafn­miklar mála­miðl­anir við stjórnun lands­ins eins og stefnir í. Þetta kann ekki góðri lukku að stýra,“ sagði Bjarni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár