Bjarni varar við glundroða í stjórnmálum og vill leiða ríkisstjórn

Formaður Sjálf­stæð­is­flokks býst við meira fylgi og að það kæmi sér á óvart ef Vinstri græn og Framsókn vilji ekki setj­ast niður með sér eftir kosn­ingar. Hann segir flokk­inn styðja auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá. Aðrir hafi komið í veg fyrir það.

Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: RÚV/Skjáskot

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks og efna­hags- og fjár­mála­ráð­herra, seg­ist telja að nið­ur­staða flokks­ins í kosn­ingum verði önnur en kann­anir hafi sýnt, en sam­kvæmt þeim stefnir hann í sína verstu útkomu frá upp­hafi.

Í við­tali við Dagmál á mbl.is segir Bjarni að það sé eng­inn annar flokkur sem hafi „kné­sett“ Sjálf­stæð­is­flokk­inn og sé fyrir vikið nýi burða­rás­inn í íslenskum stjórn­málum. „Þetta er bara sundr­ung, þetta er ákveð­inn glund­roði. Það er til mik­ils tjóns, eins og ég horfi á hlut­ina, að það þurfi að gera jafn­miklar mála­miðl­anir við stjórnun lands­ins eins og stefnir í. Þetta kann ekki góðri lukku að stýra.“

Hann segir að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafi alltaf metnað til að leiða rík­is­stjórn og að hann myndi „glaður gera það ef nið­ur­stöður kosn­inga gefa mér færi á að koma saman sterkri stjórn“. Í við­tal­inu mærir Bjarni auk þess sam­starfið við Katrínu Jak­obs­dóttur, for­mann Vinstri grænna og for­sæt­is­ráð­herra og Sigurð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins og sam­göngu- og sveit­ar­stjórn­ar­ráð­herra. Hann segir sam­starfið hafa gengið vel og skynji ekki annað en að það sé upp­lifun hinna tveggja líka. „Því kæmi það mér á óvart ef það væri ekki vilji til þess að setj­ast að minnsta kosti niður og spá í spilin að loknum kosn­ingum að því gefnu að við séum með meiri­hluta.“

[adspot]Í nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans, sem birt verður síðar í dag, mælist Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn með 21,6 pró­sent fylgi og rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir með sam­tals 45,5 pró­sent fylgi. Það mun að óbreyttu ekki duga þeim til að ná meiri­hluta en mestar líkur eru á að stjórn­ar­flokk­arnir fá 30-31 þing­mann sam­tals.

Segir aðra hafa hafnað auðlindaákvæði

Bjarni ræðir líka auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá í við­tal­inu við Dagmál. For­sæt­is­ráð­herra lagði fram frum­varp á kjör­tíma­bili. Samkvæmt frum­varp­inu áttu nokkur atriði stjórn­ar­skrár­innar taka breyt­ingum, yrði það sam­þykkt. Þar er um að ræða atriði sem fjalla um for­seta Íslands, rík­is­stjórnir, verk­efni fram­kvæmd­ar­valds, umhverf­is­vernd, auð­lindir í nátt­úru Íslands og íslensk tunga.

Mest var tek­ist á um hið svo­kall­aða auð­linda­á­kvæði sem segir til um að auð­lindir séu í eigu þjóðar, en hluti stjórn­ar­and­stöðu­flokka vill ganga lengra og til­taka tíma­bind­ingu fram­sals þeirra í stjórn­ar­skrá.

Þegar langt var liðið á þingið lá frum­varpið enn inni hjá stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits. Stærstur hluti stjórn­ar­and­stöð­unnar vildi afgreiða frum­varpið út úr nefnd­inni svo það gæti fengið áfram­hald­andi þing­lega með­ferð og umræðu en full­trúar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks, Fram­sókn­ar­flokks og Mið­flokks í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd felldu til­lögu um það í sumar. Fyrir vikið verða engar stjórn­ar­skrár­breyt­ingar sam­þykktar á þessu kjör­tíma­bili og engar slíkar munu taka gildi á því næsta þar sem tvö þing þurfa að sam­þykkja breyt­ingar.

Bjarni segir í við­tal­inu að það hafi verið stjórn­ar­and­stöðu­flokkar sem hafa hafnað auð­linda­á­kvæð­inu, ekki stjórn­ar­flokk­arnir. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé fylgj­andi auð­linda­á­kvæði í stjórn­ar­skrá. „Við erum að meina að við styðjum breyt­ingar á stjórn­ar­skránni til þess að ná utan um það sem segir í lögum um stjórn fisk­veiða, að þetta sé sam­eig­in­leg auð­lind. Slíkt ákvæði kom fram á þessu kjör­tíma­bili en þá er því hafnað á ein­hverjum nýjum for­sendum. Nýju rökin eru þau og færð fram af flokkum sem vilja aðeins tíma­bundna samn­inga fyrir nýt­ingu á auð­lind­inni að ákvæðið verði að inni­halda kröf­una um tíma­bundna samn­inga.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár