Ingibjörg Isaksen efst hjá Framsókn í Norðausturkjördæmi – Líneik önnur

Ingi­björg Ólöf Isaksen bæj­ar­full­trúi og fram­kvæmda­stjóri á Akureyri varð hlut­skörpust í póst­kosn­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Hafði hún betur en Líneik Anna Sæv­ars­dóttir þing­maður flokks­ins, sem varð önnur í kjör­inu.

Ingibjörg Isaksen mun leiða lista Framsóknar í Norðausturkjördæmi í haust.
Ingi­björg Isaksen mun leiða lista Fram­sóknar í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í haust.

Ingi­björg Ólöf Isaksen bæj­ar­full­trúi á Akureyri varð hlut­skörpust í póst­kosn­ingu Fram­sókn­ar­flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi. Líneik Anna Sæv­ars­dóttir alþing­is­maður var önnur og Þórarinn Ingi Pét­urs­son vara­þing­maður og bóndi varð þriðji.

Svæð­is­miðl­arnir Akureyri.net og Aust­ur­frétt segja báðir frá þessu, en nið­ur­stöður flokks­ins í kjör­dæm­inu voru kynntar í kvöld. Póst­kosn­ing­unni lauk í lok mars­mán­aðar.

Odd­viti list­ans í síð­ustu kosn­ingum var Þór­unn Egils­dótt­ir, en hún þurfti að segja skilið við þing­störfin vegna erf­iðra veik­inda. Þing­mað­ur­inn Líneik, sem var í öðru sæti list­ans í síð­ustu kosn­ingar sótt­ist eftir odd­vita­sæt­inu í kjöl­far­ið, en það gerði einnig Ingi­björg, bæj­ar­full­trúi á Akureyri.

Alls voru 2.207 manns á kjör­skrá í póst­kosn­ing­unni.

Niðurstaðan varð eftirfarandi:

  1. Ingi­björg Ólöf Isaksen, fram­kvæmda­stjóri Lækna­stofa Akur­eyrar. 612 atkvæði í 1. sæti
  2. Líneik Anna Sæv­ars­dóttir, alþing­is­maður Fáskrúðs­firði. 529 atkvæði í 1.-2. sæti
  3. Þórarinn Ingi Pét­urs­son, bóndi Grýtu­bakka­hreppi. 741 atkvæði í 1.-3. sæti.
  4. Helgi Héð­ins­son, odd­viti Skútu­staða­hrepps. 578 atkvæði í 1.-4. sæti.
  5. Halldóra Hauks­dóttir, lög­maður Akureyri. 547 atkvæði í 1.-5. sæti.
  6. Kristinn Rúnar Tryggva­son, bóndi Keldu­hverfi. 496 atkvæði í 1.-6. sæti.

Aðrir sem tóku þátt í póst­kosn­ingu flokks­ins voru Jón Björn Hákon­ar­son, bæj­ar­stjóri Fjarða­byggðar, Karítas Rík­harðs­dóttir, blaða­maður frá Rauf­ar­höfn og Jónína Brynj­ólfs­dóttir, við­skipta­lög­fræð­ingur á Egils­stöðum.

[adspot]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár