PH ljósið 90 ára - ljósið sem átti að fegra heimili og fólk

Ljósið klassíska sem til er á ýmsum íslenskum heimilum.
Ljósið klass­íska sem til er á ýmsum íslenskum heim­ilum. Mynd: Louis Poulsen

Í nýlegri danskri könnun þar sem lands­menn voru beðnir að nefna tíu þjóð­ar­ger­semar kenndi ýmissa grasa. Meðal ger­sem­anna var PH ljósið svo­nefnda. PH er eig­in­lega sam­nefni yfir fleiri en eitt ljós sem byggj­ast öll á sömu hug­mynd­inni. Níutíu ár eru síðan arki­tekt­inn og hug­mynda­smið­ur­inn Poul Henn­ingsen, PH, fékk hug­mynd­ina og smíð­aði sitt fyrsta ljós, en þessi hönnun hefur staðið af sér allar tísku­bylgjur og ljósin selj­ast enn eins og heitar lummur, kannski jafn­vel hraðar!

Poul Henn­ingsen var fæddur 1894 í Ordrup norðan við Kaup­manna­höfn. Hann var í opin­berum skjölum skráður sonur rit­höf­und­ar­ins Agnesar og skóla­stjór­ans Mads Henn­ingsen. Faðirinn var hins vegar rit­höf­und­ur­inn Carl Edwald, sem móðir Pouls átti í ást­ar­sam­bandi við. Að loknu barna­skóla­námi hóf hann nám í múr­verki en 1911 – 1917 stund­aði hann nám við Det tekniske Selskabs Skole og jafn­framt um tveggja ára skeið í Polyt­eknisk Lær­ean­stalt, Tækni­skól­anum. PH hafði mik­inn áhuga fyrir mál­ara­list og stund­aði um skeið nám hjá list­mál­ar­anum Johannes Larsen. PH stund­aði ekki, frekar en margir þekktir danskir hönn­uðir og arki­tektar, ekki nám við Arki­tekta­deild Lista­há­skól­ans, Kun­staka­demiet. Bak­grunn­ur­inn var iðn- og tækni­nám.

Snemma áberandi í menningarlífinu

PH hafði snemma mörg járn í eld­inum. Hann setti á fót teikni­stofu í eigin nafni árið 1919, sem hann starf­rækti árum saman. Vann meðal ann­ars mikið fyrir skemmti­garð­inn Tívolí, var eins­konar hirð­arki­tekt þar eins og hann orð­aði það ein­hvern tíma. Hann hafði alla tíð mik­inn áhuga fyrir þjóð­fé­lags­málum, skrif­aði árum saman fyrir dag­blaðið Politi­ken og síðar Information. Hann samdi jafn­framt fjöl­margar revíur og á árunum 1926 – 1928 gaf hann út tíma­ritið Kritisk Revy, þar var fjallað á gagn­rýn­inn hátt um þjóð­fé­lags­mál. 1935 fékk utan­rík­is­ráðu­neytið hann til að gera kvik­mynd um dag­legt líf í Danmörku, myndin var hugsuð sem kynn­ing á landi og þjóð. Myndin fékk mis­jafna dóma og var síðar stytt og er nú til í tveimur útgáfum. PH var frá upp­hafi mjög gagn­rýn­inn á nas­is­mann og eftir að Þjóð­verjar her­námu Danmörku 1943 voru öll skrif hans rit­skoðuð.

Flýði til Svíþjóðar undan nasistum

30. sept­em­ber 1943 flýði PH ásamt eig­in­kon­unni Inger á ára­bát yfir Eyr­ar­sund til Sví­þjóðar. Um borð í ára­bátnum var líka arki­tekt­inn Arne Jacobsen ásamt unn­ustu sinni og ungum verk­fræð­ingi, Herbert Marcus, sem lagði stund á kapp­róðra. Þeir Arne Jacobsen og Herbert Marcus voru gyð­ingar og ótt­uð­ust um líf sitt. Það gerði PH líka og eftir að stríð­inu lauk komst upp að danskir nas­istar ætl­uðu sér að drepa PH og fjöl­skyldu hans með því að kveikja í rað­húsi fjöl­skyld­unnar í Ordrup. Eftir að stríð­inu lauk flutti PH með fjöl­skyldu sinni til baka til Dan­merkur og það gerðu líka Arne Jacobsen og Herbert Marcus. Eftir heim­kom­una hélt PH áfram að skrifa, ásamt vinn­unni á arki­tekta­stof­unni. Arki­tekta- og rit­störfin verða ekki frekar rakin hér en list­inn er langur: ein­býl­is­hús, fjöl­margar og ólíkar opin­berar bygg­ingar, Tívolí (sem áður var getið) söngvar, skrif í dag­blöð og tíma­rit. Enn­fremur skrif­aði hann nokkrar bækur og var áber­andi per­sóna í dönsku þjóð­lífi.

En það er þó fyrst og fremst eitt sem heldur nafni hans á lofti.

PH ljósin

Strax á náms­ár­unum fékk PH mik­inn áhuga fyrir ljósum og lýs­ingu. Ljósa­per­urnar voru að hans mati ljótar, og birtan frá þeim ann­að­hvort allt of skær eða dauf. Hann ein­setti sér að útbúa ljós, eða skerm eins og hann kall­aði það, sem kastaði birt­unni frá sér án þess að peran sjálf væri sýni­leg. Hann gerði ótal til­raunir heima í rað­hús­inu í Ordrup og á teikni­stof­unni. Árið 1924 hófst sam­vinna PH við fyr­ir­tækið Louis Poulsen. Það fyr­ir­tæki var stofnað 1874 í kringum inn­flutn­ing á víni, sá rekstur gekk ekki vel en 1891 hóf fyr­ir­tækið rekstur raf­magns­verk­stæðis og opn­aði jafn­framt verslun með verk­færi og járn­vörur af ýmsu tagi ásamt litlu járn­smíða­verk­stæði. Þegar PH leit­aði eftir sam­vinnu við Louis Poulsen 1924 var ætlun hans að taka þátt í alþjóð­legri sýn­ingu í París árið 1925 og sýna þar nýju upp­finn­ing­una, þriggja skerma ljósið. Skemmst er frá því að segja að ljósið, sem var loft­ljós úr málmi, vakti mikla athygli og hlaut fyrstu verð­laun sýn­ing­ar­innar. Ári síðar, 1926, vann PH í sam­vinnu við Louis Poulsen sam­keppni um lýs­ingu í nýja sýn­ing­ar­höll, Forum, á Frið­riks­bergi við Kaup­manna­höfn. Í dag­blaði frá þessum tíma segir að ljósin, skerm­arnir úr opal gleri, hafi verið eins og hvítir fuglar í sýn­ing­ar­salnum.

Einstök hönnun

Bæði PH og for­svars­mönnum Louis Poulsen var ljóst að upp­finn­ing PH, þriggja skerma ljósið, var ein­stök og Louis Poulsen náði brátt samn­ingum við umboðs­menn í mörgum löndum og lét úbúa kynn­ing­ar­efni. Nýjar útfærslur af þriggja skerma ljós­inu komu á mark­að­inn, loft­ljós, borð­lampar, og salan jókst stöðugt. Í blaða­við­tali frá þessum tíma sagð­ist for­stjóri Louis Poulsen hand­viss um að PH ljósin ættu eftir að verða vin­sæl og eft­ir­sótt í fram­tíð­inni og þriggja skerma hönn­unin myndi stand­ast tím­ans tönn. Hann reyn­ist sann­spár.

Margt í gangi hjá PH

Þótt ljósin seld­ust vel og mögu­leik­arnir á útfærslum hug­myndar PH væru langt frá því að vera tæmdir hafði hönn­uð­ur­inn fleiri járn í eld­inum. Tekj­urnar af ljósa­söl­unni gerðu honum kleift að sinna öðrum áhuga­málum, þar voru rit­störfin fyr­ir­ferð­ar­mest. Svo var það arki­tekta­stofan, þar var nóg að gera. Louis Poulsen þrýsti mjög á PH að koma með fleiri ljós og nýjar útfærslur. Árin liðu, PH var orð­inn mold­ríkur (eins og hann orð­aði það sjálfur) en hann hélt þó alltaf áfram að sinna öllum sínum fjöl­mörgu áhuga­málum. Skyndi­lega var komið árið 1958.

PH 5

Mörg af ljósum PH bera ekki sér­stök heiti. Þau hafa ein­fald­lega tölu­staf fyrir aftan staf­ina PH, til aðgrein­ingar hvert frá öðru. Þótt til séu nokkur hund­ruð mis­mun­andi ljós og útfærslur af ljósum Poul Henn­ingsen er ljósið sem fékk nafnið PH 5 lang þekkt­ast og hefur orðið eins konar sam­nefn­ari fyrir verk hans. PH 5 kom á mark­að­inn 1958 og talan 5 merkir að stærsti skerm­ur­inn er 50 senti­metrar í þver­mál. Þetta ljós, PH 5, féll strax í kramið hjá almenn­ingi og hefur selst í millj­ón­a­tali. Í verk­smiðju Louis Poulsen í Vejen á Jótlandi eru 130 starfs­menn og þar eru árlega fram­leidd að minnsta kosti 230 þús­und ljós en nákvæm tala fæst ekki gefin upp. Lang stærsti hluti fram­leiðsl­unnar er PH ljós og lampar, þar vegur hlutur PH 5 þyngst. Efnið í PH 5 er matt­lakkað ál, aðal­lit­ur­inn í upp­hafi hvítur en einnig blár litur og rauður til að skapa jafn­vægi í dreif­ingu birtunnar. Síðar hafa komið fleiri litir og sífellt bæt­ist við úrvalið. Sérstök útgáfa, kölluð PH 50 kom á mark­að­inn 2008, í til­efni þess að þá var hálf öld síðan PH 5 var fyrst fram­leitt. Poul Henn­ingsen hefur lík­lega ekki órað fyrir vin­sældum ára­tuga vin­sældum ljóss­ins en hann lést 1967.

Hver er ástæða þess að þetta ljós sem hefur verið á mark­aðnum í tæpa sex ára­tugi er svo vin­sælt? Margir vildu geta svarað þess­ari spurn­ingu en eng­inn veit svarið. Ljósið er fyrir löngu orðið sígilt og hefur staðið af sér alla tísku­strauma. Salan helst stöðug milli ára, eykst þó heldur. Án þess að tölu­legar stað­reyndir liggi fyrir verður að telja lík­legt að hlut­falls­lega séu PH 5 ljósin algeng­ust í Danmörku en þau hafa í gegnum árin selst vel í nágranna­lönd­unum og hafa lengi verið vin­sæl á Íslandi. Japanir eru líka hrifnir af ljós­unum. Sú saga er sögð af Japana sem kom til Dan­merkur uppúr 1960 að hann hafi keypt PH 5 ljós og haft með sér heim. Hann hafi svo sagt frá því þegar heim kom að sér hefði verið sagt að danska ríkið gæfi öllum brúð­hjónum í Danmörku svona ljós. Þetta ku hafa þótt tíð­indi þar eystra. Tak­mörkuð tungu­mála­kunn­átta veldur iðu­lega mis­skiln­ingi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár