Jeffrey Ross Gunter hvarf á brott frá Íslandi í upphafi þessa árs. Ekki hefur heyrst að hans sé sárt saknað.
Jeffrey Ross Gunter hvarf á brott frá Íslandi í upp­hafi þessa árs. Ekki hefur heyrst að hans sé sárt saknað. Mynd: Skjáskot/Bandaríska sendiráðið

Fimm molar um afspyrnuslakan fulltrúa Bandaríkjanna á Íslandi

Donald Trump fyrr­verandi Bandaríkja­forseti sendi svo sannarlega ekki sinn besta mann til Íslands, er hann ákvað að tilnefna húðlækninn Jeffrey Ross Gunter í embætti sendi­herra.

Skýrsla innra eftirlits bandarísku utan­ríkis­þjónustunnar um starfsemi sendiráðs landsins á Íslandi vakti allnokkra athygli hérlendis í vikunni og var til umfjöllunar í flestum miðlum. Í henni kom auk annars fram að síðasti sendi­herra Banda­ríkjanna á Íslandi, Jeffrey Ross Gunter, hefði stjórnað með harðri hendi í sendi­ráðinu og að starfs­liðið þar væri hreinlega enn að jafna sig.

Einnig var bent á að að diplómatísk tengsl sendi­ráðsins við íslensk stjórn­völd hefðu laskast mjög á meðan að Gunter var í embætti, en rakið er í skýrslu innra eftirlitsins að yfir­lýsingar sem hann sendi frá sér á samfélags­miðlum sendi­ráðsins án samráðs við íslensk stjórn­völd hefði sumar hverjar reynst umdeildar í íslensku samfélagi.

Húðsjúkdómafræðingur sem styrkti Trump fjárhagslega

Donald Trump tilnefndi Gunter í embætti sendi­herra á Íslandi í ágúst árið 2018 og skipan hans var samþykkt af Banda­ríkjaþingi í maí árið 2019. Fram að því hafði ekki verið skipaður bandarískur sendi­herra á Íslandi frá því að Robert C. Barber lét af störfum í janúar 2017, um það leyti er Trump tók við völdum.

Gunter, sem er menntaður húðsjúkdóma­fræðingur, hafði enga reynslu af alþjóða­samskiptum áður en hann kom til Íslands. Hann hafði hinsvegar veitt framboði Trumps fjár­stuðning, alls um hundrað þúsund bandaríkja­dali, í kosninga­baráttunni vestanhafs árið 2016.

Kjarninn tók saman nokkra mola um sendi­herrann Gunter og róstusama veru hans á Íslandi, sem ef til vill má segja að hafi haft í för með sér smættaða mynd af þeim álits­hnekkjum sem fjögurra ára stjórnartíð Trump skóp Banda­ríkjunum víða um heim.

1 - Taldi að reynslan úr heilbrigðisgeiranum myndi nýtast sér vel

Þegar sendi­herrar eru skipaðir í Banda­ríkjunum er fjallað um skipan þeirra í utan­ríkismála­nefnd Öldunga­deildarinnar. Í bréfi sem hinn þá nýlega tilnefni Gunter sendi nefndinni í október 2018 kom meðal annars fram að hann hefði aldrei komið til Íslands, en einnig að hann teldi að reynsla sín úr fyrri störfum við húðlækningar og fyrirtækja­rekstri í þeim bransa yrði honum til tekna í embættinu á Íslandi.

„Ég trúi því að mér muni vegna vel sem sendi­herra þar sem ég hef lært hvernig á að byggja upp stóra heild, stjórna og fjárfesta í starfs­fólki og birgjum, þjónusta sjúklinga og mæta þörfum bæði einstaklingsins og samfélagsins,“ sagði Gunter í bréfinu.

Miðað við nýlegan vitnis­burð starfs­fólks sendi­ráðsins í skýrslu innra eftirlitsins nýttist stjórnunar­reynsla Gunters úr húðsjúkdóma­bransanum honum ekki vel í hinu nýja starfi, sem hann hvarf frá í janúar á þessu ári, eftir að Joe Biden tók lyklunum að Hvíta húsinu.

2 - Hreykti sér af „retweeti“ frá Trump og 121 embættisverki til viðbótar

Þegar Gunter var við það að láta af störfum í janúar fór hann hálf­gerðum hamförum á samfélags­miðla­reikningum bandaríska sendi­ráðsins. Reykjavík Grapevine tók eftir því og fjallaði um að þangað inn hefði sett inn tvær færslur sem síðar hefði verið eytt af Facebook-síðu sendi­ráðsins.

Í annarri færslunni þakkaði sendi­herrann Donald Trump fyrir að gefa sér það stórkost­lega tækifæri að fá að gerast sendi­herra á Íslandi. Í hinni lét hann fylgja með hlekk á .pdf-skjal þar sem þulin voru upp 122 afrek sendi­ráðsins sem unnist hefðu á skipunar­tíma hans.

Hægt er að nálgast þetta skjal hjá Reykjavík Grapevine, en áhugavert er að Gunter hreykti sér þar sérstak­lega af því að hafa samið færslu á Twitter sem fengið hefði meiri útbreiðslu en nokkur önnur færsla sem bandaríska sendi­ráðið á Íslandi hefði sett inn á þann miðil.

Færslan fól í sér hrós til Donalds Trump, fyrir að hafa haft milli­göngu um Abraham-samningana, sem snerust um að formlegt stjórnmála­samband á milli Ísraels­ríkis og Barein annars vegar og Sameinuðu arabísku fursta­dæmanna hins vegar, var endur­reist.

Trump sjálfur endur­tísti færslunni frá Gunter – sem auðvitað skýrir hina miklu útbreiðslu. Nánar tiltekið fékk færslan yfir 73 þúsund „like“ og 23 þúsund „retweet“.

Ekki liggur fyrir hversu mörgum vinnu­stundum var varið í að semja þessa færslu, en í áður­nefndri skýrslu innra eftirlits utan­ríkis­þjónustunnar kom fram að álag á samskipta­deild sendi­ráðsins hefði verið mikið í tíð Gunter, ekki síst þar sem sendi­herrann fékk deildina gjarnan með sér klukku­tímunum saman til þess að framleiða efni fyrir samfélags­miðla.

3 - Olli fjaðrafoki með því að tala um „Kína-veiruna“

„Við stöndum sameinuð um að sigra ósýnilegu Kína-veiruna,“ sagði í færslu frá bandaríska sendi­ráðinu á Twitter þann 20. júlí í fyrra, þar sem hann lét fylgja tjákn með bæði bandaríska og íslenska fánanum.

Viðbrögðin við þessum ummælum voru hörð og var sendi­herrann af mörgum, meðal annarra þing­mönnum, sakaður um bæði rasisma og heimsku, eins og dregið var saman í frétt Vísis frá þessum tíma.

4 - Vildi fá að bera byssu og ganga um í hnífheldu vesti á Íslandi

Bandaríska sjónvarps­stöðin CBS kafaði aðeins í málefni sendi­ráðsins á Íslandi í lok júlí 2020 og sagði frá ýmsum furðu­legheitum sem þar voru í gangi. Meðal sagði miðillinn frá því að Gunter hefði viljað fá að bera byssu hérlendis.

Í frétt miðilsins, sem byggði á samtölum við fjölda diplómata og annarra sem þekktu til málanna, sagði að sendi­herrann hefði óttast um öryggi sitt allt frá því að hann kom til Reykja­víkur og að hann hefði óskað eftir því við utan­ríkis­þjónustuna að hann fengi leyfi til þess að eiga skotvopn.

Heimildar­mennirnir sögðu að Gunter hefði einnig óskað eftir því að láta flytja sig á milli staða í brynvörðum bílum og að hann hefði fleytt þeirri hugmynd fram að fá að ganga í sérstöku vesti til að verjast hnífs­tungum.

Í svari við fyrir­spurn frá CBS neitaði utan­ríkis­ráðuneyti Banda­ríkjanna að tjá sig um hvort það teldi Gunter einhver raun­veruleg hætta búin hér á landi, en heimildar­menn CBS sögðu að sendi­herranum hefði verið þrásagt að hann hefði ekkert að óttast á Íslandi.

Um skýrslu innra eftirlitsins

Frétta­flutningur CBS vakti mikla athygli hérlendis og var fylgt eftir af íslenskum miðlum. Ríkis­útvarpið sagði til dæmis frá því að formleg beiðni hefði borist frá bandaríska sendi­ráðinu til ríkis­lögreglu­stjóra, í gegnum dómsmála­ráðuneytið, þess efnis að sendi­ráðið fengi að ráða vopnaðan öryggis­vörð.

Ekkert hafði þó heyrst af því að formleg beiðni hefði borist þess efnis að sendi­herrann sjálfur fengi að bera vopn sér til varnar.

Í kjölfarið á þessu fjaðra­foki öllu, sem kom skömmu eftir tal sendi­herrans um Kína-veiruna, brast endanlega þolinmæði ýmissa Bandaríkja­manna sem búsettir eru á Íslandi. Efnt var til undir­skrifta­söfnunar á undirsíðu Hvíta hússins fyrir því að Gunter yrði leystur af hólmi sem sendi­herra.

Í yfir­lýsingu sem fylgdi undir­skrifta­söfnuninni og Frétta­blaðið sagði frá á sínum tíma sagði að háttsemi hans væri ekki bandarískum diplómata sæmandi og að hegðun hans hefði slæm áhrif á samband Banda­ríkjanna og Íslands.

5 - Sakaði „Fals-Fréttablaðið“ um „falsfréttir“

Afar áhugaverð færsla birtist á Facebook-síðu bandaríska sendi­ráðsins fyrir rösku ári síðan, eða undir lok október 2020. Þar var brugðist við frétt Frétta­blaðsins, sem fjallaði um að starfs­maður sendi­ráðsins hefði greinst með COVID-19 og að starfs­menn hefðu verið kallaðir út á sunnudegi til að vinna að flutningum sendi­ráðsins í ný húsakynni við Engjateig.

„Eru fals­fréttir komin til Íslands?

Ameríka náði að vígja nýja sendi­ráðið án COVID-19 smits. Skömmin er núna hjá Frétta­blaðinu fyrir ábyrgðar­lausan blaða­mennska. Löngu eftir vígslu kom upp eitt tilfelli vegna smits í íslenskum skóla. Smit­tíðnin á Íslandi er með því hæsta í Evrópu. Ömurlegt að Fals-Frétta­blaðið væru svo ófag­mannlegt og sýnir virðingar­leysi með því að nota COVID-19 í pólitískum tilgangi. Bandaríska sendi­ráðið hefur alltaf verið og er öruggasta athvarfið frá COVID-19 í Reykjavík,“ sagði í færslunni frá sendi­ráðinu, en athygli vakti að hún var birt um miðja nótt.

Viðbrögð sendi­ráðsins við frétta­flutningi Frétta­blaðsins var þó ekki bara á Facebook, heldur var boð til blaðsins um að hitta Robert Burke, flota­foringja í sjóher Banda­ríkjanna, einnig aftur­kallað.

„Rúmum klukku­tíma áður en hring­borðs­um­ræðurnar áttu að hefjast bárust skila­boð frá sendi­ráðinu til ritstjórnar blaðsins, þess efnis að nær­veru Frétta­blaðsins væri ekki óskað. (e. Frétta­blaðið's participation is turned off)“ sagði í frétt Frétta­blaðsins um þetta.

Jón Þórisson, fyrr­verandi ritstjóri Frétta­blaðsins, sagði það vekja „furðu að sendi­maður erlends ríkis geri með þessum hætti tilraun til þess að grafa undan frétta­flutningi frjáls fjöl­miðils í gistiríkinu.“

Ekki er enn búið að tilnefna nýjan sendi­herra Banda­ríkjanna á Íslandi af hálfu Biden-stjórnarinnar, en maður að nafni Harry Kamian, sem er með nærri þriggja áratuga reynslu af störfum í bandarísku utan­ríkis­þjónustunni, tók við forstöðu í sendi­ráðinu eftir að Gunter hélt af landi brott.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár