Ákvæði í frumvarpi um breytingar á lögum vegna afnáms ákvæða um uppreist æru, sem átti að heimila mönnum sem hefðu framið alvarleg lögbrot að verða sjálfkrafa hæfir til að sitja í stjórn Fjármálaeftirlitsins fimm til tíu árum eftir að þeir voru dæmdir, var fjarlægt fellt út áður en frumvarpið var afgreitt sem lög fyrir helgi.
Þess í stað fékk gildandi ákvæði, sem gerir ráð fyrir að sá sem er dæmdur fyrir ýmis tilgreind brot geti aldrei sest í stjórn stofnunarinnar, látið halda sér. Eina breytingin sem gerð er á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi eru þau að í stað þess að gerð sé krafa um „óflekkað mannorð“ er nú gerð krafa um „gott orðspor“.
[links]Kjarninn greindi frá því 13. nóvember að í frumvarpi Sigríðar Á. Andersen dómsmálaráðherra um breytingu á lögum vegna afnáms á uppreist æru, sem var þá til umfjöllunar á þingi, væri ákvæði sem liti að breytingu á lögum um opinbert eftirlit með fjármálastarfsemi.
Í þeim lögum var fyrir skýrt ákvæði um að stjórnarmenn Fjármálaeftirlitsins skyldu „hafa óflekkað mannorð og mega ekki í tengslum við atvinnurekstur hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða þeim sérlögum sem gilda um eftirlitsskylda aðila.“
[adspot]Í frumvarpinu fólst hins vegar afnám kröfunnar um að stjórnarmenn í Fjármálaeftirlitinu hefðu óflekkað mannorð. Auk hennar átti að gera þeim sem gerst hefðu sekir um um alvarleg brot á hegningarlögum, lögum á sviði fjármálamarkaðar eða félaga eða þolað íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir sem einstaklingar eða forsvarsmenn fyrirtækja „veitt sjálfkrafa hæfi að liðum 10 árum eftir hafa verið dæmdir.“
Í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Kjarnans, kom fram að þessi breyting er varðar fyrrnefnd ákvæði hafi komið frá fjármála- og efnahagsráðuneyti Bjarna Benediktssonar.
Gæti falið í sér orðsporsáhættu fyrir eftirlitið
Bæði Alþýðusamband Íslands og Fjármálaeftirlitið athugasemdir við þessa breytingu í umsögn sinni um frumvarpið. Í umsögn Fjármálaeftirlitsins sagði meðal annars að þessi breyting geti falið í sér orðsporsáhættu fyrir eftirlitið. „Fjármálaeftirlitið vill því velta því upp hvort það gæti rýrt traust á slíkum ákvörðunum stjórnar ef þar sætu menn sem hafa hlotið refsidóm,“ segir í umsögninni.
Alþýðusambandið sagði þessa lagabreytingu ekki vera í neinu samræmi við aðrar lagabreytingar sem lagðar eru fram í frumvarpinu. Tillögur dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um almennar íbúðir og lögum um kauphallir gera ráð fyrir því að krafan um óflekkað mannorð sé fjarlægð „en tiltekin brot útiloka áfram frá hæfi. Skýring á því hvers vegna dregið er úr hæfi manna til þess að stýra Fjármálaeftirlitinu er ekki rökstudd í greinargerð.“
Ákvæðið fellt út
Meirihluti allsherjar- og menntamálanefndar, sem samanstóð reyndar af fulltrúum allra flokka á þingi, felldi þessar breytingar út með breytingartillögu sem lögð var fram milli annarrar og þriðju umræðu um frumvarpið.
[adspot]Í nefndaráliti hennar segir að á „fundum nefndarinnar kom fram að við vinnu við 33. gr. frumvarpsins hafi greinargerð með ákvæðinu ekki verið uppfærð í samræmi við fyrirhugaðar breytingar á því. Með ákvæðinu er gengið út frá því að eldri brot og brot gegn öðrum lögum en talin séu upp í ákvæðinu geti haft áhrif á hvort einstaklingur sé skipaður í stjórn, án þess að leiða skuli slíkan áskilnað af ákvæðum laga. Þannig yrði fylgt þeirri venjubundnu framkvæmd við skipun í stöður að meta hvort einstaklingur njóti orðspors sem geri hann verðugan þess trausts og virðingar sem viðkomandi starf krefst. Meiri hlutinn vísar til fyrri umfjöllunar um að miðað verði við hæfisskilyrðið „gott orðspor“ í þessum efnum í stað „óflekkaðs mannorðs“.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.











































Athugasemdir