Í umsögn Fjármálaeftirlitsins (FME) um frumvarp dómsmálaráðherra, þar sem meðal annars á að gera á dæmdum brotamönnum mögulegt að taka sæti í stjórn FME tíu árum eftir dóm, segir að það gæti rýt traust á ákvörðunum stjórnar FME, ef sú staða kæmi upp að í henni sætu dæmdir brotamenn.
[links]„Fjármálaeftirlitið vill því velta því upp hvort það gæti rýrt traust á slíkum ákvörðunum stjórnar ef þar sætu menn sem hafa hlotið refsidóm,“ segir í umsögn FME.
Eins og greint var frá á vef Kjarnans á dögunum, þá hefur Alþýðusamband Íslands gagnrýnt þetta, í umsögn sinni um fyrrnefnt frumvarp.
Skýring á því hvers vegna dregið sé úr hæfi mann til að stýra FME er ekki rökstudd í greinargerð.
[adspot]Einn liður frumvarpsins snýr að þvi að breyta lögum um eftirlit með fjármálastarfsemi. Í þeim lögum er fyrir skýrt ákvæði um að stjórnarmenn Fjármálaeftirlitsins skuli „hafa óflekkað mannorð og mega ekki í tengslum við atvinnurekstur hafa hlotið dóm fyrir refsiverðan verknað samkvæmt almennum hegningarlögum eða lögum um hlutafélög, einkahlutafélög, bókhald, ársreikninga, gjaldþrot eða þeim sérlögum sem gilda um eftirlitsskylda aðila.“

Í tillögum Sigríðar felst afnám kröfunnar um að stjórnarmenn í FME hafi óflekkað mannorð. Í umsögn Alþýðusambandsins segir hins vegar að auk hennar sé „þeim sem gerst hafa sekir um um alvarleg brot á hegningarlögum, lögum á sviði fjármálamarkaðar eða félaga eða þolað íþyngjandi stjórnvaldsákvarðanir sem einstaklingar eða forsvarsmenn fyrirtækja, veitt sjálfkrafa hæfi að liðum 10 árum eftir hafa verið dæmdir.“
Í umsögn FME um frumvarpið er því velt upp, hvort tilefni sé til þess að gera svo vegamiklar breytingar á lögunum, í ljósi þess að ný heildarlög um eftirlit fjármálamarkaðar komi til með sameiningu FME og Seðlabanka Íslands.
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.













































Athugasemdir