Neytendasamtökin boða dómsmál gegn öllum stóru bönkunum

Í fyrra­haust fóru Neyt­enda­sam­tökin fram á að Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn breyttu skil­málum allra lána á breyti­legum vöxtum sem þeir hafa veitt íslenskum heim­ilum. Bank­arnir neit­uðu og nú ætla sam­tökin að fara með með málin fyrir dóm.

Breki Karlsson er formaður Neytendasamtakana.
Breki Karlsson er for­maður Neyt­enda­sam­tak­ana. Mynd: Skjátskot úr fréttatíma RÚV

Neyt­enda­sam­tökin ætla að stefna öllum stóru við­skipta­bönk­unum þremur og hafa opnað heima­síðu til að safna lán­tökum sem vilja fara með sín mál fyrir dóm. Ástæðan er sú að sam­tökin telja að lán sem Arion banki, Íslands­banki og Lands­bank­inn hafa veitt íslenskum heim­ilum með breyti­legum vöxtum stand­ist ekki lög.

Vinnist slík mál gæti átt sér stað mikil til­færsla á fjár­munum frá bönkum til þeirra heim­ila sem eru með lán á breyti­legum vöxtum. Í lok mars síð­ast­lið­ins námu útlán við­skipta­bank­anna til heim­il­anna til dæmis um 1.550 millj­örðum króna. Neyt­enda­sam­tökin telja að stærstur hluti þess­ara lána sé með ólög­legum skil­mála um breyti­lega vexti. Þannig nemur hvert pró­sentu­stig til eða frá 15,5 millj­örðum króna.

Höfnuðu kröfum

Neyt­enda­sam­tökin kröfðu alla bank­ana um breyt­ingar á skil­málum lána þeirra í fyrra­haust í kjöl­far þess að sam­tökin létu vinna grein­ingu sem sýndi að vaxta­á­lag bank­anna hefði auk­ist. Sömu­leiðis kröfð­ust Neyt­enda­sam­tökin þess að hlutur þeirra neyt­enda sem hallað hefði verið á með ákvörð­unum um vaxta­breyt­ingar sem teknar höfðu verið á grund­velli óskýrra og ófull­nægj­andi skil­mála yrði leið­réttur.

[adspot]Bank­arnir höfn­uðu þessum kröfum og því hafa Neyt­enda­sam­tökin ákveðið að stefna þeim.

Samtökin ætla að fara með að minnsta kosti þrjú mál fyrir dóm hér­lendis til að fá nið­ur­stöðu og skapa for­dæmi fyrir önnur lán sem veitt hafa verið á breyti­legum vöxtum. Á heima­síð­unni sem Neyt­enda­sam­tökin opn­uðu í morgun kemur fram að bönk­unum þremur verði stefnt til ógild­ingar skil­mál­anna og end­ur­greiðslu ofgreiddra vaxta til fjölda ára. „Ef málin vinn­ast gæti end­ur­greiðsla hlaupið á mörg hund­ruð þús­undum króna fyrir hvert lán, jafn­vel millj­ónum.“

Miklir hagsmunir

Í ein­földu máli þá kom fram í grein­ingu Neyt­enda­sam­tak­anna á lánum með breyti­legum vöxtum að ákvörðum um það hvernig þeir séu ákvarð­aðir séu óskýrir og að neyt­endur séu ekki í aðstöðu til að meta þær breytur sem þar liggi til grund­vallar. Bank­arnir sjálfir, í krafti fjár­hags­legra yfir­burða og þekk­ingar sem mynd­ast hafi innan þeirra, viti hins vegar nákvæm­lega hvað þeir séu að gera. Fyr­ir­sjá­an­leiki og gegn­sæi þurfi að vera til staðar í skil­málum og því hvernig vaxta­breyt­ingar eru ákvarð­aðar, en svo sé ekki í núver­andi kerfi.

Á síð­unni sem Neyt­enda­sam­tökin hafa opnað vegna yfir­vof­andi dóms­mála segir að stóra málið sé að lán­takar verði ekki útsettir fyrir ein­hliða ákvörð­unum um vaxta­breyt­ingar lána sinna í fram­tíð­inni. „Líklega munu vextir á Íslandi hækka aftur að loknu Covid sam­drátt­ar­skeið­inu og þá þarf að vera alveg skýrt hvað ræður vöxt­unum, enda um mikla hags­muni að tefla fyrir lán­taka, eins og sést hér að ofan.“

VR lagði til veglega upphæð

Samtökin hafa samið við Lög­fræði­stofu Reykja­víkur um að stofan veiti þjón­ustu í mála­rekstr­inum gegn árang­urstengdri þóknun. Sú þjón­usta er fólgin í að meta rétt­ar­stöðu lán­tak­anda, útreikn­ingum krafna og send­ingu kröfu­bréfa til lána­fyr­ir­tækja til að tryggja að drátt­ar­vextir reikn­ist á kröf­una, veita ráð­gjöf um slit fyrn­ingar ef þörf kröfur, og sjá um upp­gjör á grund­velli fyr­ir­liggj­andi dóma þegar nið­ur­staða liggur fyrir. Öllum félags­mönnum er þó frjálst að leita til eigin lög­manna kjósi þeir svo. Þeir eru ekki bundnir því að nýta sér þá lög­manns­stofu sem sam­tökin hafa samið við.

VR, stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins, hefur lagt Neyt­enda­sam­tök­unum til það sem er sagt vera „veg­leg upp­hæð“ til mála­rekst­urs­ins. Auk þess hafa Neyt­enda­sam­tökin fengið styrk frá Samtökum fjár­mála­fyr­ir­tækja og er hann veittur á grund­velli þess að fjár­mála­fyr­ir­tæki hafi aug­ljósa hags­muni á því að fá úr því skorið hvort vaxta­á­kvarð­an­irnar séu ólög­mætar eða ekki. Þessi fram­lög munu þó ekki duga til og ljóst að kostn­aður mun falla á Neyt­enda­sam­tökin einnig.

Samtökin búast ekki við því að málið leys­ist hratt. Lík­leg­ast er að það muni taka nokkur ár.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár